11.02.1959
Sameinað þing: 25. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 265 í D-deild Alþingistíðinda. (2164)

100. mál, hlutdeildar- og arðskiptifyrirkomulag í atvinnurekstri

Flm. (Sigurður Bjarnason):

Herra forseti. Eitt mesta vandamál íslenzks þjóðfélags í dag er að sætta vinnu og fjármagn, draga úr þeim átökum, sem eiga sér stað milli verkalýðs og vinnuveitenda. Það er staðreynd, að þjóðina, stéttir hennar og starfshópa, greinir mjög á um það, hver raunverulegur arður af starfi þeirra sé og hvernig beri að skipta honum. Af þessum ágreiningi leiðir svo stórfelld átök um kaup og kjör, tortryggni og úlfúð. Reynslan sýnir, að þessi átök hafa haft mjög óheillavænleg áhrif á efnahagskerfi þjóðarinnar. Sést það greinilegast á því ástandi, sem nú ríkir í íslenzkum efnahagsmálum. Er óhætt að fullyrða, að ekki ríkir ágreiningur um það, að efnahagslegu öryggi og afkomu þjóðarinnar hafi undanfarið verið stefnt í hina mestu tvísýnu, svo að ekki sé dýpra tekið í árinni.

Til þess ber því brýna nauðsyn, að nýjar leiðir verði fundnar til þess að skapa samábyrgð þjóðfélagsþegnanna á efnahagslegu öryggi þjóðarheildarinnar og aukinn frið milli verkalýðs og vinnuveitenda. Auðsýnt er, að ekki tjóar að freista þess að skapa slíkan frið með skerðingu á samningsfrelsi aðila. Samningsfrelsið verður sem meginregla að vera óskert, en skilning verður að skapa á því, að verkalýður og vinnuveitendur eigi sameiginlegra hagsmuna að gæta og beri að vinna sameiginlega að aukningu framleiðslunnar, hagkvæmni í vinnubrögðum, auknum afköstum og sköpun heilbrigðs grundvallar atvinnulífsins á hinum ýmsu sviðum þess. Að þessu takmarki verða öll ábyrg öfl á Íslandi að vinna.

Sem betur fer, er auðsætt þrátt fyrir það upplausnarástand, sem ríkt hefur í atvinnumálum Íslendinga undanfarið, að vaxandi skilningur er á nauðsyn ábyrgrar upplýsingastarfsemi launþegasamtakanna á hagrænum lögmálum efnahagslífsins. Sést það m.a. á því, að á s.l. sumri settu mörg af fjölmennustu launþegasamtökum landsins á laggirnar samvinnunefnd um efnahagsmál. Í tilkynningu frá þeim um starfsemi þessarar nefndar er m.a. komizt að orði á þá leið, að tilgangurinn með stofnun samvinnunefndarinnar sé sá, að hún verði eins konar hagfræðistofnun launþegasamtakanna. Höfuðhlutverk hennar er að fylgjast með efnahagsmálum þjóðarinnar og láta fram fara rannsóknir á þeim, þannig að jafnan séu fyrir hendi fyllstu fáanlegar upplýsingar um þjóðarhaginn, sem launþegasamtöku gætu byggt stefnu sína á og kröfur. Sérstök áherzla er á það lögð nú, með hvaða hætti launþegasamtökin geti lagt hönd á plóginn til að stöðva hina miklu verðbólguþróun. Þessi yfirlýsing margra fjölmennustu launþegasamtaka landsins sýnir greinilega, að vaxandi skilningur ríkir á nauðsyn þess, að almenningur fylgist með þróun efnahagsmálanna og þess verði freistað, að þau geti átt sinn þátt í að stöðva verðbólgukapphlaupið. Á þetta er minnzt hér vegna þess, að aukin þekking almennings á efnahagsmálum þjóðarinnar er einmitt veigamikill þáttur í baráttunni fyrir sáttum milli vinnu og fjármagns.

Við flm. þessarar þáltill. höfum á undanförnum árum flutt tillögu um hlutdeildar- og arðskiptifyrirkomulag í atvinnurekstri. Hefur þar verið lagt til, að ríkisstj. verði falið að láta rannsaka og gera tillögur um, hvar og hvernig megi koma á hlutdeildar- og arðskiptifyrirkomulagi í atvinnurekstri Íslendinga og á hvern hátt þing og stjórn geti stuðlað að eflingu slíks fyrirkomulags. Skal ríkisstj. hafa samráð við fulltrúa frá samtökum atvinnurekenda og launþega um þetta undirbúningsstarf, er skal lokið eins fljótt og möguleikar eru á.

