29.12.1958
Neðri deild: 47. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1956 í B-deild Alþingistíðinda. (2381)

Stjórnarskipti

Forsrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Þegar samstarf þeirra flokka, sem að fyrrverandi ríkisstj. stóðu, rofnaði um mánaðamótin nóv. og des., þá var það, að ég ætla, fyrst og fremst vegna mismunandi afstöðu þessara flokka til efnahagsmálanna. Ég hygg þó, að sá ágreiningur, sem þar kom fram, hafi ekki fyrst og fremst verið milli Framsfl. og Alþfl., heldur fyrst og fremst milli Framsfl. og fulltrúa Alþb. í ríkisstjórn. Ég tel þess vegna, að út af fyrir sig hefði vel verið hægt að hugsa sér samstarf með Framsfl. um lausn þessara mála.

Þegar Sjálfstæðisfl. tók að sér að reyna að mynda stjórn eftir ósk forseta Íslands, komst hann fljótlega að þeirri niðurstöðu, að hann teldi sér það ekki fært, bæði vegna ágreinings um efnahagsmál við einn af þingflokkunum og vegna ágreinings um kjördæmamálið við annan.

Hinn 18. des. s.l. fól forseti Íslands mér að reyna að mynda þingræðisstjórn. Ég leitaði til allra flokka um þetta og komst að þeirri niðurstöðu, að ágreiningurinn um lausn efnahagsmálanna væri því til fyrirstöðu, að tekizt gæti það samstarf, sem verið hafði á milli Alþb., Alþfl. og Framsfl. Ég taldi hins vegar, að form. Sjálfstfl. hefði komizt að þeirri niðurstöðu við sínar tilraunir, að meirihlutastjórn yrði ekki sett upp af hans hálfu á þann veg, sem hann hugsaði sér. Möguleikarnir, sem eftir voru að mínu áliti, voru þess vegna fyrst og fremst tveir: að minnihlutastjórn yrði sett á laggirnar eða utanþingsstjórn yrði komið á. Þjóðstjórnarsamstarf allra flokka var útilokað að mínu viti vegna þess, að Sjálfstfl. gerði það að skilyrði fyrir öllu stjórnarsamstarfi, að kosningar yrðu hafðar í vor og freistað að leysa kjördæmamálið áður, en Framsfl. gerði það að skilyrði fyrir sinni þátttöku, að bæði lausn kjördæmamálsins og kosningum yrði frestað til ársins 1960 eða í 11/2 ár.

Það má sjálfsagt um það deila, hvort hyggilega hafi verið farið að, eins og gert var. En þó tel ég, ef það er rétt hjá mér, að ekki hafi verið nema um þessa tvo kosti að ræða, annars vegar minnihlutastjórn einhvers flokks og hins vegar utanþingsstjórn, þá séu þó frekar líkur til þess, að minnihlutastjórn, sem hefur að baki sér meiri hluta Alþingis, geti þokað málum áfram í rétta átt heldur en utanþingsstjórn, sem enga slíka tryggingu hefur.

Ég þarf svo ekki raunar að þessu frekar orðum að eyða. Mér er það alveg ljóst, að þessi stjórn er eingöngu bráðabirgðastjórn til þess fyrst og fremst að freista að leysa vanda efnahagsmálanna núna um áramótin og í öðru lagi til þess að freista að leysa kjördæmamálið, því að mér virðist svo, og það kom raunar mjög greinilega fram í þeim umr., sem fóru fram fyrir þessa stjórnarmyndun, að kjördæmamálið stendur eins og fleinn í holdi stærstu þingflokkanna og raunar hinna tveggja líka. Við þurfum allir að fá lausn á þessu máli, einhverja þá lausn, sem geti kallazt varanleg lausn, a.m.k. um nokkurt árabil, svo að þetta mál verði ekki því til fyrirstöðu, að eðlilegt samstarf geti tekizt um lausn annarra bráðaðkallandi vandamála.