13.05.1959
Efri deild: 121. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1981 í B-deild Alþingistíðinda. (2466)

Starfslok deilda

forseti (BSt):

Í gær gerði ég ráð fyrir, að það yrði síðasti fundur deildarinnar, sökum þess að ég víssi ekki um nein mál, sem hægt væri að taka á dagskrá deildarinnar. Ég vissi að sjálfsögðu um fyrra dagskrármálið, sem nú er á dagskrá, en ég hef minnt á það fyrr og því ekki verið sinnt, og bjóst hálfpartinn við, að það yrði ekkert um það á þessu þingi. En kosning í Norðurlandaráð er þó skylda hvers reglulegs Alþingis.