29.01.1959
Efri deild: 59. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 411 í B-deild Alþingistíðinda. (243)

87. mál, niðurfærsla verðlags og launa o. fl.

Eggert Þorsteinsson:

Ég vil aðeins út af þessum ummælum 8. landsk. taka það fram, að þegar ég á við meiri hluta samtakanna, eins og ég sagði áðan, þá á ég við þann meðlimafjölda Alþýðusambandsins, sem stóð að baki þeim fulltrúum í 19 manna nefndinni, sem greiddu atkvæði um þessi mál. (Gripið fram í.) Ég ætla að vona, að það standi, að meiri hluti þeirra umbjóðenda, sem greitt var atkvæði fyrir eða f. h. þeirra umbjóðenda, sem greitt var atkvæði í nítján manna nefndinni (Gripið fram í.), að þá sé ekki neinn vafi á, að þar stóð minni hluti að baki, sem varð þó í eins atkv. meiri hluta á fundinum.