26.11.1958
Sameinað þing: 11. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1904 í B-deild Alþingistíðinda. (2343)
Fríverslunarmálið
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Þegar hæstv. menntmrh. flutti skýrslu um þessi mál í vetur, í febrúar, tók ég nokkurn þátt í þeim umræðum, sem þá fóru fram um málið, og mér finnst þess vegna rétt, að ég láti nú skoðanir mínar í ljós um málið á því stigi, sem það er nú. Ég skal reyna, eftir því sem ég get, að forðast að endurtaka mikið af því, sem ég þá sagði.
Ég vil enn vara við því, að við Íslendingar á nokkurn hátt ánetjumst því fríverzlunarsvæði, sem rætt er um að mynda, og það jafnt, þó að nú sé ljóst, að allþungt horfir um myndun þess svæðis og — eins og hæstv. ráðh. kom inn á — öllu meiri líkindi til, að það fyrirhugaða svæði komi til með að klofna í tvær viðskiptaheildir og jafnvel að verða allskarpt verzlunarstríð á milli þeirra heilda, sem getur haft sínar pólitísku og hernaðarlegu afleiðingar í Vestur- og Norður-Evrópu.
Það verður út af fyrir sig ekki of mikið undirstrikað, hvaða þróun það er, sem er að gerast, og það er ákaflega nauðsynlegt fyrir okkur Íslendinga að gera okkur meira, en beint formlega grein fyrir þeirri þróun, sem þarna er að eiga sér stað. Ég held, að það sé nauðsynlegt fyrir okkur, að við gerum okkur alveg ljóst, að það, sem gerzt hefur og stofnar nú í hættu þeim fríverzlunarhugmyndum, sem nú er búið í mörg ár að vera að vinna að, að semja um, er sá samruni, sem er að eiga sér stað á milli þýzka og franska auðvaldsins undir forustu þess fyrrnefnda. Þeir voldugu þýzku auðhringar, sem sigraðir voru í síðasta stríði og hafa nú risið upp aftur með mikilli þátttöku amerísks fjármagns, sem sett hefur verið í þá, eru nú tvímælalaust voldugustu auðhringarnir á meginlandi Eyrópu og jafnvel í allri Evrópu og hafa nú látið þann draum rætast, sem þýzku auðhringarnir langalengi höfðu, að ná slíkum tökum á þeim auðlindum, sem franska og þýzka auðvaldið hefur deilt um nú í meira en öld, að raunverulega er það þýzka og franska auðvaldið, sem er að renna þarna saman og byrjaði með stál- og kolahringnum. Og það, sem nú hefur aukið á áhuga — svo að vægt orð sé notað — hjá þýzka auðvaldinu í þessum efnum, eru þær miklu auðlindir, sem Frakkar eiga í Afríku, bæði olían og góðmálmarnir. Þarna má greinilega sjá, hvernig þetta auðvald á meginlandi Evrópu er að skapa gífurlegar samsteypur, sem vilja reyna að hagnýta þær nýlendur, sem Frakkar hafa sölsað undir sig og þeir heyja nú blóðuga baráttu í til þess að reyna að hindra þær þjóðir, sem þar búa, í því að fá frelsi og fá að njóta þeirra auðlinda sjálfar.
Við skulum þess vegna gera okkur ljóst, að þetta þýzk-franska auðvald, sem þarna er að renna saman og ná tökunum á þessu svæði, er að mynda með þeirri samsteypu, sem nú fer fram og byrjar 1. jan., þann efnahagslega grundvöll að samruna ríkja. Þegar ríki mynda tollabandalag sín í milli, afnema alla tolla sín á milli og hafa sameiginlega tolla út á við, þá er það fyrsta skref í því, sem við köllum ríkjasamsteypu, þ.e. að sameina þann efnahagslega grundvöll þessara ríkja. Það er alveg sama og það, sem þýzku smáríkin gerðu á 19. öld og endaði með samruna allra þýzkra landa í eitt ríki 1871.
