02.04.1959
Sameinað þing: 35. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1966 í B-deild Alþingistíðinda. (2403)
Varamenn taka þingsæti
Frsm. (Áki Jakobsson):
Herra forsetl. Kjörbréfanefnd hefur haft til athugunar kjörbréf Jónasar Árnasonar kennara í Neskaupstað, sem er svo hljóðandi:
„Landskjörstjórnin gerir kunnugt, að ár 1956, mánudaginn 9. júlí, kom landskjörstjórnin, eftir að boðað hafði verið til fundarins á löglegan hátt, saman í alþingishúsinu til að úthluta uppbótarþingsætum til jöfnunar milli þingflokka eftir alþingiskosningar 24. júní 1956.
Kosningu hafði hlotið sem 1. varalandskjörinn þingmaður Jónas Árnason kennari í Neskaupstað, en hann hlaut l. varauppbótarþingsæti Alþýðubandalagsins.
Landskjörstjórnin, 9. júlí 1956.
Jón Ásbjörnsson, Sigtryggur Klemenzson,
Einar B. Guðmundsson, Vilhjálmur Jónsson,
Vilmundur Jónsson.“
Nefndin er sammála um að mæla með því að taka kosninguna gilda og að kjörbréfið verði samþykkt.