12.05.1959
Efri deild: 120. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1979 í B-deild Alþingistíðinda. (2463)

Starfslok deilda

Forseti (BSt):

Ég geri fastlega ráð fyrir því, þótt einhver atvik geti orðið til þess, að svo verði ekki, að þetta verði síðasti fundur hv. d. á þessu þingi. Ég bið hv. d. um umboð til þess að undirskrifa síðustu fundargerðir deildarfundanna og skoða það samþykkt, ef enginn mælir því í gegn.

Nú þegar við erum að skilja hér í hv. d., finn ég ástæðu til þess að þakka yður öllum, hv. þdm., fyrir samveruna í vetur og ágæta samvinnu við mig sem forseta deildarinnar. Þótt allir eigi það þakklæti frá mér, þá vil ég þó sérstaklega þakka starfsmönnum d., sem hafa aðstoðað mig, þegar á hefur þurft að halda, hv. varaforsetum, sem hafa hlaupið í skarðið fyrir mig, stjórnað hér þingfundum, bæði snemma í vetur, þegar ég var fáeina daga erlendis til að sitja þar á fundi Norðurlandaráðs, og nú síðar í veikindaforföllum mínum, og skrifurum deildarinnar, sem nú eins og jafnan áður, síðan þessir hv. þm. komu í skrifarasæti, hafa rækt sitt starf með alveg sérstakri samvizkusemi. Það hefur varla komið fyrir, að þá hafi vantað í sæti sín, og alls ekki nema gild forföll hafi verið til þess.

Nú hefur Alþingi, eins og kunnugt er, samþykkt stjórnarskrárfrumvarp, og Alþingi hefur verið rofið frá og með 28. júní. Það er því óvist, hverjir af okkur, sem hér erum, eigum eftir að hittast hér á Alþingi eða í hv. d. framar. Ég vil því ekki einasta þakka hv. þdm. fyrir samveruna í vetur, heldur vil ég þakka yður öllum fyrir ágæt kynni, sem ég hef haft af öllum þm. hér í d. frá upphafi. Gildir petta jafnt um aldursforseta þingsins, sem kom á þing jafnt mér, og við höfum setið hér saman í öll þessi ár, — þau eru bráðum orðin 36, og þó að við höfum aldrei verið í sama flokki, þá man ég ekki til þess, að okkur hafi nokkurn tíma greint neitt á persónulega, þó að við að sjálfsögðu höfum oft verið sinn á hvoru máli og komið fyrir, að við höfum deilt málefnalega. Ég vil þakka honum alla samveru, ekki sízt þar sem hann hefur nú lýst því yfir, að hann komi ekki aftur hér á Alþingi, a.m.k. ekki eftir næstu kosningar, svo og öllum öðrum þdm., og gildir það þá einnig um þá, sem hafa ekki átt hér sætí nema það kjörtímabil, sem nú er að renna á enda.

Ég óska þeim hv. þm., sem heima eiga utan Reykjavíkur, góðrar heimferðar og heimkomu og yður öllum góðrar og gæfusamrar framtíðar.