11.05.1959
Sameinað þing: 48. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1808 í B-deild Alþingistíðinda. (2482)
Almennar stjórnmálaumræður
Pétur Pétursson:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Það er sjálfsagt að viðurkenna það hreinskilnislega, að þær ráðstafanir, sem gerðar voru í vetur með l. um niðurfærslu verðlags og launa, leiddu af sér nokkra kjaraskerðingu fyrir alþýðu manna, a.m.k. í bili. En hitt er jafnsjálfsagt og sanngjarnt, að reynt sé að gera þjóðinni grein fyrir því, hvað hefði gerzt í efnahagsmálum hennar, ef stöðvunarleiðin hefði ekki verið farin. Ef það er hins vegar athugað, hvernig ástandið væri í dag og hvernig það mundi verða á næsta hausti, hefði hækkunarleiðinni verið fylgt áfram, held ég, að næsta lítið verði úr þeirri kjaraskerðingu, sem ýmsir tala nú mest um, samanborið við það, sem hefði dunið yfir. Gera má ráð fyrir, að örar víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags hefðu haldið áfram árið 1959 með auknum hraða. Auðvitað mundi þessi öra víxlhækkun ekki stöðvast á árinu 1960 af sjálfu sér, heldur þvert á móti. Í stað þess að verðbólguaukning hafði verið að meðaltali um 10% síðan 1946, mundi hún nú sjálfsagt verða um 30% á ári eða enn meira. Það er því augljóst, að seint á s.l. ári hlaut að vera komið að tímamótum í íslenzku efnahagslífi. Það varð með einhverjum ráðum að stöðva víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags. Þetta fann raunar allur almenningur og tók með skilningi þeim ráðstöfunum, sem gerðar voru eftir áramótin. En allar þessar ráðstafanir hafa miðað að því að stöðva þá óheillaþróun, sem við blasti.
Allir hugsandi menn hljóta að gera sér ljóst, hvað hefði skeð, ef þróunin hefði orðið sú, sem líkur bentu til að hún mundi verða. Allur sá aukni krónufjöldi, sem menn hefðu fengið í laun, hefði bókstaflega brunnið upp til agna á báli verðbólgunnar. Og ekki aðeins það, verðgildi peninganna hefði auðvitað enn rýrnað. Þeir, sem hafa safnað sér einhverju sparifé, hefðu bókstaflega horft á eftir því í verðbólgueldinn. Allir, sem hefðu átt þess kost, hefðu reynt að koma sparifé sínu í eitthvað fast. Þetta fé hefði þannig farið út úr bönkum og sparisjóðum og þessir aðilar átt í enn meiri erfiðleikum með að sinna hlutverki sínu að lána til framleiðslu og framkvæmda. Varla hefði reynzt auðvelt að semja við framleiðsluatvinnuvegina til langs tíma í einu. Útvegsmenn hefðu auðvitað séð, að vegna sífelldra verðhækkana og kaupbreytinga væri ekki hægt annað, en hafa samninga meira og minna lausa. Þeir hefðu ekki samið miðað við verðlag og kaupgjald, sem var ríkjandi, þegar samningurinn var gerður, heldur miðað við væntanlegt verðlag og kaupgjald á samningstímabilinu, sem hefði orðið til að auka enn hraða verðbólgunnar. Þeir, sem stunda landbúnað, mundu tæpast hafa unað því, að verðlagsgrundvöllur væri aðeins endurskoðaður einu sinni á ári. Nýjar álögur hefði auðvitað orðið að leggja á, eftir því sem styrkþörf atvinnuveganna varð meiri. Allt eftirlit með verðlagi í landinu hefði orðið illframkvæmanlegt eða óframkvæmanlegt vegna þess, hve allar verðlagsbreytingar hefðu orðið örar. Gjaldþol þegnanna hefði svo smáminnkað, sem hefði engu síður komið niður á bæjar- og sveitarfélögum, en ríkinu sjálfu. Þar hefði sjálfsagt komið, að erfiðleikar atvinnuveganna hefðu orðið svo miklir, að þeir hefðu farið að dragast saman. Þá fyrst hefði hættan orðið geigvænleg: atvinnuleysi á næstu grösum og ekki komizt fram hjá efnahagslegu hruni.