Við skulum þess vegna gera okkur ljóst, að það, sem þarna er að rísa upp, er gífurleg efnahagsleg samsteypa undir forustu eins sterkasta auðvaldsins á meginlandi Evrópu, þess auðvalds, sem nú sýnir meiri og meiri tilhneigingar bæði í Þýzkalandi og Frakklandi til að þurrka burt ákveðin lýðréttindi og þingræðisform. Við skulum jafnhliða gera okkur ljóst, að þessi samsteypa byggir alveg sérstaklega á að geta hagnýtt sér ódýrara vinnuafl, svo sem er til staðar bæði í Vestur-Þýzkalandi, Frakklandi og ekki sízt á Ítalíu, — ódýrara vinnuafl, en öll önnur ríki, sem í núverandi efnahagssamvinnu Evrópu eru, hafa aðstöðu til að nota sér. Og ekki aðeins það, þessi samsteypa hyggir líka á því, að sá verkalýður, sem þeir þurfa að kaupa vinnuaflið af, búi við lélegrí félagsleg kjör, en sérstaklega t.d. verkalýður Norðurlanda, enda hef ég, ekki hvað sízt í þeim umr., sem fram hafa farið um þessi mál á 2 síðustu þingum Norðurlandaráðs og milli fulltrúanna á fundunum þar, orðið alveg sérstaklega var við þann ótta, sem er hjá öllum þeim á Norðurlöndum, sem bera lífskjör og félagsleg réttindi vinnandi stéttanna þar fyrir brjósti, að samkeppnin frá þessum voldugu auðsamsteypum, sem búa í sínum löndum við lægri vinnulaun og lélegri lífskjör og félagsleg réttindi, verði til þess að eyðileggja árangurinn af þeirri baráttu, sem fram hefur farið á Norðurlöndum.
Ég held, að þegar við ræðum um okkar afstöðu viðvíkjandi þessum málum, bæði sexveldasamsteypunni og fríverzlunarsvæðinu, þá þurfum við að gera okkur sérstaklega vel ljóst, hvað hið raunverulega innihald er í því, sem þarna er að gerast.
Þá er rétt fyrir okkur í öðru lagi að athuga, hverjir eru okkar hagsmunir í sambandi við hugsanlegt fríverzlunarsvæði, og hvaða breyting það er, sem mundi raunverulega verða, ef þetta fríverzlunarsvæði kæmist á og samkomulag næðist milli Englands, Norðurlanda og nokkurra annarra ríkja í Evrópu annars vegar og sexveldasamsteypunnar hins vegar.
Það er vitanlegt, eins og hæstv. ráðh. skýrði alveg réttilega, að það eru fyrst og fremst þeir andstæðu hagsmunir þýzk-franska auðvaldsins annars vegar, og þó sérstaklega þess franska, og hins vegar enska heimsveldisins, sem þarna rekast á, og það eru átökin á milli þessara aðila, sem nú eru að sundra þessu fyrirhugaða fríverzlunarsvæði að öllum líkindum í tvær viðskiptaheildir, ef þannig fer, og skapa verzlunarstríð á milli þeirra.
Í þessu sambandi er rétt fyrir okkur að athuga, ekki aðeins hvað Ísland snertir, sem ég kem að síðar, heldur líka hvað Norðurlönd snertir almennt, hvort það er þeirra hagsbót að vera þátttakendur í slíku fríverzlunarsvæði. Ég veit, að á Norðurlöndum eru ráðandi menn allmikið fylgjandi því, þótt ýmsir hafi þar nokkurn beyg af. Þeir, sem eru mest fylgjandi því, eru þeir sterkustu og voldugustu, eins og ekki sízt sænsku fésýslufyrirtækin, sem eru vel skipulögð og hafa yfir miklu fjármagni að ráða. Aðrir aftur á móti eru smeykari í þessum efnum, þannig að þeir halda, að það sé ekki um annað að ræða, en vera þarna með, Danir vegna sinna landbúnaðarafurða, Norðmenn vegna sinna miklu efnahagslegu sambanda við öll þessi lönd, bæði viðvíkjandi flotanum og öðru, fiskinum og slíku. Þannig er það sumpart það, að sænskt fjármagn er óhrætt við að keppa í slíku fríverzlunarsvæði eins og þarna yrði myndað og danskir og norskir útflytjendur sjá voðann fram undan hvað markaði snertir, svo framarlega sem þeir væru utan við, ef svona samsteypa yrði mynduð, þótt hins vegar verði greinilega vart við óttann hjá þeim, sem sérstaklega bera kjör verkamanna í þessum löndum fyrir brjósti, um, hver afleiðingin mundi verða af því að taka þátt í slíkri samsteypu, ef menn yrðu kannske svo að segja neyddir til þess, finnst þeim.
