27.01.1959
Neðri deild: 63. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 301 í B-deild Alþingistíðinda. (212)

87. mál, niðurfærsla verðlags og launa o. fl.

Sveinbjörn Högnason:

Herra forseti. Það er nú búið að ræða mikið um þetta mál hér og ekki allt, sem í raun og veru kemur við frv. sjálfu, en bollaleggingar á ýmsar hliðar um það, hver bæri sök á málinu og hvernig því skuli ráða til lykta.

Ég vildi aðeins segja hér örfá orð, áður en frv. er afgreitt og kemur til atkvgr. og er það einkum vegna þeirra ummæla hæstv. forsrh., að hann lagði á það nokkra áherzlu, að frv. þetta og byrðar þær, sem því fylgja, ættu að koma jafnt niður á alla. Og vitanlega er það sú eina rétta leið, sem hugsanleg er í þessum efnum, að svo skyldi vera. Jafnhliða segir hann þó, að fáist þær leiðréttingar, sem fulltrúar bænda hafa farið fram á í þessum efnum til þess að fá hliðstæður eða verða jafnir öðrum, þá sé öllu stefnt í beina upplausn og mikla ógæfu með afgreiðslu þessa máls. Það virðist því eins og frv. sé að nokkru leyti byggt á, að það skuli ekki vera sami réttur, sem bændunum er áskilinn til þess að geta náð því marki, sem frv. á að ná, því að það hafa verið fluttar hér brtt. samkv. ósk framleiðsluráðsins, sem miða að því að gera bændurna nokkurn veginn hliðstæða öðrum stéttum, sem við er miðað í afgreiðslu frv. Því hefur verið tekið af stjórnarflokkunum mjög misjafnlega og jafnvel illa og eins og hæstv. forsrh. segir, að ef þessar hliðstæður og þessi jöfnuður eigi að nást milli bændanna og aftur hinna stéttanna, sem um er að ræða, bæði sjómanna og útgerðarmanna, að þeir væru þar að öllu hliðstæðir, þá sé öllu stefnt í beina upplausn og hreina og mikla ógæfu. Hvernig er hægt að skilja þetta á annan veg en þann, að hann ætli bændunum annan rétt og minni, en þeim stéttum, sem hliðstæðar eru og hliðstæðar aðgerðir fá í þessu frv.? Frv. er þess vegna að nokkru leyti einmitt á þessum mismun byggt, hreint og beint byggt á þessum mismun, sem er á milli annarra stétta um afgreiðslu þessa máls og aðstöðu bændastéttarinnar, og skal ég víkja að því nokkrum orðum.

Þá er fyrst að líta á það, sem ríkisstj. hefur þegar framkvæmt, en það eru niðurgreiðslurnar og líta á, hver hlutur bændanna verður við þessar niðurgreiðslur, sem hafa verið framkvæmdar og svo gagnvart hlut hinna og við höfum orðið um það nokkuð ljóst yfirlit, sem við höfum náttúrlega ekki, fyrr en gögnin fóru að koma á borðið um það, hvernig þessar niðurgreiðslur verka fyrir bændastéttina. Ég hef fengið skýrslu frá hagstofustjóra um það, hvernig þessar niðurgreiðslur hafa verið framkvæmdar nú um áramótin af hæstv. ríkisstj., og það eru aðeins 6 liðir, sem niðurgreiðslurnar eru reiknaðar á. Það eru þessir liðir: Kjöt er greitt niður sem svarar 5.44 vísitölustigum, nýmjólk 4.28 vísitölustigum, smjör 0.74 vísitölustigum, kartöflur 1.14 vísitölustigum, smjörlíki 0.50 og saltfiskur 0.50, eða samtals, sem þessar niðurgreiðslur hafa verið framkvæmdar um áramót af hæstv. ríkisstj., 12.60 vísitölustig.