Þegar þessar staðreyndir eru athugaðar til samanburðar við þær ráðstafanir, sem gerðar voru, hlýtur hverjum manni að verða ljóst, að um litla kjaraskerðingu var að ræða um s.l. áramót, miðað við þá kjaraskerðingu, sem óhjákvæmileg hefði verið, hefði áfram verið haldið á sömu braut.
Það tekur auðvitað nokkurn tíma að stöðva verðbólguhjólið og enn lengri tíma að koma efnahagsmálunum í það horf, sem æskilegt má teljast. Núv. hæstv. ríkisstjórn hefur ekki miðað störf sín við það að leysa efnahagsvandamál þjóðarinnar til frambúðar. Hitt hefur henni tekizt að bjarga þjóðinni frá efnahagslegu hruni, sem búast mátti við að væri fram undan, með því að stöðva þá geigvænlegu verðbólgu, sem við blasti. Engri ríkisstj. eða þingmeirihluta tekst að leysa efnahagsvandamálið í landinu nema með samstarfi við vinnandi fólk og skilningi þess á vandamálinu. Allir, sem vinna gegn því, að slíkt megi takast, eru að vinna þjóðhættulegt starf.
Mér þótti stjórnarandstaðan í tíð fyrrv. ríkisstj. oft hafa allt of neikvæða afstöðu til ýmissa vandamála, sem höfðu bein áhrif á efnahagsafkomu þjóðarinnar. En mér virðist núv. stjórnarandstaða alls ekki taka jákvæðari afstöðu, nema síður sé. Það má kannske segja, að þessi afstaða sé mannleg, en stórmannleg getur hún ekki talizt.
Því hefur verið haldið fram í blöðum og raunar líka hér á hv. Alþ., að núv. hæstv. ríkisstj. og gjaldeyrisyfirvöld hafi gert einhverja meginbreytingu varðandi innflutning til landsins í þá átt, að nú skuli stórauka innflutning óþarfavarnings, en nauðsynjamuni vanta í stórum stíl. Hér er annaðhvort um að ræða meinlegan misskilning, sem þarf að leiðrétta, eða þá hitt, sem er raunar miklu líklegra, að af yfirlögðu ráði sé reynt að gera tortryggilega þá innflutningsáætlun, sem gerð hefur verið, og læða því inn í hugi manna, að þessum málum sé nú allt öðruvísi háttað en var s.l. ár. Innflutningsáætlunin hefur veríð gerð af viðskmrn., gjaldeyrisbönkunum og innflutningsskrifstofunni. Áætlunin er miðuð við það, að heildarvöruinnflutningur til landsins geti orðið jafnmikill og hann var á s.l. ári, eða tæpar 1.100 millj. kr. En undirstaðan undir þessum innflutningi er sú, að gert er ráð fyrir álíka miklum útflutningi og árið sem leið og auk þess sé notað nokkurt gjaldeyrislán. Má gera ráð fyrir, þar sem útflutningsáætlunin er mjög varleg, að gjaldeyrisafkoma geti eitthvað batnað á árinu, en á því var sannarlega ekki vanþörf. Fer það þó auðvitað eftir aflabrögðum og markaðsmöguleikum, hvort takast má að bæta gjaldeyrisstöðuna. Helzt þyrftum við að eignast ofur lítinn varasjóð til að mæta óviðráðanlegum erfiðleikum, svo sem aflabresti. Engin von er þó til, að það takist að mynda hann. En ef við gætum grynnkað eitthvað á þeim miklu lausaskuldum, sem hafa verið að keyra okkur í kaf, væri miklum áfanga náð.
