04.02.1959
Sameinað þing: 24. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1935 í B-deild Alþingistíðinda. (2367)
Landhelgismál
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég vil lýsa ánægju minni yfir þeim undirtektum og þeim samhug, sem fram kemur hjá þeim fulltrúum flokkanna, sem talað hafa um þetta mál. En ég vil jafnframt leggja áherzlu á, að það sé ekki bara beðið átekta, þangað til brezka ríkisstj. þóknast að gera eitthvað. Hún þarf fyllilega að fá að vita af því, að það sé ekki hún, sem ræður, hvað gerist í íslenzkri landhelgi. Og ef það verður verulegur dráttur á því enn, sem þegar er orðinn lengri, en hæstv. ríkisstj. hafði búizt við, þá held ég það verði alveg óhjákvæmilegt, að utanrmn. fjalli um það, hvort við eigum ekki að kalla sendiherrann í London heim. Það þarf á einhvern hátt að sýna brezku ríkisstjórninni, að það er ekki hægt að vega svona tvisvar í sama knérunn.