11.05.1959
Sameinað þing: 48. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1805 í B-deild Alþingistíðinda. (2481)

Almennar stjórnmálaumræður

Kjartan J. Jóhannsson:

Herra forseti. Við heyrum alltaf öðru hvoru hjáróma raddir um það, að Íslendingar séu og hljóti að verða áfram tvær andstæðar fylkingar dreifbýlis og þéttbýlis. Þetta er hin versta villa. Við erum öll í sama bát og vegnar ekki vel, nema við sjáum um, að jöfnuður haldist á milli sjávar og sveitar, dreifbýlis og þéttbýlis. Þetta ætti raunar að vera öllum sæmilega víðsýnum mönnum augljóst, að bændum, sem helzt þurfa að selja allar afurðir sínar fólkinu við sjávarsíðuna, getur ekki farnazt vel, nema fólkið komist svo vel af, að það geti keypt þær með þolanlegu verði. Og við, sem höfum þekkt mjólkurhungur og skort á öðrum landbúnaðarvörum, skiljum það áreiðanlega, að nauðsynlegt er, að bændur geti aukið og bætt bú sin. Við fögnum því, er þeir geta þannig gert þau arðmeiri og um leið tryggt okkur gegn því að eiga slíkan skort yfir höfði okkar og barna okkar.

Mér er ánægja að geta sagt frá því hér, að innan Sjálfstfl. hefur þessi skoðun alla tíð verið ríkjandi. Það er vafalaust einmitt m.a. þess vegna, sem Sjálfstfl. á jafnt fylgi að fagna til sjávar og sveita, í dreifbýli og þéttbýli. Þeir, sem hafa kynnzt þessu farsæla samstarfi innan flokksins, sjá, að það er báðum til skilningsauka og þjóðinni allri til hags. Aðrir stjórnmálaflokkar hér á landi eiga meginhluta fylgis síns ýmist í dreifbýli eða þéttbýli og hafa því stundum af þröngu flokkssjónarmiði freistazt til að mismuna öðru á kostnað hins, en slíkt er stórskaðlegt og hefnir sín, eins og öll rangindi gera fyrr eða síðar.

Þegar alvarlega var farið að kreppa að mörgum byggðarlögum á Vestur-, Norður- og Austurlandi, aðallega vegna langvinns aflabrests og fjárhagsörðugleika, er af honum leiddi, þá var það fyrir baráttu sjálfstæðismanna á Alþingi og áhugamanna heiman úr héruðunum, að loks var byrjað að velta fé til atvinnuaukningar og jöfnunar. Og það voru sjálfstæðismenn, sem lögðu á það mesta áherzlu, að þessu fé yrði varið til að stuðla að því, að keypt væru atvinnutæki eða byggð upp varanleg frambúðaratvinna, eftir því sem vænlegast væri á hverjum stað, gagnstætt því, sem því miður hafði of oft verið um svokallað atvinnubótafé áður, sem stundum fór mest í að moka snjó eða berja grjót upp úr klaka.

Þótt aflabrestur væri aðalundirrót neyðarástandsins, átti afturkippurinn, sem kominn var í atvinnulífið, sér sums staðar enn dýpri rætur. Á Ísafirði mátti t.d. rekja hann allt til þess, að Ísfirðingar fengu ekki leyfi til þess á árunum 1934–38 að kaupa sér stærri og fullkomnari fiskiskip. Þeir margsóttu um það, en fengu ávallt neitun. Sú ríkisstj., sem þá sat að völdum, hafði ekki trú á að auka útgerðina eða þá a.m.k. ekki nema með smáfleytum. Fyrst bar stjórnin við gjaldeyrisskorti, en þótt það mál væri þá leyst þannig, að greiða mátti skipin með þeim gjaldeyri, sem þau væntanlega öfluðu á síldveiðum, fékkst samt ekki leyfi til þess að kaupa þau. Á þessum árum og raunar miklu lengur var það allt að því trúaratriði bæði hjá Framsfl. og Alþfl., að skipin ættu að vera lítil. Ég get þessa hér vegna þess grobbs, sem nýlega var í blaði framsóknarmanna, Tímanum, um þessa löngu liðnu stjórn, sem að okkar reynslu var hin versta, sem verið hefur, a.m.k. þangað til hæstv. fyrrv. ríkisstj. kom til. Hvor verri var, er erfitt að dæma um vegna mismunandi aðstæðna. En hjá okkur vestra var reynslan afleit af báðum.