Við skiptingu heildarupphæðarinnar milli flokka var við það miðað að fullnægja þörfum fyrir neyzluvörur og rekstrarvörur. Yfirleitt var miðað við gjaldeyrisúthlutunina 1958, en tillit var tekið til meiri háttar breytinga, hvort sem þær stöfuðu af breyttu verðlagi eða breyttri neyzlu. Áætlun um innflutning neyzluvara og rekstrarvara er því nokkurn veginn sú sama og reynslan varð 1958. Svokallaðar hátollavörur er gert ráð fyrir að flytja inn fyrir rúmlega 200 millj. kr. í ár, en voru fluttar inn í fyrra fyrir 179 millj. kr. Þegar l. um útflutningssjóð voru sett fyrir ári, var gert ráð fyrir, að þessi innflutningur yrði yfir 200 millj. kr. Allir vita, að til þess að útflutningssjóður fái áætlaðar tekjur, verður innflutningur hátollavara að vera svo mikill sem gert er ráð fyrir. Þeim ferst því sízt, sem stóðu að löggjöfinni um útflutningssjóð, m.a. hv. þm. Mýr., Halldóri E. Sigurðssyni, sem talaði hér áðan, að vera nú að tala um óþarfainnflutning, þegar þeir vita, að afkoma útflutningsatvinnuveganna er undir því komin, að útflutningssjóður hafi nægar tekjur til að standa við skuldbindingar sínar.
Af þessari sundurliðun og samanburði við s.l. ár ætti öllum að verða ljóst, að ekkert hefur verið gert — alls ekkert — í þá átt að minnka innflutning neyzluvara og nauðsynjavara. Það verður lítillega dregið úr innflutningi fjárfestingarvara, sem er í samræmi við þá stefnu hæstv. ríkisstj. að reyna nokkuð að draga úr eða fresta þeim fjárfestingarframkvæmdum, sem eru ekki beinlínis til aukningar útflutningsframleiðslunnar, og þannig stefna meira í jafnvægisátt. Að halda því fram, að hér hafi einhver meginbreyting átt sér stað frá því, sem verið hefur, er gert gegn betri vitund og í þeim eina tilgangi að koma inn þeirri hugsun hjá almenningi, að vöruþurrð kunni að vera yfirvofandi. Þetta er alrangt og lítilfjörlegt af stjórnmálamönnum að halda slíku fram.
Þegar umbótabandalag jafnaðarmanna og framsóknarmanna var myndað vorið 1956, töldu margir, að það afl væri að myndast í þjóðfélaginu, sem eitt væri nægjanlega sterkt til að berjast á móti íhaldi og kommúnisma. Þeir, sem þannig hugsuðu, hafa orðið fyrir vonbrigðum. Öllum hlaut að vera það ljóst, einnig framsóknarmönnum, að við jafnaðarmenn teldum það ekki æskilegt út af fyrir sig að fara í stjórn með kommúnistum. Þó var sú leið valin, m.a. vegna þess, að ýmsir gerðu sér vonir um, að Hannibal Valdimarsson og það fólk, sem honum fylgdi, mundi hafa nokkuð aðra skoðun á þjóðmálum, en Moskvakommúnistar. En eftir að fyrrv. stjórn var mynduð, kom fljótt í ljós, að framsóknarmenn töldu sig þurfa að taka að sér eins konar sáttasemjarastarf innan þeirrar ríkisstj. Og afleiðingin af því starfi varð svo sú, að býsna oft tóku framsóknarmenn afstöðu með Alþb. Kom þetta hvað berlegast í ljós, þegar kom til kosninga til Alþýðusambandsþings, og yfirleitt í málefnum verkalýðssamtakanna. Það er ekki jafnaðarmönnum að kenna, að samvinna umbótaflokkanna gat ekki átt sér stað í þessum efnum, heldur hinu, að framsóknarmönnum þótti heppilegra að hafa samvinnu við kommúnista. Þessi afstaða samstarfsflokksins hlaut að verða illa séð hjá jafnaðarmönnum, og til þess bar enga nauðsyn hjá forustumönnum Framsfl. að taka slíka afstöðu, ef þeim var umhugað um að halda áfram samstarfi, sem tekizt hafði milli flokkanna. Hér við bætist svo það, að formaður Framsfl. baðst lausnar fyrir ríkisstj. sína í byrjun desember, án þess að um stjórnarslitin væri höfð sérstök samvinna við Alþfl., sem þó hefði mátt búast við, þar sem ekki var um stórvægilegan ágreining að ræða milli flokkanna um lausn efnahagsvandamálanna. Jafnaðarmenn hljóta að líta á framkomu forustumanna Framsfl. sem ákveðna bendingu um það, að þeir óski ekki eftir áframhaldandi samvinnu.
