14.01.1959
Sameinað þing: 21. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 221 í D-deild Alþingistíðinda. (2115)
70. mál, akvegasamband við Vestfirði
Bernharð Stefánsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að fara að munnhöggvast frekar við hv. þm. N-Ísf. Ég ráðlegg honum bara að lesa upp stjórnarskrána, þingsköpin og önnur þau ákvæði, sem gilda um meðferð mála í Alþingi.
Ég kvaddi mér hljóðs út af því, að hann minntist á mínar eigin aðgerðir, að því er snerti veg frá Ólafsfirði til Eyjafjarðar, og vildi líkja þessu tvennu saman.
Hann og þeir hv. þm. tveir, sem þessa till. flytja, hefðu átt að taka okkur þm. Eyf. til fyrirmyndar og fara eins að, og þá hefði ég stutt þá. Við þm. Eyf. fluttum fyrst till. á Alþ., þáltill., sem var samþykkt, um það, að það væru rannsakaðir möguleikar á því að leggja veg frá Ólafsfirði til Eyjafjarðar og gerð áætlun um kostnaðinn. Þetta er framkvæmdaratriði, sem ekki kostaði teljandi fé og unnið af embættismönnum ríkisins, enginn sérstakur aukakostnaður þar við. Þessi till. var samþykkt, og þessi rannsókn var gerð. Það sýndi sig, að verkfræðingar, sem rannsóknina gerðu, töldu það vel gerlegt að leggja veg yfir svokallaðan Ólafsfjarðarmúla, og áætlun þeirra var ekki sérlega há um, hvað þetta mundi kosta. Þegar þessi rannsókn var gerð, bárum við fram ósk hér á Alþingi um fjárveitingu til þessa vegar, fengum að vísu ekki eins mikið og við óskuðum eftir, en nokkurt fé. Og samkv. fjárlögum var byrjað á þessum vegi.