Mín skoðun er, hvað Norðurlöndin snertir, að það séu ekki fyrst og fremst þeirra hagsmunir að gerast þátttakendur í þessu fríverzlunarsvæði. Mín skoðun er sú, að Norðurlönd ættu fyrst og fremst að reyna að mynda sjálf eina efnahagslega heild, koma á náinni efnahagslegri samvinnu sin á milli og sem höfuðatriði í þeirri efnahagslegu samvinnu eigi að vera að reyna að skipuleggja sameiginlega þá heimsverzlun, sem öll Norðurlöndin fimm hafa með höndum út um alla veröld. Norðurlöndin fimm eru það stór aðili í heimsverzluninni, ekki aðeins hvað snertir Vestur-Evrópu, þótt þau séu mjög stór þar, — ég skal geta þess t.d., að Svíþjóð er stærri viðskiptavinur Vestur-Þýzkalands en Frakkland er, — heldur eru Norðurlönd svo stór viðskiptavinur til Ameríkulandanna, til hinna fornu nýlendna jafnt í Afríku sem Asíu, og þau eru það sérhæfð á ýmsum sviðum, að ef þau skipuleggja með efnahagslegri samvinnu sinn útflutning í veröldinni, þá held ég, að Norðurlönd þyrftu ekki að kvíða neinni kreppu eða neinu atvinnuleysi. Ef samstarf væri í staðinn fyrir harðvítuga samkeppni t.d. á milli trjáframleiðenda og þar með pappírs- og trjákvoðuframleiðendanna í löndum eins og Finnlandi, Svíþjóð og Noregi og samsvarandi á ýmsum öðrum sviðum, þá mundu Norðurlönd vera það sterk í þessum efnum, að þau þyrftu að mínu áliti engu að kvíða. Og ég held, að slík sameiginleg skipulagning með góðviljuðu samstarfi ríkisstjórnanna á Norðurlöndum og hinna voldugu fésýslufyrirtækja og vel skipulögðu, sem þar eru til, gæti algerlega tryggt Norðurlöndum slíkan sess í því efnahagslega samstarfi hinna ýmsu ólíku aðila í heiminum, að Norðurlönd gætu verið örugg um að halda þeim lífskjörum, sem þau hafa skapað sér, og þeirri sérstöðu, sem þau hafa í efnahagslegum og pólitískum efnum.
Ég hef þess vegna alltaf verið hræddur við það, hve mjög t.d. hugmyndinni um tollabandalag Norðurlanda hefur verið hnýtt aftan í tollabandalag eða einhvers konar fríverzlunarsvæði Evrópu, og álitið alltaf, að sem númer eitt ætti að koma efnahagsleg samvinna Norðurlanda, sameiginleg skipulagning þeirra á þeirra þátttöku í heimsverzluninni, — og fyrst sem númer tvö ættum við þá að athuga um þeirra hugsanlega tollabandalag án þess að gera það háð Vestur-Evrópubandalaginu, því að það er á ýmsan hátt rétt, að sameiginlegt tollabandalag Norðurlanda er ekki eins mikið hagsmunamál hvers þeirra um sig innbyrðis og sameiginlegt starf þeirra og sameiginleg skipulagning þeirra á þeirra heimsverzlun út á við mundi vera.
