15.04.1959
Sameinað þing: 38. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 363 í D-deild Alþingistíðinda. (2319)

140. mál, verðbætur bátaútvegsins

Forsrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Ég hef nú ekki mörgu að svara. En út af aths. hv. 2. landsk. þm. um að fá upplýsingar inn í skjöl Alþingis, þá skal ég leitast við að verða við þeirri ósk, þannig að þau geti legið hér fyrir í einhverju formi fyrir þá, sem þetta vilja kynna sér.

Hv. 2. þm. S-M. taldi, að hér hefði illa og klaufalega til tekizt, eins og hann orðaði það, og mátti raunar vel skilja, hvað hann meinti með því, að hér hefði skort hans öruggu handleiðslu. Skal ég ekki fara í neinn mannjöfnuð við hann út af því. En ég held, að það sé ekki hægt að kenna þeim, sem um þessi mál hafa fjallað, um, hvernig þetta hefur farið eða hvernig þetta hefur dregizt. Drátturinn hefur fyrst og fremst orðið vegna þess, að þeir aðilar, sem talið var í upphafi að mundu auðveldlega geta komið sér saman um þessi mál, bátaútvegsmennirnir annars vegar og verkendur aflans hins vegar, hafa eftir langvarandi tilraunir ekki komið sér saman, og munaði þó að mínu viti ekki mjög miklu. En eins og ég lagði áherzlu á hér áðan, þá er nú hér um að ræða lágmarksverð og hefur alltaf verið, og mér er kunnugt um það, að eftir þessu lágmarki eða lágmarksverði hefur ekki alltaf verið farið að undanförnu, heldur hafa ýmsar viðbótargreiðslur farið fram umfram það lágmarksverð, sem ákveðið hefur verið, þannig að það hafa getað verið ýmis óviss atriði um málið, þó að þetta lágmarksverð hafi legið fyrir á prenti sem falleg tala. Það hefur ekki allt verið ákveðið með því.

Mismunurinn á vinnubrögðum í þetta skipti og að undanförnu er sá, að þetta samkomulag um lágmarksverðið var ekki ákveðið jafnhliða og samningarnir voru gerðir við aðilana af ríkisstj., en talið var þá, að þetta mundi geta gengið tiltölulega auðveldlega fyrir sig, þó að raunin hafi nú reyndar orðið önnur á undir lokin.

Ég sagði við þessa aðila báða, að ég vildi fyrir mitt leyti komast hjá því að fella úrskurð í málinu, því að ég vildi ekki, að sú regla yrði innleidd, að skiptingin yrði framkvæmd af ríkisstj., heldur að aðilarnir sjálfir með samkomulagi kæmu sér saman um hana. En það dugði ekki til, og þá var ekki um annað að ræða en að grípa til úrskurðar. Úrskurðurinn hefur verið gerður og frá honum gengið.