20.03.1959
Efri deild: 92. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1977 í B-deild Alþingistíðinda. (2453)

Þinghé - árnaðaróskir

forseti (BSt):

Næsta fund get ég ekki boðað nú af þeirri ástæðu, að ég veit ekki um neitt mál, sem hægt er að taka fyrir. (Gripið fram í: Eitt mál.) Já, það bíður, af því að það er í frekari athugun. (Gripið fram á: Er gert ráð fyrir, að fundur verði eftir helgina?) Þar af leiðandi sé ég ekki, að það sé hægt að boða fund á mánudag út af neinu. (Gripið fram í: Það er nál. frá allshn. komið út.) Ekki er það hér. Því hefur ekki verið útbýtt: Þar af leiðandi má svo fara, að það verði ekki fundur í d, fyrr en eftir páska. Og ef svo fer, vil ég óska þeim, sem kynnu að fara úr bænum heim til sín, góðrar ferðar og öllum gleðilegrar páskahátíðar.