29.01.1959
Efri deild: 59. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 411 í B-deild Alþingistíðinda. (242)
87. mál, niðurfærsla verðlags og launa o. fl.
Björn Jónsson:
Ég skal ekki fara út fyrir þann ramma, sem þingsköp ákveða um það, að menn megi bera af sér sakir. Það eru aðeins tvær setningar. Hv. 4. þm. Reykv. (EggÞ) ber það á mig, að ég hafi staðið hér upp á Alþ. í fyrravor og varið efnahagslögin þá þvert ofan í samþykktir alþýðusamtakanna, þar sem ég hef gegnt trúnaðarstörfum. Ef það er ekki á móti þingsköpum, þá lýsi ég hv. 4. þm. Reykv. hreinan ósannindamann að þessu.
Í fyrsta lagi stóð ég hér aldrei upp á Alþ. til þess að verja efnahagslögin á s. l. vori, en ég greiddi atkv. um þau í samræmi við þá samþykkt, sem löglega kosin nefnd af Alþýðusambandsþingi, sem hafði verið falið að fara með efnahagsmálin á milli þinga, hafði gert.