16.10.1958
Neðri deild: 4. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1917 í B-deild Alþingistíðinda. (2346)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég skal hugleiða það, sem hv. þingmaður segir um þetta, en ég vildi á þessu stigi benda á, eins og raunar kom fram hjá honum, að eftir gömlu reglunni átti að greiða skattana á manntalsþingi, en greiðslunum er dreift miklu meira samkv. þessari reglu, sem upp hefur verið tekin. Ég held, að það sé ekki nokkur vafi á því, að eins og þetta fyrirkomulag er nú, þá er það miklu hagstæðara fyrir skattgreiðendur, en það var, enda heyrðist mér hann ekki draga það í efa.
Hitt er svo annað mál, að gjalddaginn var sem sagt á manntalsþingi, og var þá gert ráð fyrir því, að það ætti að vera búið að greiða skattana fyrir áramót, en það þarf vitanlega athugunar við, hvort hugsanlegt er að leggja út í nokkra breytingu, sem raskar því.