04.03.1959
Sameinað þing: 31. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 335 í D-deild Alþingistíðinda. (2288)
121. mál, innflutningur véla og verkfæra
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Ef sá orðrómur hefur gengið, eins og hv. þm. Dal. (ÁB) sagði hér áðan, að það ætti að skera niður innflutning á landbúnaðarvélum, finnst mér eðlilegt að fsp. sem þessi sé fram komin: Ég býst við, að hv. þm. Dal. og ég séum sammála um það, að innflutningur á landbúnaðarvélum eigi að vera nokkurn veginn eftir þörfum á hverjum tíma, og þannig var það á tímabili, að það var flutt inn af dráttarvélum, varahlutum og öðrum landbúnaðarvélum nokkurn veginn eftir þörfum. Landbúnaðarvélar og varahlutar til þeirra eru jafnnauðsynleg og vélar í báta og veiðarfæri. Eins og nú er ástatt í landbúnaðinum, er ekki unnt að framleiða nema hafa vélar vegna þess, hversu fólksfæðin er mikil.
Hæstv. ráðh. hefur svarað fsp., sem hér er fram komin, og svör hans eru skýr, og mér skilst á hæstv. ráðh., að það sé meiningin að fullnægja að mestu leyti a.m.k. eftirspurninni eftir landbúnaðarvélum og varahlutum í þær að þessu sinni.
Ég hef hér fyrir framan mig tölur yfir innflutninginn á þessum vörum á s.l. ári, og þarf ég ekki að endurtaka þær, því að þær eru samhljóða því, sem hæstv. ráðh. las hér upp áðan. Fyrsti liðurinn, þ.e. heyvinnuvélar, er aðeins hærri, en á fyrra ári. Ég hef reynt að kynna mér hjá innflytjendum eftirspurnina eftir landbúnaðarvélum að þessu sinni, og hefur mér skilizt á þeim, að upphæðin 4 millj. kr. mundi nú nægja að þeirra áliti, m.a. vegna þess, hversu þessar vélar eru orðnar dýrar nú, miðað við yfirfærslugjaldið, sem á þær var lagt, og að bændur hafa takmarkaða greiðslugetu.
Um dráttarvélarnar eða jarðræktarvélarnar í heild er um stóra lækkun að ræða. Ég hef einnig spurzt fyrir um það hjá innflytjendum, hversu mikil þörfin muni vera fyrir innflutning á þessum vélum að þeirra áliti, og þeir hafa sagt mér, að það líti út fyrir, að það yrði meira en helmingi minna, sem þyrfti nú, en árið áður, og er það eðlilegt, vegna þess að í fyrra var flutt inn mikið af dráttarvélum. En það mun þó ekki vera aðalástæðan. Aðalástæðan mun vera sú, að yfirfærslugjaldið er á vélunum, en það var ekki í fyrra í marzmánuði, þegar borgað var fyrir þær vélar, sem þá voru pantaðar. Í fyrra reyndu bændur að klífa þrítugan hamarinn að innleysa þær vélar, sem þeir höfðu borgað inn á í marzmánuði. Nú vita þeir hins vegar, um leið og þeir gera pöntunina, hversu dýrar vélarnar eru, og þeir munu þess vegna fresta því, þeir sem möguleika hafa til þess, að gera kaup á dráttarvélum nú, ef þeir eru ekki í miklum vandræðum, í þeirri von, að þær muni ef til vill lækka síðar og yfirfærslugjaldinu verða aflétt.
En varahlutarnir, — og það var það, sem hv. þm. Dal. spurði þó ekki sérstaklega um, — það eru þeir, sem hafa jafnvel mest að segja nú, því að nú er í landinu mikið af landbúnaðarvélum, sem eru orðnar tiltölulega gamlar og þurfa viðhald og varahluta, og ég er ánægður með það, að hæstv. ráðh. lýsti því hér yfir áðan, að það væri ákveðin meining hæstv. ríkisstj. að láta ekki verða skort á varahlutum á þessu ári, og er það framför hjá því, sem var á s.l. ári, því að það var mjög bagalegt, hversu mikill skortur var á varahlutum þá. Varahlutar eru ekki fjárfestingarvara, varahlutar eru rekstrarvara, og það er ekki hollt í okkar þjóðarbúskap að láta dýrar vélar vera óstarfhæfar vegna þess, að það vantar varahluta fyrir tiltölulega fáar krónur. Ég er sannfærður um, að 9 millj. kr. eru of lítið til varahluta á þessu ári. Ég hef látið mér detta í hug 12–14 millj.
En þar sem þessar tölur allar eru aðeins áætlunartölur og hæstv. ríkisstj. hefur lýst því yfir, að hún vilji leysa úr þessu, og hún skilur það, að landbúnaðarvélar og varahlutar til þeirra er ein af brýnustu nauðsynjum, sem nota þarf í okkar þjóðarbúskap, þá vil ég fyrir mitt leyti sætta mig við þessa áætlun í bili, með þessum fyrirvara, sem hæstv. ráðh. hefur gert, og mér dettur þá í hug, að gjaldeyrissalan til varahluta og landbúnaðarvéla á þessu ári fari upp í 26–27 millj, kr. á móti 23.8 millj. kr. á s.l. ári.
Ég þarf svo ekki meira um þetta að segja. En það er í sjálfu sér eðlilegt, að hv. þm. Dal. gerði þessa fsp., ef hann hefur haft hugmynd um það, að skera ætti innflutning á landbúnaðarvélum það mikið niður, að eftirspurninni yrði ekki svarað nokkurn veginn.