Þess vegna, án þess að ég ætli að fara að vekja nokkuð máls á því hér, vil aðeins skjóta því hér inn i, að okkur bæri, ekki sízt ef svo fer nú sem hugsanlegt er, að allir samningar um fríverzlunarsvæði fari út um þúfur og í stað þess komi verzlunarstríð, þá held ég, að það, sem okkur beri fyrst og fremst að athuga þarna um, það sé: Með hvers konar skipulagningu og efnahagslegri samvinnu getum við varðveitt þau lífskjör, sem Norðurlönd hafa fram yfir flestallar aðrar þjóðir heims, og hvernig getum við tryggt samstarf Norðurlanda um slíkt?
Ég veit, að fyrir t.d. verkalýðshreyfingu Norðurlanda er það óhugnanleg tilhugsun að eiga að standa í því að verða að keppa við stóra, volduga, vel skipulagða hringa, ekki hvað sízt þýzku auðhringana með þeirra aðstöðu, þegar þeir ekki aðeins fara að hafa það þýzka vinnuafl, sem nú er frekar lágt launað, heldur þar að auki ítalskt og franskt. Þá er ég hræddur um, að Norðurlönd mundu með þátttöku í slíku fríverzlunarsvæði fara að missa margt af því, sem þau hafa verið að reyna að byggja upp hjá sér og vernda í lífskjörum sinna þegna á undanförnum árum, enda heyrir maður það, þegar þeir, sem fylgjandi eru hægri flokkunum á Norðurlöndum, eru að tala um þetta innbyrðis og þeir eru að tala um, að t.d. sósíaldemókratísku flokkarnir á Norðurlöndum séu uggandi um þetta, þá skjóta þeir því beinlínis fram: Ja, þeir eru eitthvað hræddir um, að tryggingarnar og annað slíkt kunni að fokka, þegar fram í sækir með þetta. Og það er engum efa bundið, að það er það, sem vakir fyrir þeim sterku kapítalistasamsteypum, sem þarna hafa fyrst og fremst hagsmuna að gæta.
Hverjir eru svo hagsmunir Íslands í þessum efnum? Er það hagur okkar Íslendinga að taka þátt í slíku fríverzlunarsvæði, ef það yrði myndað? Er það hagur okkar jafnvel smátt og smátt, jafnvel þó að það tæki tvisvar sinnum 12–15 ár, að fá tolla- og haftalaus viðskipti við hin Vestur-Evrópuríkin? Er sú hugmynd yfirleitt rétt, að við eigum að láta innlima okkur, þó að það taki svo og svo langan tíma, í efnahagslegt samstarfssvæði, þar sem við gætum ekki lengur með tollum, höftum eða jafnvel þjóðnýttri utanríkisverzlun eða hverju sem væri ráðið sjálfir yfir þróun efnahagsmálanna í okkar landi? Og er það rétt, að það yrðu svo miklir efnahagslegir erfiðleikar fyrir okkur af því að standa utan við slíkt svæði, að við réðum ekki við það?
Ég vil þá fyrst viðvíkjandi því, hvað sé okkar hagur, taka það fram, eins og ég reyndi að gera grein fyrir í vetur, í febrúar, og skal reyna að fara stutt í nú, að ég óttast um Ísland og öll þau lífskjör og allt það efnahagslega sjálfstæði, sem við höfum byggt upp, ef við, þótt það væri á 24–30 árum, smátt og smátt innlimuðumst í svona fríverzlunarbandalag. Ég held, að það mundi þýða lækkun á allri okkar lífsafkomu, mundi skapa hér öryggisleysi, atvinnuleysi, gera okkur að leiksopp í höndunum á þeim voldugu fjárhagslegu öflum, þeim risavöxnu auðhringasamsteypum, sem mundu verða ráðandi á slíku svæði, þegar fram í sækti. l;g álít þess vegna, að innlimun Íslands, hve langan tíma sem það kynni að taka, í slíkan óheftan kapítalistískan markað Vestur-Evrópu mundi eyðileggja allt, sem reynt hefur verið að byggja upp á Íslandi á síðustu áratugum.
