05.11.1958
Sameinað þing: 7. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 295 í D-deild Alþingistíðinda. (2240)
18. mál, smíði 15 togara
Fyrirspyrjandi (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Þegar hæstv. núv. ríkisstj. var mynduð, var það eitt af helztu atriðum í málefnasamningi hennar að kaupa til landsins 15 nýja togara. Í samræmi við þetta lagði ríkisstj. fram á Alþ. þegar snemma þings 1956, skömmu eftir að ríkisstj. var mynduð, frv. um heimild fyrir ríkisstj. til skipakaupa, lántöku og sérstakra ráðstafana í útgerðarmálum til að stuðla að jafnvægi í byggð landsins. Er í þessu frv., sem síðan var lögfest frá Alþ. fyrir áramót 1956, heimild fyrir ríkisstj. til kaupa á þessum 15 togurum ásamt fleiri ráðstöfunum, sem ekki er þörf á að fara út í þessu sambandi. Þegar þetta frv. stjórnarinnar var til meðferðar hér á Alþ., var lögð á það mikil áherzla af ríkisstj., að það væri mikil nauðsyn að fá frv. þetta afgr. sem skjótast, til þess að hægt væri að hefjast handa um framkvæmd þessa atriðis.
Síðan þetta gerðist eru liðin tvö ár og allt er mjög á huldu um það, hvað í þessu máli hefur gerzt. Það, sem vitað er um í þessu sambandi frá opinberri hálfu, kom hér fram á Alþ. 13. nóv. í fyrra, eða fyrir tæpu ári, en þá var hér lögð fram af hv. þm. N-Ísf. fsp., þar sem spurzt var fyrir um þetta mál og framgang þess, og skýrði þá hæstv. sjútvmrh. frá því, að næstu daga, eins og hann orðaði það, færi n. utan til að gera smíðasamninga um stóru togarana. Enn fremur sagði hann, að þar sem nú hefði verið unninn allur nauðsynlegur undirbúningur að þessum skipakaupum, hefði ríkisstj. ákveðið að hefja nú þegar samninga um smíða skipanna. Það kom að vísu í ljós í sambandi við þessar umræður, að enn var mjög á huldu um fjáröflun í þessu sambandi, enda þótt ráðherrann upplýsti, að ákveðið væri að hefjast nú handa um smíði skipanna.
Síðan gerist það, að skýrt er frá því í Þjóðviljanum, blaði sjútvmrh., 16. febrúar 1958, að verið sé að semja um smiði á 15 stórum togurum, og í undirfyrirsögn er sagt: „Verða smíðaðir í Bretlandi og Vestur-Þýzkalandi, og er nefnd farin utan til þess að ganga frá samningum.“
Í sambandi við þessa frásögn Þjóðviljans, skýrði málgagn annars stjórnarflokks, Alþýðublaðið, frá því, að hér væri rangt með farið, vegna þess að það væri að vísu rétt, að nefnd hefði farið utan, en hefði aðeins átt að semja um smíði á 8 togurum. En forsrh. gaf síðan yfirlýsingu um málið, sem að vísu var harla óljós, en í framhaldi af þeirri yfirlýsingu sagði Þjóðviljinn frá því, að það hefði verið ákveðið að hraða sérstaklega smíði á 8 þessara togara, þannig að þeir geti komið til landsins eftir hálft annað ár, en hinir 7 verði afhentir eftir þann tíma. Þó er áformað, að allir 15 togararnir verði komnir til landsins innan tveggja ára.
Síðan frá þessu var sagt í stjórnarblöðum, hefur ekkert fregnazt opinberlega um niðurstöður af samningum þessarar nefndar, sem út var send, hvort sem hún hefur nú átt að semja um smíði á 8 togurum eða 15, sem virðist hafa farið nokkuð á milli mála í þessum frásögnum. Það hefur ekkert verið opinberlega um það birt, hver hafi orðið árangurinn af för nefndarinnar, og síðan er nú liðinn svo langur tími, að ástæða virðist vera til þess að gera ráð fyrir, að það sé nú fengin á þetta endanleg niðurstaða og þessi nefnd hafi eftir svo langan tíma lokið þeim samningum, sem henni var ætlað að annast, þannig að það hljóti að vera auðið nú í dag að gera grein fyrir því, hvað líði endanlegum ákvörðunum um smíði þeirra umræddu 15 togara, sem ég hef að vikið og heimilað var að smíða með lögunum frá 1956, og jafnframt hlýtur að liggja fyrir, hvort lán hafi verið fengin til þessara skipakaupa og þá hve há og hvar, en um þetta hef ég leyft mér að flytja fsp.
Þegar ákvörðunin var tekin um smíði togaranna, er það engum efa bundið, að það vakti vonir víðs vegar úti um land, þar sem við atvinnuörðugleika hafði verið að stríða og sérstaklega erfiðleika með hráefnaöflun til fiskiðjuvera, að úr framkvæmdum á þessu máli yrði, enda var því lýst yfir, eins og ég í upphafi sagði, í sambandi við stofnun hæstv. núv. ríkisstj., að hún væri ákveðin í því að framkvæma þetta fyrirheit sitt. Ég vænti þess því, að hæstv. ríkisstj. sjái sér fært að gera grein fyrir þessu máli hér og geti svarað þeim fsp., sem ég hef leyft mér um það að bera fram á þskj. 34.