15.04.1959
Sameinað þing: 38. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1938 í B-deild Alþingistíðinda. (2372)
Landhelgismál
Utanr.- og fjmrh. (Guðmundur Í. Guðmundsson):
Herra forseti. Ég ætla ekki að ræða hér efnislega það, sem hv. þm. G-K. hafði um þetta mál að segja; það verður að bíða síns tíma. En vegna fsp. hans þykir mér rétt að taka fram, að mér barst skýrsla landhelgisgæzlunnar um þetta mál þó nokkru fyrir hádegið í dag. Sú skýrsla hefur verið til athugunar í utanrrn. Ég sneri mér, þegar eftir að ég hafði litið yfir skýrsluna, til form. utanrmn. með erindi um það, að fundur yrði kallaður saman í n., og form. utanrmn. er nú að athuga í samráði við mig um hentugan tíma til að halda þennan fund í nefndinni.
Á þessu stigi málsins sé ég ekki ástæðu til að fara frekar út í þetta.