Hvernig kemur þetta nú út fyrir bændastéttina annars vegar og fyrir launþegana hins vegar? Fyrir því liggja líka nokkrar staðreyndir nú þegar í þessu máli. Það er vitað mál, að ef svona einhliða eru greiddar vissar vörutegundir niður og það langt niður fyrir framleiðsluverð, þá verður hlutur bændanna sá, að þeir verða að neyta sinnar vöru á langtum hærra verði, sem þeir nota heima hjá sér, heldur en neytandinn fær í kaupstöðunum. Það er alveg augljóst mál. Nú er t. d. búið að greiða nýmjólkina niður í 3.20 og fer líklega niður í 3.05 eða eitthvað þess háttar, eftir að lækkunin er að fullu framkvæmd, að mér skilst, eitthvað nálægt því, en grundvallarverðið eða framleiðsluverðið er 3.92 kr. M. ö. o.: á þessu verði verða bændurnir að neyta sinnar vöru, þegar neytendurnir aftur í bæjunum fá það svona miklu lægra. Þetta er ekki eins mikið af kjötinu, en þetta er komið svo mikið á mjólkina, að það munar þessu. Hvernig eiga þeir að fá bætta þessa aðstöðu sína, áður en farið er að jafna út og allir eiga að bera byrðarnar jafnt? Ég spyr. Það má vel vera, að það sé erfitt við það að eiga, en þetta sýnir okkur, að það verður að hafa fulla gát á því, hvernig niðurgreiðslunum er hagað, ef þær eiga ekki að verða ranglæti fyrir vissa þegna í þjóðfélaginu. Það verður að hafa gát á því, fulla gát og fara eftir till. í fullu samráði við þá, sem framleiðsluvörurnar hafa.

Það má segja, og ég skal viðurkenna það, að það má hafa það sjónarmið, að því meira sem vörurnar eru greiddar niður, því meira seljist þær. En það kemur óneitanlega, áður en langt um líður, alltaf að því marki, að neyzlan er orðin það mikil, að hvað mikið sem greitt er niður, þá eykst hún ekki. Og það er raunin, sem hér er orðin á og við vitum að hefur orðið, að neyzlan t. d. á mjólk hefur ekki aukizt hér neitt við þessar aukaniðurgreiðslur, sem hafa orðið í þessu efni. Neyzlan á mjólk er orðin gífurlega mikil vegna þess, að niðurgreiðslan á mjólkinni er hvorki meira né minna, en sem svarar 11.51 vísitölustigi, sem er greitt niður af rúmum 35 vísitölustigum, sem greidd eru niður alls í neyzluvörum. Þess vegna er ekki að vænta aukinnar sölu í þessu, þegar komið er niður fyrir visst mark og hagnaðurinn fæst því ekki á þá hliðina. Hann fæst náttúrlega, meðan varan er nokkuð há í verði, en þegar hún er komin svona langt niður, þá fæst það ekki.

Mér skilst því, að hvað greiðslugetu bændanna snertir, þá er aðeins um tvo liði að ræða af þessum 6 liðum, sem greiddir eru niður um áramót, aðeins um tvo liði að ræða, sem beinlínis koma til hagsbóta bændastéttinni og það er saltfiskur og smjörlíki. Og hvað gerir þetta mikið af þessum 12.60 vísitölustigum? Það gerir aðeins eitt vísitölustig, — segi og skrifa. Nú hefur hv. 3. þm. Reykv. reiknað út, hver hagnaður sé af þessari niðurgreiðslu fyrir neytendurna og sjáum við þá líka ljóst, hver aðstaðan er fyrir bændastéttina í þessu efni, og hann reiknar það út þannig í sínu nál., með leyfi hæstv. forseta, að árssparnaður meðalfjölskyldu vegna hinnar nýju niðurgreiðslu ríkisstj. er kr. 2.115.79. Þetta er þó viðurkennt jafnvel af þeim, sem eru fullkomnir andstæðingar frv., að við niðurgreiðslurnar fái neytendurnir þetta í sinn hlut. En hver verður hlutur bændanna? Eftir útreikningi hans sömuleiðis, hæstv. forseta, sem hann skrifaði í sínu nál., þá segir hann og ég tek ekki annað, því að þetta eru neyzluvörur bænda, sem búið er að greiða niður fyrir framleiðsluverð, og kemur þar af leiðandi alls ekki til greina við greiðslugetu bændanna aftur, þá verður saltfiskurinn kr. 65.26 og smjörlíkið kr. 72.08, það vill segja kr. 138.34 alls á móti því, sem hann viðurkennir hjá neytendunum að geri kr. 2.115.79 á fjölskyldu. Þetta er alveg ómótmælanlegt, þegar við förum að athuga plöggin, eins og þau liggja fyrir, að þannig er þetta. Það er ekki annað, sem kemur bændunum að beinu gagni í þessum niðurgreiðslum, eins og þær eru einhliða framkvæmdar og svo mikið á þessum sérstöku vöruflokkum, hvorki meira né minna á kjöti og mjólk, en 10 vísitölustig af þessum 12.60, sem eru greidd niður og þeir verða að borga sína vöru hærra en neytendurnir, það sem þeir nota sem sína neyzluvöru. Ég skal vera það hreinskilinn að játa, að það er erfitt mjög að koma þessu fyrir, þegar komið er inn á þessa leið, að greiða þetta svona langt niður. Það skal ég játa. En við skyldum þó halda, að þegar hér væri komið og þessi mismunur er á í aðstöðunni eftir niðurgreiðslurnar hjá bændunum og neytendunum, að þeir í öðrum hlutum fengju þó fullt jafnrétti. Væri það til of mikils mælzt eftir yfirlýsingu hæstv. forsrh. um, að allir eigi að bera byrðarnar jafnt? Það er sjáanlegt, að þarna er bændastéttin, sem verður að taka á sig meiri byrðar en hinir. En þá skyldum við halda, að þeir gætu þó verið jafnhliða á öðrum sviðum. En hvernig er tekið undir það ?