Alþfl. hefur staðið við alla gerða samninga gagnvart samstarfsflokkum sínum á kjörtímabilinu. Það er ekki honum að kenna, að stjórn Hermanns Jónassonar fór frá völdum. Auðvitað er samvinna flokkanna ágæt hér og þar í kaupstöðum og kauptúnum úti um land, þar sem um er að ræða málefni viðkomandi byggðarlaga og þar sem þarf að leysa aðkallandi framfaramál í andstöðu við afturhaldsöflin. En í þjóðmálum hefur Framsfl. þótt henta að fórna samvinnunni við jafnaðarmenn af einhverjum ástæðum, sem mér eru ekki kunnar.
Ég vil taka það fram, að ég tel, að fyrrv. ríkisstj. hafi komið mörgum góðum málum áfram og áleiðis, einkum þegar þess er gætt, hvernig aðkoma hennar var, þótt henni hafi mistekizt að leysa efnahagsmálin og stjórnarskrárbreytinguna. Sérstaklega er athyglisvert, hvernig tókst að auka og efla atvinnulífið víða úti um land. Alþfl. hefur alltaf talið, að fólk þyrfti að hafa sem jafnasta atvinnu- og afkomumöguleika, hvar sem það byggi á landinu. Hann hefur talið, að bezta aðferðin til að sporna við fólksstraumnum utan af landsbyggðinni og hingað til þéttbýlisins væri einmitt að auka atvinnutæki og atvinnu úti um hinar dreifðu byggðir landsins. Aukin framleiðsla er víssulega undirstaða bættrar efnahagsafkomu, og drjúg er útflutningsframleiðslan í mörgum hinna smærri plássa. Það er því eðlilegt, að núv. hæstv. ríkisstj. hafi mikinn áhuga á því að halda áfram að auka uppbyggingu atvinnulífisins úti um landið. Vil ég nefna sem dæmi, að nú er í fyrsta skipti gert verulegt átak til að koma áfram ýmsum hafnarframkvæmdum úti um land, þar sem ákveðið er að verja a.m.k. 28 millj. kr. til slíkra framkvæmda umfram þær 12 millj. kr., sem gert er ráð fyrir á fjárlögum. En allir vita, að góðar hafnir eru undirstaða blómlegrar útgerðar. Atvinnuöryggi verður að tryggja í hinum ýmsu byggðarlögum landsins. Þessi trygging fæst bezt með því að efla framleiðsluna. Fyrir því er Alþfl. reiðubúinn til að gera allt, sem honum er unnt, til þess að auka atvinnutæki og efla framleiðslu, hvar sem er á landinu.
Jafnaðarmenn líta á það sem kjarna allrar sinnar baráttu að láta málefnin ráða hverju sinni og taka ábyrga afstöðu til mála. Ekki er ólíklegt, að stundum hefði Alþfl, getað haft í frammi meiri áróður og tekið ábyrgðarlausari afstöðu til einstakra mála. Má vera, að hann hefði getað aukið fylgi sitt eitthvað um stundarsakir með slíkum vinnubrögðum. En jafnaðarmenn munu aldrei fara inn á þá braut. Þeir líta á viðfangsefnin hverju sinni eins og þau raunverulega eru. Síðan vinna þeir að lausn þeirra eftir þeim leiðum, sem þeir telja hagkvæmastar fyrir þjóðfélagið í heild. Alþfl. hefur barizt fyrir mörgum sanngirnismálum, sem hafa snert beint og óbeint flesta Íslendinga. Hann telur, að árangurinn af baráttunni hafi orðið góður. Flokkurinn mun því halda áfram að nota sömu baráttuaðferðir og hann hefur gert til þessa. Árangurinn á að verða betri afkoma þjóðarinnar í heild og sem jafnastur hlutur allra landsmanna í þjóðarauði og þjóðartekjum. — Góða nótt.