Enda þótt þessa almennu till. um undirbúning hlutdeildar- og arðskiptifyrirkomulags hafi dagað upp á undanförnum þingum og hafi ekki einu sinni verið afgreidd úr nefnd hér á hv. Alþingi, höfum við flm. þó talið ómaksins vert að freista þess að flytja hana enn einu sinni. En í sambandi við flutning þessarar almennu tillögu nú vildi ég leyfa mér að láta þá persónulegu skoðun í ljós, að rétt væri að freista nýrra leiða í þessum þýðingarmiklu málum. Skynsamlegt væri að athuga, hvort hlutdeildarfyrirkomulag gæti ekki hentað í rekstri tveggja stærstu iðjufyrirtækja þjóðarinnar, þ.e.a.s. sementsverksmiðjunnar og áburðarverksmiðjunnar. Bæði eru þessi fyrirtæki að verulegu leyti ríkiseign. Er því mjög auðvelt að taka upp það fyrirkomulag, sem hér um ræðir. Það er einnig persónuleg skoðun mín, að hlutdeildar- og arðskiptifyrirkomulag í rekstri tveggja stærstu iðnfyrirtækja þjóðarinnar mundi geta haft stórfelld áhrif í þá átt að vinna slíku fyrirkomulagi fylgi. Með því yrði gerð merkileg tilraun til þess að stuðla að sáttum milli vinnu og fjármagns, skapa samábyrgðartilfinningu vinnuveitenda og verkalýðs gagnvart heill og afkomu framleiðslunnar. Þetta gerðist með því, að starfsmönnum hinna tveggja stórfyrirtækja yrði veitt hlutdeild í arði þeirra og gefinn kostur á að safna þeim arði og eignast þannig einhvern hluta í þeim. Jafnframt væru þeim veitt einhver áhrif á stjórn fyrirtækjanna og rekstur. Með slíku fyrirkomulagi mundi skapast aukinn áhugi starfsmanna fyrir vaxandi framleiðslu, hagkvæmari vinnubrögðum og yfirleitt sem beztri afkomu fyrirtækjanna. Það er mín skoðun, að slíka tilraun eigi að gera. Íslendingar hafa ekki efni á því að láta undan fallast að freista nýrra leiða til þess að koma á friði í þjóðfélagi sínu, draga úr stórátökum um kaup og kjör, treysta grundvöll efnahagslífs síns. Vel færi á því að minni hyggju, að hinn nýi stóriðnaður landsmanna riði á vaðið í þessum efnum. Við hin nýju iðnfyrirtæki eru miklar vonir tengdar. Við verðum að halda áfram að nota vatnsafl og jarðhita til þess að koma fleiri slíkum stórfyrirtækjum upp. Þá skiptir miklu máli, að skynsamlegar leiðir hafi verið fundnar til þess að tryggja rekstur þeirra og afkomu.

Hlutdeildar- og arðskiptifyrirkomulag hefur verið reynt í ýmsum löndum og á vaxandi trausti að fagna. Má í stytztu máli segja, að grundvallarsetningar þessa fyrirkomulags séu þessar:

1) Að verkamennirnir fái auk hinna föstu launa einhvern hluta í arðinum.

2) Að þeim gefist kostur á að safna arðhluta sínum eða einhverjum hluta hans, til þess með honum að eignast hluta í atvinnufyrirtækinu.

3) Að þeir fái hlutdeild í stjórn fyrirtækjanna, annaðhvort með því í fyrsta lagi að eignast hlutafé og verða á þann hátt aðnjótandi réttinda venjulegra hluthafa eða með því í öðru lagi, að nefnd verkamanna hvers fyrirtækis hafi íhlutun um rekstur þess.

Þetta eru þær grundvallarsetningar, sem sérstaklega hefur verið byggt á í þessu efni, en fjölbreytni fyrirkomulagsins er svo að segja takmarkalaus, enda hægt að beita því við allar greinar atvinnulífsins. Er mér óhætt að fullyrða, að allmikil reynsla sé fengin í þessum efnum í mörgum löndum.

Ég skal svo ekki fjölyrða um þetta mál frekar að sinni. En ég leyfi mér fyrir hönd okkar flm. að láta í ljós þá von og ósk, að þessi till. eigi meiri skilningi að fagna á þessu hv. Alþingi, heldur en raun hefur borið vitni um undanfarin ár. Hér er drepið á miklu vandamáli, sem löggjafarvaldið á Íslandi og fulltrúar þjóðarinnar geta ekki til lengdar skorazt undan að taka afstöðu til.

Ég leyfi mér svo, herra forseti, að óska þess, að till. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. allshn.