M.a. af þessu, að útgerðarmenn fengu ekki að bæta skipakost sinn og auka á þessum árum, leiddi svo það, að hagur útgerðarinnar vænkaðist ekki elns mikið næstu árin og annars staðar á landinu. Í stríðslok voru því ekki til nýbyggingarsjóðir eða varasjóðir, sem um munaði, hvorki til að endurnýja skipastólinn né mæta aflabrestinum. Varð útgerðin því ekki samkeppnisfær. Auk þessa urðu svo Ísfirðingar út undan næstu árin þar á eftir um fjármagn til atvinnutækja og verksmiðja, e.t.v. af því, að fjárskortur var heima fyrir, svo að ekki var unnt að afla þar mótframlags á móti þeim lánum, er þar fengust. Ég tek hér dæmi af Ísafirði, af því að þar er ég kunnugastur þessum málum allan þennan tíma, sem um er að ræða, en ég veit, að ástandið, aflaleysið og vandræðin voru svipuð víðast á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi. Af þessu er auðskilið, að það var nauðsynlegt og eðlilegt, að ríkissjóður hlypi undir baggann og liðsinnti þeim byggðarlögum, sem út undan höfðu orðið, um ný atvinnutæki.

Það er líka mjög ánægjulegt, að nú er farið að koma í ljós, að þetta atvinnuaukningarfé hefur víða komið að mjög miklu gagni, sums staðar alveg ótrúlega miklu. Það er meira að segja alveg vafalaust, að beinn sparnaður hefur verið að því fyrir ríkissjóð að veita þetta fé, t.d. þar sem svo hagaði til, að til voru sæmilegar íbúðir, skólar og önnur opinber mannvirki fyrir fólkið, en vantaði aðeins hjálp til þess að eignast atvinnutæki til að geta bjargað sér. Fyrstu árin var fénu skipt milli þeirra, sem mest kallaði að, að hjálpa að dómi tveggja embættismanna, ráðuneytisstjóra í stjórnarráðinu. En eftir að ráðh. í hæstv. fyrrv. ríkisstj. tóku úthlutunina í sínar hendur, lék grunur á, að ekki væri alltaf farið eftir þeim sjónarmiðum eða líkum á, að féð yrði að sem mestu gagni þeim byggðarlögum, sem það fengu, og um leið þjóðhagslega með því að stuðla að aukinni framleiðslu og betri nýtingu vinnuafls þjóðarinnar. Það styrkti gruninn, að ekki fengust upplýsingar um úthlutun fjárins, þótt eftir væri leitað. Við lögðum því til, nokkrir þm. Sjálfstfl., að þessum málum væri komið í fastara horf, ákveðin framlög í 5 ár, 15 millj. á ári, en úthlutun fjárins og stjórn sjóðsins annaðist 5 manna n. kosin hlutfallskosningu af Alþingi. Við töldum það tryggja sem réttlátasta skiptingu og a.m.k. koma í veg fyrir allt laumuspil með féð. Um þetta hefur ekki fengizt samkomulag fyrr en nú, að samkomulag er orðið um það milli Sjálfstfl., Alþfl. og Alþb., að n. skuli kosin á þessu þingi. Hún var einmitt kosin á fundi í Sþ. í dag.

Í ár var fjárhæðin lækkuð á fjárlögum úr 13.5 millj. í 10 millj. kr. að till. hæstv. fjmrh. Hann taldi þetta fært, því að vænta mætti, að nokkur lán fengjust úr sjóði atvinnuleysistrygginga til þeirra framkvæmda, er hér um ræðir. Hvort það reynist svo, verður reynslan að sýna. En það sem af er þessu ári, hafa úr sjóðnum verið ákveðnar lánveitingar til hafnarbóta og fleiri hafnarframkvæmda víðs vegar um land, tæpar 8 millj. kr.

Ég hef rætt þetta svona ýtarlega til þess, að það kæmi skýrt fram, að þetta fé er ekki hugsað af okkur sem nein ölmusa, heldur aðeins leiðrétting á misræmi, sem orðið var milli byggðarlaga. Þetta er fé, sem, sé því skynsamlega varið, á raunverulega að gefa þjóðarbúinu góðan arð. Þar, sem ég er nákunnugastur, þ.e. á Vestfjörðum, hefur að mestu tekizt vel um úthlutun fjárins, sem þangað hefur farið. Það hefur komið að góðu gagni, bætt atvinnuna, ekki aðeins í svip, heldur skapað grundvöll að betri og stöðugri vinnu, en áður var. Árangurinn hefur ekki heldur látið á sér standa. Fjárhagur byggðanna er að rétta við og almenningur á góðri leið með að komast úr örbirgð til bjargálna. Þarna vantar enn bagalega atvinnutæki og endurbætur á þeim, sem fyrir eru. En samt er nú þegar komið svo, að þetta fólk framleiðir verulega meira, en sinn hlut hlutfallslega af útflutningsverðmæti þjóðarinnar og gæti þó enn stóraukið framleiðsluna, ef fleiri tæki fengjust, án þess að fjölga fólki nema sem svarar eðlilegri fjölgun heima fyrir. Fyrir tveimur árum var frá litlu sjóplássi flutt út svo mikið magn sjávarafurða á hvern íbúa, að útflutningsverðmæti allrar þjóðarinnar hefði átt að vera um 4 milljarðar króna í stað tæplega eins það ár, ef aðrir landsmenn hefðu að þessu leyti staðið jafnfætis. Ég er ekki að miklast af þessu eða gefa í skyn, að önnur framleiðsla eigi ekki rétt á sér. En okkur er samt hollt að muna, að sjávarafurðir eru enn grundvöllur allrar annarrar framleiðslu og afkomu okkar allra.

