04.03.1959
Sameinað þing: 31. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 355 í D-deild Alþingistíðinda. (2309)
175. mál, réttindi vélstjóra
Fyrirspyrjandi (Gísli Guðmundsson):
Herra forseti. Á síðasta Alþingi voru samþ. lög um breyt. á l. nr. 66 1946, um atvinnu við siglingar á íslenzkum skipum. Í þessum lögum, sem samþykkt voru á Alþingi 29. maí s.l., er ákvæði til bráðabirgða, sem hljóðar svo:
„Ríkisstj. lætur endurskoða ákvæði laga um menntun og réttindi vélstjóra og sé þeirri endurskoðun lokið fyrir næsta reglulegt Alþingi. Við endurskoðunina skal hafa samráð við Fiskifélag Íslands, Alþýðusamband Íslands, Vélstjórafélag Íslands, Mótorvélstjórafélag Íslands og Landssamband íslenzkra útvegsmanna.“
Lögin, sem samþ. voru um breyt. á lögum um atvinnu við siglingar, voru f meginatriðum þess efnis, að aukin voru réttindi vélstjóra á skipum, þannig að vélstjórum ýmsum var heimilað, að stjórna stærri vélum, en þeir áður höfðu haft rétt til samkv. lögum, Við meðferð þessa máls kom það fram, einkum frá samökum vélstjóra, að þau töldu varhugavert að gera breyt. til muna á lagaákvæðum um réttindi vélstjóranna, nema því aðeins að jafnframt væru endurskoðuð ákvæði annarra laga um fræðslu þessara manna. En ákvæðin um vélstjórakennsluna eru í öðrum lögum og heyra undir annað rn. heldur en lögin um atvinnu við siglingar. Af þessum ástæðum var það, sem þetta ákvæði til bráðabirgða var sett inn í lögin, sem samþ. voru 29. maí s.l., þar sem gert var ráð fyrir því, að hvort tveggja yrði endurskoðað í senn, ákvæði laga um réttindi vélstjóra og ákvæði laga um menntun vélstjóra.
Nú hef ég ekki orðið þess var, að fyrir þetta þing hafi verið lagðar till. um breyt. á þessari löggjöf eða skýrsla um endurskoðun, og þess vegna hef ég leyft mér að bera fram hér á þskj. 283 svo hljóðandi fsp. til hæstv. ríkisstj.: Hvað líður endurskoðun þeirri á lagaákvæðum um menntun og réttindi vélstjóra, sem fyrir er mælt um í lögum nr. 47 10. júní 1958?