Við skulum muna það, að við höfum verið að reyna að tryggja hér fulla atvinnu, skapa öryggi fyrir alla íbúa okkar lands um fulla atvinnu og höfum komizt hvað lengst í því einmitt eins og nú standa sakir. Slíku er ekki hægt að viðhalda, eftir að fríverzlunarsvæði er skapað, og verður ekki við haldið. Atvinnuleysi er jafn óhjákvæmilegur fylgifiskur slíks svæðis og það kapítalistíska skipulag, sem á því ríkir.
Við sjáum það á þeim löndum, sem eru að mynda þessi svæði núna. Þau reyna að vísu, eins og öll kapítalistísk ríki í heiminum, að koma í veg fyrir gífurlegt atvinnuleysi, þótt þeim takist það misjafnlega. En þau viðhalda því, sem einu sinni var kallað hér „mátulegt atvinnuleysi“, atvinnuleysi, sem nægir til þess að geta hrætt verkalýðssamtökin frá kaupgjaldsbaráttu og geta alltaf svo að segja haldið þeim undir svipunni.
Við höfum verið að reyna að byggja upp þjóðfélag með fullri atvinnu, og til þess höfum við þurft meiri eða minni skipulagningu á öllum okkar efnahagsmálum og á einn eða annan hátt, hve klaufalega sem það tækist til eða hve ófullkomlega sem það væri gert, meiri eða minni skipulagningu og heildarstjórn á allri okkar verzlun, öllum okkar viðskiptum og meira eða minna öllu okkar atvinnulífi. Við framkvæmum þetta oft á neikvæðan hátt og slæman að mínu áliti, framkvæmum það með neikvæðu eftirliti í staðinn fyrir skapandi stjórn, eftirliti með leyfum ríkisbankanna og ríkisnefndar á verzluninni. En við reynum á þennan hátt að viðhalda fullri atvinnu í landinu, því öryggi, sem íslenzka þjóðin leggur hvað mest upp úr í sínu efnahagslífi. Öllu þessu mundum við fórna, svo framarlega sem við gerðumst smátt og smátt, þó að það yrði á löngum tíma, þátttakendur í svona samstarfi.
Hugmyndin, sem liggur til grundvallar öllu þessu fríverzlunarsvæði og öllum þessum stóru samsteypum, er hugmyndin um, að í svokallaðri frjálsri verzlun fái fullkomnari skipulagning, sérhæfing framleiðslu og annað slíkt bezt að njóta sín hvað snertir ódýra framleiðslu.
Raunverulega þýðir þetta, að á slíku stóru svæði, eins og hér er nú talað um, jafnvel að það komist upp í 285 millj. íbúa, þar fær aðstaða voldugra, vel skipulagðra auðhringa, sem ráða yfir miklum og góðum verksmiðjum, drottna yfir bönkum, sem standa í sambandi við þeirra framleiðslu, — þar fær slík stórframleiðsla bezt að njóta sín. Það er raunverulega krafa auðhringanna á meginlandi Evrópu að skapa sér þennan vettvang. Það er samsvarandi vettvangur og t.d. Bandaríkin hafa skapað sér og gert hefur þeirra auðhringa volduga, af því að þeirra vettvangur hefur verið nógu stór, þannig að rekstur í stórum stíl hefur fengið að njóta bezt yfirburða sinna og mölva niður allt, sem heitir iðnaður þeirra smáu og veiku.
Krafan um frjálsa verzlun og fríverzlun Evrópu og hugmyndin um það, það er krafa þeirra stóru auðhringa í Evrópu til þess að fá að nota öll þessi lönd sem markaði fyrir sig hafta- og skefjalaust, ekki aðeins hvað snertir markaði fyrir vörurnar, sem þeir framleiða, heldur líka markaði fyrir vinnuaflið í löndunum. Þó að ekki verði hægt að flytja ótakmarkað kannske ítalska verkamenn yfir til Danmerkur eða Svíþjóðar, þá mundi vera hægt að flytja þær verksmiðjur, sem auðvaldinu finnst praktískara að reka með ódýrara vinnuafli suður á Ítalíu ,heldur en með dýrara vinnuafli t.d. norður í Danmörku, — flytja þær þangað, byggja þær þar. Auðvaldinu væri með þessu mótí gefinn laus taumurinn til þess að geta hagað þessum málum eins og væri praktískast fyrir það, án tillits til útkomunnar fyrir vinnandi stéttirnar í þessum löndum.