Ég segi líka frá þessu af því, að sú leið, sem þarna hefur verið farin, er sú eina rétta leið, sem fær er til þess að bæta afkomuna, þ.e. með því að auka framleiðsluna, og það er rétt leið, þótt lánsfé þurfi til þess, ef þess er aðeins gætt að verja því til þeirra beztu framleiðslutækja, sem fáanleg eru á hverjum tíma. Það er eina leiðin, sem þarna var fær. Það var ekki hægt að bíða eftir, að fjármagn myndaðist heima fyrir. Það fór síþverrandi. Meðan verst gekk, fluttu þeir burtu, sem bezt voru stæðir og áttu því hægast með að flytjast.

Það er nú mjög kvartað um, að menn vilji ekki sækja sjóinn, og það er rétt, að oft er vöntun á sjómönnum. En þó er það svo hjá okkur, að enn eru til menn, sem vilja fara á sjó, en vantar skip, — menn, sem hafa viljað og vilja leggja aleigu sína í að kaupa þau, en ekki getað fengið þau enn. Við höfum vinnufúsar hendur, sem eru þess albúnar að vinna gull úr sjónum, ef við fáum aðeins að bæta við okkur þeim tækjum, sem enn vantar, svo að vel sé. Við ætlum ekki að vinna það með nýrri undraaðferð, heldur með gamla laginu, sem Vestfirðingar lengi hafa kunnað manna bezt.

Í vetur var hér mikil bölsýni, einkum á síðustu vikum hæstv. fyrrv. ríkisstj., sem sagði algert efnahagshrun yfirvofandi, ef hún fengi ekki sjálfdæmi eða einræðisvald. Alþýðusambandið vildi ekki hnífakaup óséð, og lái því hver sem vill. Eftir uppgjöf hennar lögðum við sjálfstæðismenn fram tillögur til að stöðva hrunið, sem stefna hennar var að leiða yfir þjóðina. Við fengum ekki stuðning allra flokka, en Alþfl. tók að sér að mynda stjórn með málefnalegum stuðningi okkar. Hinu bráða hruni var þannig afstýrt, fyrst og fremst vegna ábyrgrar málefnalegrar afstöðu sjálfstæðismanna. Vonandi fæst þannig tækifæri til að snúa efnahagsmálum okkar til betri vegar. Það hefur tekizt með öðrum þjóðum, og við getum það líka áreiðanlega, ef þjóðin vill.

Hv. framsóknarmönnum vil ég segja það, að það þýðir ekki fyrir þá að segja okkur Vestfirðingum, að nánari tenging byggðanna í stærri heildir muni skaða þær og vera til landauðnar. Reynslan hefur einmitt kennt okkur að þoka okkur saman. Þess vegna stofnuðum við fjórðungsþing Vestfirðinga, og þess vegna stofnuðum við samtök til þess að vinna að rafvæðingu Vestfjarða. Án þeirra samtaka hefði enn ekki verið gerð stórvirkjun á Vestfjörðum. Sama máli gegnir um samgöngumál og fleiri sameiginleg hagsmuna- og áhugamál. Í sumar verður unnið meira að vegagerð á Vestfjörðum, en nokkru sinni fyrr, einmitt vegna samtaka og samstöðu byggðanna heima fyrir.

Í kosningunum í sumar verður kosið um meira jafnrétti milli kjördæma, en verið hefur. En við megum ekki gleyma því, að það er líka kosið til þess að forða okkur frá hrunstefnu fyrrv. ríkisstj., til þess að fá styrka stjórn með raunverulegan meiri hluta þjóðarinnar að bakhjarli til þess að vinna að heilbrigðari þróun efnahagsmála, en verið hefur.

Tíma þeim, sem við sjálfstæðismenn höfum til umráða í kvöld, er nú lokið. Við erum sannfærðir um, að við erum að berjast fyrir réttlæti milli kjördæma og farsælli þróun efnahagsmála, en verið hefur í þeim átökum, sem fram undan eru. Við treystum þjóðinni og leggjum málin óhikað undir hennar dóm. Þökk þeim er hlýddu. — Góða nótt.