13.11.1958
Neðri deild: 20. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1929 í B-deild Alþingistíðinda. (2357)

Landhelgismál

Utanrrh. (Guðmundur Í. Guðmundsson):

Herra forseti. Ég met mikils og þakka það samstarf, sem hv. þm. G-K. hefur boðið fram. Hins vegar harma ég, að tiltölulega þýðingarlítill ágreiningur um kosningu undirnefndar í utanrmn. skuli verða til þess, að Sjálfstfl. sjái sér ekki fært að hafa eðlilegt samstarf við stjórnarflokkana í utanrmn. um málið. Ég vil í því sambandi benda á, að komið er fram á þingi frv. um að afnema undirnefndina. Stjórnarflokkarnir standa allir að því frv., og Sjálfstfl. hefur lýst því yfir, að hann muni ekki greiða atkv. gegn því. Það er þess vegna vitað, að þetta frv. verður samþykkt á næstu dögum, og það verður varla seinna en í næstu viku, ef allt gengur með eðlilegum hætti, að undirnefndin verður afnumin með lögum.

Það er þess vegna vægast sagt mjög leitt til þess að vita, að hv. þm. G-K. skuli ekki vilja hafa eðlilegt samstarf við stjórnarflokkana innan utanrmn. út af þessum tiltölulega þýðingarlitla ágreiningi, sem sannast sagna er orðinn heldur broslegur, þegar vitað er, að þessi undirnefnd verður afnumin eftir fáa daga.

Ég vildi mælast til þess, að þessi hv. þm. fyrir hönd síns flokks taki þessa afstöðu sína til endurskoðunar. Hver sem niðurstaðan verður hjá honum í þeim efnum, þá tel ég sjálfsagt, að allir stjórnmálaflokkarnir hafi samstarf og samráð um það, hvernig við vandanum verður brugðizt í málinu.