Hv. þm. V-Húnv. hefur nú flutt brtt. frá n., sem er í fullkomnu samræmi við það, sem framleiðsluráðið hafði óskað eftir — og hverjar eru þessar óskir? Þær eru, að það verði sett bara jafnhliða í sömu atriðum við aðrar stéttir, við það, sem þær hafa fengið. Fyrir það fyrsta — með leyfi hæstv. forseta — er óskað eftir, að áður en ákveðið er með niðurfærslu á verði landbúnaðarafurða, verði reiknað með þeirri grunnkaupshækkun, sem varð á hinu almenna verkamannakaupi í Reykjavík á s. l. hausti, umfram það, sem gert var ráð fyrir í verðlagsgrundvellinum. Þetta er 9.5% í stað 6 á launahlið grundvallarins, sem er um 2% á grundvellinum í heild, en 3.5% á launaliðunum. Þetta hafa fulltrúar bændanna allir lagt megináherzlu á að fá leiðrétt. En þetta atvikaðist með því móti í haust, að þegar verðlagt var, þá var gert ráð fyrir og það meira að segja í samráði við Dagsbrúnarmenn eða Alþýðusambandsmenn, að launahækkun mundi verða í grunnkaupi; sem mundi að öllum líkindum ekki verða meiri en 6%. Með þessu var þar af leiðandi reiknað. En hvað skeði? Það skeður svo, að hækkunin verður 9.5%. Og það hefur meira að segja fengizt ádráttur um það, að ef þetta yrði hærra, þá skyldi verða viðurkennt, að það mætti leiðrétta það. Ég segi: að það var gefinn ádráttur um það.

Það er enginn vafi á því, sem síðan hefur verið afneitað með öllu. Og mér er hreint ekki grunlaust um, að það hafi verið dregið einmitt að framkvæma þetta, þangað til búið var að verðleggja landbúnaðarvörurnar, til þess að hafa þennan sama leik og hefur gengið ár eftir ár undanfarandi, sem sé sá, að þegar bændurnir loksins hafa eftir árið eða eftir marga mánuði, 8–10 mánuði, fengið leiðréttingu í samræmi við þær kauphækkanir, sem hafa orðið, þá hefur þeim verið kennt um, að nú væru þeir að byrja aftur, og síðan hafa komið uppsagnir á samningum, heimtaðar kauphækkanir. Við höfum fengið leiðréttinguna fyrst í september, en kauphækkanir ævinlega komið í nóvember, desember eða síðast í janúar á eftir og verið sagt, að það væri til þess að leiðrétta, þegar bændurnir loksins hafa getað fengið leiðrétt sitt eftir fleiri mánuði, eins og ég tók fram. Þess vegna hefur framleiðsluráðið líka lagt mikla áherzlu á það og beðið um það æ ofan í æ að fá að verðleggja oftar, en einu sinni á ári, vegna þess að þetta hefur í raun og veru leitt til þess, að bændur hafa stöðugt verið á eftir í þessari verðlagningu og í þessu kapphlaupi, allt upp undir heilt ár, með þessari aðferð, sem verkalýðsfélögin hafa beitt.