Ég álít, að það sé nauðsynlegt að verja Ísland gegn öllum slíkum yfirráðum, öllum síkum áhrifum þessara stóru og voldugu auðhringa, með hverju sem við viljum kalla það, hvort við viljum kalla það tolla, höft eða það, sem ég mundi helzt vilja kalla: með skipulagðri utanríkisverzlun, þjóðnýttri utanríkisverzlun Íslands, þar sem við getum byggt múr í kringum okkar land og tryggt innan þess múrs fulla atvinnu og góð lífskjör, en þurfum ekki að verða fyrir þeim holskeflum, sem koma til með að ríða yfir okkur frá þessum frjálsu verzlunarsvæðum.
Ég álít, að það væri algerlega óeðlilegt fyrir Ísland að fallast á nokkrar skuldbindingar viðvíkjandi breytingu á tollum og það jafnvel þó að við fengjum það með þessu langvarandi fyrirkomulagi, sem hæstv. menntmrh. lýsti, að þau fjögur ríki, sem þarna standa sérstaklega að vígi, gera kröfu til.
Af hverju er eðlilegt, að við heimtum tollakerfi fyrir Ísland og þessi lönd geri það líka? Af því að við erum að byrja með iðnað. Við stöndum á sama stigi og Frakkland stóð í byrjun 19. aldar hvað þetta snertir og eins og Þýzkaland stóð um miðja 19. öld. England fær það fram yfir að vera fyrst af öllum ríkjum Evrópu til þess að skapa sér stóriðju. Og hvað gera þau ríki, sem rísa upp næst og ætla að fara að reyna að skapa sér einhverja stóriðju líka? Þau girða síg auðvitað af með tollamúrum. Um hvað standa Napóleons-styrjaldirnar? Um það, að Napóleon og franska auðvaldið geti girt Evrópu af og bannað Bretlandi að selja þar. Og hvað gerist, þegar þýzka borgarastéttin fer að reyna að koma sér upp iðnaði? Ekki aðeins í praksís með tollabandalagi á móti Englandi, heldur líka á sviði hagfræðinnar koma hennar hagfræðingar fram með kenningarnar um nauðsyn tollanna. Og þetta er eðlilegt. Þetta hljóta að vera eðlileg viðbrögð hverrar ungrar þjóðar á efnahagssviðinu, að varðveita sína eigin aðstöðu, sína eigin hagsmuni með því að girða sig af gagnvart þeim stóru og gömlu, sem eru nógu voldugir og sterkir til þess að geta mölvað niður nýgræðinginn. Þess vegna er eðlilegt fyrir okkur, sem erum rétt að byrja að hugsa um að skapa iðnað í okkar landi, íslenzkan iðnað, að við girðum okkur af á slíkan hátt.
Ég er þess vegna á alveg andstæðri skoðun við hæstv. menntmrh., sem telur, að það séu tvímælalaust hagsmunir Íslands að vera þarna með, sé lífshagsmunamál fyrir okkur, m.a. til þess að afla okkur þess gjaldeyris, sem við þurfum til þess að kaupa þær vörur, sem við erum orðnir vanir við.
Erum við nú svona háðir þessum viðskiptum við Vestur-Evrópu? Okkar viðskipti austur á bóginn til sósíalistísku ríkjanna eru líklega 35% af okkar viðskiptum. Okkar viðskipti til Bandaríkjanna eru líklega milli 10 og 20% af okkar viðskiptum. Okkar viðskipti til Suður-Ameríku, Afríku og annarra slíkra landa eru vafalaust yfir 10% af okkar viðskiptum. Meiri hlutinn af öllum okkar viðskiptum er við lönd, sem liggja utan þess hugsanlega fríverzlunarsvæðis Vestur-Evrópu.
