12.11.1958
Sameinað þing: 9. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 294 í D-deild Alþingistíðinda. (2236)
37. mál, hafnargerðir o. fl.
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég vil aðeins bæta því við, að mér þótti heppilegra, vegna þess að atvinnutækjanefndin var starfandi stofnun og hafði unnið talsvert mikið að þessum málum með hafnamálastjóra, að fela henni þetta nýja verkefni eða víðtækara verkefni, en að setja á fót nýja n., en líka til þess að forðast allan tvíverknað í þessu.
En ég vil taka það fram, að ég ætlast til þess, að atvinnutækjanefndin og hafnamálastjóri leiti mjög ýtarlega eftir áliti þeirra manna, sem mesta reynslu hafa hér varðandi þessi efni, og þá sérstaklega þeirra, sem hafa haft með höndum siglingar, hvort sem það er til fiskveiða eða aðrar siglingar við landið. Mun verða lögð áherzla á, að leitað verði álits slíkra manna um alla hugsanlega möguleika í þessu efni.