14.01.1959
Sameinað þing: 21. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 222 í D-deild Alþingistíðinda. (2116)
70. mál, akvegasamband við Vestfirði
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. Ég vildi aðeins segja hv. 1. þm. Eyf., að það þarf enga frekari rannsókn, en hefur farið fram á vegastæðum þeirra vega, sem um ræðir í till. okkar þm. Ísaf. Það er þess vegna ekki hægt að draga neina hliðstæðu á milli þeirra og Ólafsfjarðarvegarins á því stigi, sem hann var, þegar þeir þm. Eyf. fluttu rannsóknartill. um möguleika á því að leggja veg þá leið.
Ég ráðlegg svo að lokum hv. 1. þm. Eyf. að taka sér ferð á hendur með sumri og hækkandi sól um Vestfirði og kynna sér aðstæður þess fólks, þeirra rúmlega 6 þús. manna, sem eru án sambands við akvegakerfi landsins, og þá vænti ég, að hann mundi tala af meira viti, en hann hefur gert, að þessu sinni, um vegamál þessa landshluta.