Og hvernig er nú um sjálft fríverzlunarsvæði Vestur-Evrópu og þær vörur, sem við seljum þangað? Til Bretlands og til Norðurlanda, til Frakklands og til Vestur-Þýzkalands og jafnvel til Ítalíu, sem er þó það eina, eins og hæstv. ráðh. gat réttilega, sem er þarna erfitt fyrir okkur, — hvaða vörur eru það, sem við seljum fyrst og fremst til Bretlands og Vestur-Þýzkalands og Norðurlanda? Það eru þær vörur, sem við getum selt hvar í heiminum sem er. Það eru okkar hörðu gjaldeyrisvörur, sem eru meira eða minna eftirsóttar og við gætum fengið frjálsan gjaldeyri fyrir á ýmsum öðrum verzlunarsvæðum heimsins.
Ég held þess vegna, að við þurfum ekki að óttast þetta fríverzlunarsvæði hvað snertir söluna á þessum vörum. Við getum selt þær annars staðar. Það er aðeins salan til einnar þeirra, sem yrði okkur e.t.v. erfiðleikum bundin, og það er til Ítalíu, sá saltfiskur, sem þangað fer.
Eins og sakir standa núna hins vegar, mundum við ekki verða í neinum erfiðleikum út af því. Jafnvel þó að okkar saltfisksframleiðsla minnkaði að einhverju leyti, sem væri þó gott að geta bætt sér upp annars staðar, þá mundum við geta með aukinni freðfisksframleiðslu komið í veg fyrir slæmar efnahagslegar afleiðingar af slíku fyrir okkur.
Ég held þess vegna, að hvað snertir söluna og markaðinn þyrftum við engu að kvíða.
Þá komum við að hinu: Vestur-Evrópuvörunum með þeim sérstöku gæðum, sem þær hafa yfirleitt til að bera og við erum orðnir sérstaklega vanir við. Yrðum við í vandræðum, ef við gætum ekki haft nægan gjaldeyri til þess að kaupa þær?
Nú býst ég ekki við, að það hafi farið fram sérstaklega mikil rannsókn á, hvernig aðstaðan er hjá okkur um kaupin á þessum vörum. Mér er nær að halda, að það séu eins mikið amerískar vörur og vesturevrópskar, sem við erum orðnir vanir við hvað slíkt snertir í landinu. A.m.k. á meðan við getum bætt okkur upp Vestur-Evrópuvörurnar með amerísku vörunum, þurfum við engu að kvíða í þeim efnum, og a.m.k. í ár hefur það verið svo, að við höfum ekki getað framleitt eins mikinn fisk og við höfum getað selt til Ameríku.
Ég held þess vegna, að við þyrftum ekki að óttast það, að okkar lífskjör, okkar lífsvenjur þyrftu að breytast hér á Íslandi vegna myndunar þessa fríverzlunarsvæðis, þó að við værum utan við það. Ég held, að við mundum alltaf geta keypt þær vörur, jafnvel þótt við yrðum að missa þær frá þessum löndum, jafngóðar annars staðar.
En við erum ekki aðeins upp á þessi lönd komin hvað það snertir að fá þessar vörur frá þeim. Þessi lönd eru líka upp á okkur komin með að geta selt þessar vörur. Hvernig stendur þetta jafnvel með fyrstu tilraunina, sem gerð er til þess að skapa nú eitthvað öruggara skipulag í Vestur-Evrópu með svona samsteypum, — hvernig stendur það í dag með kola- og stálsamsteypu Vestur-Evrópu? Horfir sérstaklega efnilega með það fyrir þá? Hrúgast ekki upp ógrynni birgða, ekki sízt af kolum, ógrynni óseljanlegra birgða, sem vekja ugg hjá sjálfri kola- og stálsamsteypunni í VesturEvrópu? Og raunar er það svo í Englandi líka.