Þess vegna er það líka alveg rétt, að við teljum það mikilsvirði að fá þær breyt. inn í frv., að það megi leiðrétta þetta oftar, en einu sinni á ári, eins og verið hefur. En það er ekkert annað heldur en sjálfsagður hlutur, að við fáum það, þegar aðrar stéttir, sem hafa verið bundnar eins og við til lengri tíma, eins og t. d. útvegsmenn, bátaútvegsmenn, sjómenn og aðrir, sem hafa samið fyrir vertíðina og jafnvel fyrir árið og úthaldstímann. Nú fá þeir að hækka, án þess að nokkurt bil sé gert, bara ef nokkur hækkun verður, þá fá þeir leiðréttingar, ef það verður hækkun á grunnkaupi eða vísitölu. Og hvers vegna eigum við þá ekki að vera þar samhliða, ef þetta á að koma jafnt yfir á alla, eins og hæstv. forsrh. lýsir yfir og þarf ekki að kaupa það neitt? En nei, gerið þið svo vel, þið eigið ekki að vera þar nákvæmlega eins. Það skal vera þar nokkurt bil á milli. Við fáum þetta ekki leiðrétt samkv. frv. fyrr en eftir 5 vísitölustig, sem hefur nú verið gengizt inn á, af því að öllum er ljóst, að vísitölustigið, eftir að breytt verður um og grunnkaup og vísitala fært saman, gildir meira og gengizt inn á að lækka bilið niður í 2 vísitölustig, sem jafngildir nokkurn veginn 4–5 áður, eins og hefur verið sagt.

Þetta er vitanlega svo, eins og kemur frá framleiðsluráði, að þeir gætu sætt sig við þetta, ef þetta væri eins um aðra. En það verður ekki. Það er bara um þá eina, bændurna eina og enga aðra. Er þetta að láta alla bera byrðarnar jafnt? Til hvers er verið með þessi 2 vísitölustig þá, þegar það er ekki hjá öðrum? Hví ekki að láta þá njóta sama réttar og alla aðra í þessum efnum? Ég fæ ekki skilið það. Og ég fæ ekki skilið þá heldur þessa yfirlýsingu hæstv. forsrh. um, að allir eigi að bera byrðarnar jafnt. En báðum þessum meginatriðum í frv. til þess að komast á sama grundvöll og aðrir hefur verið tekið mjög þunglega af stjórnarliðinu, vægast sagt, og hv. 5. þm. Reykv. hefur flutt till. um það að færa þetta niður í 2 vísitölustig, af því að þetta hefur verið á misskilningi byggt og sömuleiðis að lagfæra um grunnkaupið, eins og við höfðum líka óskað eftir, en meginkröfunni gengur hann fram hjá, um það, að við verðum alveg jafnréttháir og sömuleiðis, að það sé lagaður grundvöllurinn, áður en við færum niður. Þetta er í till. hv. þm. V-Húnv., og ég fyrir mitt leyti get ekki séð með nokkru lifandi móti, hvaða maður og sízt jafnreikningsglöggur maður og hæstv. forsrh. getur haldið því fram, að bændurnir séu á sama grundvelli og t. d. sjávarútvegurinn, bátaútvegurinn og sjómennirnir og aðrir slíkir, sem eiga að fá að hækka, eða launamenn, sem eiga að fá að hækka, jafnóðum og nokkurt bil kemur þarna á milli. Þetta er svo augljóst mál, að ef þetta fæst ekki leiðrétt, þá er það beinlínis yfirlýsing um það, að bændurnir skuli bera þyngstu byrðarnar. Ég er búinn að sýna fram á, að einmitt með niðurgreiðslunum bera þeir samt meira, en aðrir eða bera minna úr býtum fyrir þær. En ef þetta fæst ekki leiðrétt, þá er komið svo mikið misræmi í þetta, að ég skil ekki í því, hvernig nokkur einasti maður ætlar að geta haldið því fram, að þeim sé ætlaður sami hlutur og öðrum. Ég fæ ekki skilið það.

Ég vildi aðeins láta þetta koma fram, áður en lengra er gengið um þetta mál. Þó að hv. þm. V-Húnv. væri búinn að lýsa því mjög skilmerkilega, þá vildi ég árétta það. Og það, sem hafði verið rætt við framleiðsluráðið áður, það var þá vitanlega óundirbúið og ekkert skýrt frá, hvað ætti að gera gagnvart öðrum skyldum. Við höfðum ekki hugmynd um það, var algerlega leynt um þá hluti og sömuleiðis þetta með vísitöluna, hvernig hún ætti að breytast á þennan veg, eins og gert er ráð fyrir og færast niður í 100 1. marz, þannig að þær viðræður, sem eru gerðar að alveg óundirbúnu og órannsökuðu máli, eru vitanlega út af fyrir sig, en ekki hægt neitt á þeim verulega að byggja, fyrr en búið er að rannsaka málið betur og sjá, hvernig á að samræma þetta við alla aðra, eins og hæstv. forsrh. segir, að allir eigi að bera byrðarnar jafnt. Og það er það, sem við krefjumst að verði gert.