14.01.1959
Sameinað þing: 21. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 216 í D-deild Alþingistíðinda. (2111)
70. mál, akvegasamband við Vestfirði
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég verð víst að byrja á því að biðja hv. þm. N-Ísf. fyrirgefningar á því, að ég hef ofmetið hann sem lögfræðing og þingmann og fyrrv. forseta Nd. Hann er lögfræðingur og ætti að vita það sem lögfræðingur, að fjárútlát í þáltill. hafa ekki gildi. Hann ætti líka að vita það sem lögfræðingur, sem fylgist vafalaust með því, sem gerist hjá dómurum landsins, að hæstiréttur hefur dæmt ógilda þáltill. með fjárútlátum, talið hana viljayfirlýsingu, sem ríkisstj. þyrfti ekki að fara eftir. Ég bið hann fyrirgefningar á því, að ég hélt, að hann vissi þetta. Ég bið hann fyrirgefningar á því, að ég skyldi ofmeta hans kunnáttu og þekkingu á þessum sviðum. Þess vegna er það, að þegar ég sagði, að 1. og 2. till. væru fluttar til þess að sýnast, þá er það af því, að ég hélt, að hann vissi, hvað hann var að gera. Ég varaði mig ekki á því, að hann skyldi ekki fylgjast það mikið með sem lögfræðingur að vita, hvað væri venja og lög í þessu landi. Þetta verður hann að fyrirgefa. Ég hélt hann þekkti stjórnarskrána og lög um þingsköp.
Annað þarf ég eiginlega ekki að segja. Hann var að vitna í till., sem Ólafur Thors flytur hér, þar sem hann leggur til, að ríkisstj. fái sér heimild með lögum til að taka lán til vegagerðar. Það er nú sitthvað. Er nokkuð í þessari till. um það? Nei, ekki sé ég það nú. Það á bara að greiða peningana, það þarf engin lög til þess að fá lánað neitt eftir henni, það er nú eitthvað annað, bara þáltill. Ég bið hann enn á ný fyrirgefningar á því, að ég skyldi segja þetta, því að ég hélt, að hann vissi það, sem flestir lögfræðingar landsins vita og fyrrv. forsetar eiga að vita og raunar allir þingmenn.
En það er nú svona, menn halda stundum, aðra meiri menn en þeir eru, og vona ég, að hann fyrirgefi mér, þó að svo færi mér um hann.