15.04.1959
Sameinað þing: 38. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1941 í B-deild Alþingistíðinda. (2374)

Landhelgismál

Utanr.- og fjmrh. (Guðmundur Í. Guðmundsson):

Herra forseti. Eins og ég skýrði frá á fundi hér fyrir nokkru á hæstv. Alþ. í sambandi við fyrirspurn frá hv. 1. þm. S-M., var ekki tími til að hafa samráð við utanrmn., áður en gera þurfti ráðstafanir í sambandi við ólöglegar veiðar brezks togara fyrir sunnan land á miðvikudaginn fyrir páska. Ég varð þess vegna að gera ráðstafanir þá þegar án þess að geta rætt málið við utanrmn. og bar fram við Bretastjórn mótmæli okkar og kröfur.

Síðan þetta gerðist er alllangur tími liðinn, og formlegt svar hefur ekki borizt við þeirri orðsendingu og engir þeir hlutir gerzt í sambandi við okkur, sem hægt er að fara með hér.

Að því er varðar þann atburð, sem gerðist í gær, þegar annar brezkur togari var staðinn að ólöglegum veiðum út af Snæfellsnesi, þá er það eins og ég áður sagði: Ég fékk skýrsluna um það í hendur nú skömmu fyrir hádegi, og þegar eftir að ég hafði lesið skýrsluna, sneri ég mér til formanns utanrmn. með ósk um, að við ræddum málið í utanrmn. og bærum þar saman ráð okkar um, hvað heppilegast yrði að gera. Ég held, að eins og þetta mál allt horfir við og eins og margsinnis hefur komið fram hér á Alþingi í sambandi við atburði eins og þessa, þá sé nauðsynlegt, að flokkarnir beri saman ráð sín innan utanrmn. og reyni að finna þau ráð, sem þeir eru sammála um að haldbezt séu og traustust, til þess að við megum halda okkar rétti og ná okkar kröfum og málstað fram.

Ég vænti þess, að fundurinn í utanrmn. verði haldinn nú mjög fljótlega. En eins og ég þegar hef skýrt frá, er formaður n. í samráði við mig að athuga um, hvaða bezta tíma er hægt að hafa til þess með hliðsjón af öðrum störfum, sem hér þarf að vinna að.