20.03.1959
Neðri deild: 99. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1978 í B-deild Alþingistíðinda. (2456)
Þinghé - árnaðaróskir
forseti (EOl):
Þar sem þetta verður að öllu forfallalausu síðasti fundur þessarar hv. þd. fyrir páskafrí, vil ég leyfa mér að óska öllum hv. þm. góðrar hátíðar og gleðilegrar og óska þeim, sem brott fara heim til sín, góðrar ferðar og góðrar hingað komu aftur. Ég vil leyfa mér að þakka öllum hv. þdm. fyrir ágætt samstarf og mikið umburðarlyndi við mig þennan tíma, og vonast til þess að, að loknum hátíðunum megum við sjást hér allir heilir á ný. Starfsfólki þingsins vil ég sömuleiðis óska gleðilegrar hátíðar.