04.03.1959
Sameinað þing: 31. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 335 í D-deild Alþingistíðinda. (2287)

121. mál, innflutningur véla og verkfæra

Björn Ólafsson:

Herra forseti. Ég tók eftir því, að hæstv. ráðh. skýrði frá því, að innflutningur á hátollavörum 1958 hefði verið 179 millj. kr., en hefði þurft að vera 220 millj., ef áætlanir hefðu átt að standast í sambandi við þær tekjur, sem þessar vörur áttu að gefa. Hins vegar sagði hann einnig, að gert væri ráð fyrir, að innflutningur yrði svipaður 1959 og 1958. Hins vegar gat ekki hæstv. ráðherra þeirrar upphæðar, sem áætlað væri að nota til innflutnings á hátollavörum á þessu ári. Þess vegna vil ég leyfa mér að spyrja hann, fyrir hvað háa fjárhæð gert er ráð fyrir að hátollavörur verði fluttar inn á þessu ári.

Ég tók einnig eftir, að hann gat þess, að þessi aukni innflutningur á hátollavöru, sem margir kalla óþörfu vörurnar, mundi hafa þau áhrif að lækka að verulegu leyti innflutning á vélum, tækjum og ýmsum öðrum nauðsynjavörum. Þetta er að sjálfsögðu ekki heilbrigð stefna. En líklega verður nú fleira að gera en gott þykir. Mér þætti vænt um að fá þessar upplýsingar hjá hæstv. ráðh., sem ég bað um.