Ég er hræddur um, að þessi lönd Vestur-Evrópu eigi eftir að reka sig á það, hvort sem þau mynda eina eða tvær heildir, að það eru þau af öllum löndum heimsins, sem eiga erfiðast með að vera markaður fyrir sjálf sig. Þetta eru elztu iðnaðarþjóðir veraldarinnar, sem eru vanar því að verzla við alla veröldina, að eiga markaði í öllum löndum heims, geta selt sína vöru til allra landa. Ég held, að þessi eina samsteypa Vestur-Evrópu eða tvær samsteypur Vestur-Evrópu, hvort heldur það verður, séu sá hluti veraldarinnar, sem á erfiðast með að vera sjálfum sér nógur og þarf bókstaflega að biðja allar aðrar þjóðir heims um að verzla við sig.
Ég held, að það sé ekki sem markaðsbandalag og markaðsöryggi, sem fríverzlunarsvæðið er hugsað, heldur sem þægileg framleiðslusamsteypa voldugra auðhringa til þess að geta steypt saman þeim mörgu verksmiðjum, sem til eru á þessum svæðum. Þess vegna held ég, að við Íslendingar og ýmsar aðrar þjóðir, sem stæðu utan þessara tröllauknu viðskiptaheilda, stæðum engan veginn illa að vígi til samninga við þessi lönd, og satt að segja: mér heyrðist allt, sem hæstv. menntmrh. sagði í lok sinnar ræðu, benda raunverulega til þess, að sú hlyti líka að verða niðurstaðan. Hæstv. ráðh. segir: Við verðum að fá undanþágu á þessu sviði, við verðum að fá undanþágu á hinu sviðinu, við verðum að fá séraðstöðu á þessu sviði, og við verðum að fá séraðstöðu á hinu sviðinu. — Og það er hárrétt hjá honum, alveg hárrétt. Það er ekki til neins fyrir okkur að tala um þessar samsteypur öðruvísi, en að við fáum svo og svo mikil sérréttindi.
En það er kannske ekki verulegur eðlismunur á því að standa utan við þessi svæði og segja: Ég vil gera við ykkur samninga um verzlun, — eða hitt, eins og hæstv. ráðh. var að hugsa sér, að við ættum að standa þarna inni í með svo mörgum fyrirvörum, undanþágum, sérstöðu og slíku, að við raunverulega tilheyrðum ekki því, skírðum kannske tollana um í söluskatt og annað þess háttar. Samt held ég, að það eina örugga í þessu væri að standa utan við, með því að þótt það væri ekki nema að forminu til með hundrað fyrirvörum, að við værum þarna með í, þá væri meiri hætta, að við mundum ánetjast því. En við mundum hins vegar geta fengið sams konar verzlunarsamninga við svona heild, þó að við stæðum utan við, enda mundu það verða allmörgríki, sem mundu semja á þeim grundvelli.
Ég held þess vegna og er enn þeirrar sömu skoðunar og ég var í vetur, að það sé bezt fyrir okkur Íslendinga að skipuleggja okkar eigin viðskipti með heildarstjórn á okkar þjóðarbúskap og heildarstjórn á okkar viðskiptum, verzla jafnt við alla aðila í veröldinni, hvaða svæði sem eru, austur, vestur eða suður, og reyna að ná sem beztum viðskiptasamningum við öll þessi svæði, hvar svo sem þau kunna að vera, til þess að tryggja það að geta hér í okkar landi byggt upp þannig þjóðfélag, að við getum alltaf ábyrgzt okkar þjóð fulla atvinnu og það öryggl, sem því fylgir að þurfa hvorki að óttast kreppu né atvinnuleysi. Þetta vildi ég óska að menn hefðu í huga og ekki sízt hæstv. ríkisstj., þegar e.t.v. kemur nú til kasta um að taka ákvarðanir í þessum efnum. Hins vegar mun það vera öllum þingheimi ljóst eftir ræðu hæstv. menntmrh., að líkindi benda til þess, að sjálft fríverzlunarsvæðið verði ekki myndað, og jafnvel líklegra sé, að tvær viðskiptaheildir komi þar til með að rísa upp.