12.05.1959
Sameinað þing: 49. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1820 í B-deild Alþingistíðinda. (2486)

Almennar stjórnmálaumræður

Bjarni Benediktsson:

Herra forseti. Góðir hlustendur. „Varðar mest til allra orða, undirstaðan sé réttleg fundin.“ Þessi fornu sannindi eiga ekki síður við nú, en þegar Eysteinn munkur Ásgrímsson mælti þau fyrir meira en 600 árum, og gildi þeirra er jafnt í þjóðmálum sem öðrum viðfangsefnum mannlegs lífs. Vandræðin, sem nú er við að etja, eiga einkum rætur sínar að rekja til þess, að þau einsdæmi gerðust um sinn, að horfið var frá undirstöðu réttra stjórnarhátta, þeirri, að sá, sem valdið hefur hlotið, sé reiðubúinn til að beita því í samræmi við skyldu sína og bera sjálfur þann vanda og þá ábyrgð, sem upphefð hans fylgir.

Þegar Framsfl. var í sókn til hinna æðstu valda á landi hér skömmu fyrir 1927, hélt málsnjallasti talsmaður hans þá, Tryggvi Þórhallsson, eitt sinn mikla ræðu hér á Alþ., þar sem viðkvæðið var orðtakið: Einsdæmin eru verst. — Nú, þegar Framsfl. rúmum 30 árum siðar gafst upp og veltist úr völdum hinn 4. des. s.l., varð það með þeim hætti, að alger einsdæmi eru. Forsrh., Hermann Jónasson, kom þá á fund sameinaðs Alþingis og sagði í þessum ræðustól: „Ný verðbólgualda er skollin yfir.“ Og hann bætti við: „Í ríkisstj. er ekki samstaða um nein úrræði í þessum málum, sem að mínu áliti geti stöðvað hina háskalegu verðbólguþróun, sem verður óviðráðanleg, ef ekki næst samkomulag um þær raunhæfu ráðstafanir, sem lýst var yfir að gera þyrfti, þegar efnahagsfrv. ríkisstj, var lagt fyrir Alþingi á s.l. vori.“ Þetta sagði Hermann Jónasson 4. desember.

Vegna þess ósamkomulags og úrræðaleysis gafst ríkisstj. Hermanns Jónassonar hreinlega upp, flúði af hólmi án þess að gera nokkrar till. til Alþ. um lausn þess vanda, sem stjórnin sjálf hafði efnt til og vitað um frá því í maí s.l. að óumflýjanlegur var. Eðlilegt er, að menn spyrji: Hvernig gátu þau ósköp að borið, að ríkisstj. skuli ekki leggja neinar tillögur fyrir sjálft Alþingi Íslendinga til varnar þjóðarhættu eða a.m.k. skýra þinginu frá, hvað í vændum væri, heldur láta sér það eitt nægja að koma til Alþ., eftir að voðinn er skollinn yfir, segjast þá engin úrræði hafa og hlaupa af hólmi?

Skiljanlegt er, að skoðanir reynist skiptar í ríkisstj. og hún klofni vegna ágreinings um mikilsverð mál. En þegar ágreiningur kom upp í stjórn Hermanns Jónassonar 1938 um lausn togaralaunadeilu, bar Hermann Jónasson sjálfur fram frv. um skipun gerðardóms til lausnar deilunni og tók því, þegar Haraldur Guðmundsson sagði sig úr ríkisstj., vegna þess að hann vildi ekki una þeirri meðferð. Á sama veg setti stjórn Hermanns Jónassonar gerðardómslögin í upphafi árs 1942 þrátt fyrir mótmæli Stefáns Jóh. Stefánssonar, sem þá var í stjórninni, þó að það ósamkomulag leiddi til afsagnar Stefáns. Hið sama var um nýsköpunarstjórn Ólafs Thors. Hún varð ósammála um gerð Keflavíkursamningsins haustið 1956. Ólafur Thors lagði þá samninginn fyrir Alþingi gegn mótmælum hinna kommúnísku meðráðherra sinna, og þegar Alþ. samþykkti samninginn, sögðu þeir af sér og stjórnin öll.

Guðmundur Í. Guðmundsson sagði frá því í gær, að Alþfl. hefði um mánaðamótin nóv.-des. s.l. viljað hafa sama hátt á og leggja málið fyrir Alþ. til ákvörðunar þar. Þetta er að sjálfsögðu hin rétta, þingræðislega aðferð. Ef stjórn verður ósammála, þá leggur forsrh. till. sinar um ágreiningsefni fyrir Alþ. og lætur meðráðh. sína um, hvort þeir una þeirri aðferð eða segja af sér þegar í stað eða eftir að Alþ. hefur tekið ákvörðun sína. Alþ. hefur ákvörðunarvaldið, en ríkisstj. ber skylda til að skýra því frá mestu vandamálum og leggja till. sínar um úrlausn þeirra fyrir það, svo að því gefist færi á að taka ákvarðanir sínar, áður en um seinan verður. Má þá oft svo fara, að málefnin leiði til myndunar annars meiri hl. en áður stóð að ríkisstj. Sá möguleiki léttir ekki af þeirri stjórn, sem hverju sinni situr, skyldunni til að leggja málin nógu tímanlega fyrir Alþ., hvað sem hennar eigin örlögum líður.

Hvernig stendur á því, að Hermann Jónasson, sem tvisvar áður hafði sýnt, að hann kunni á þessu rétt skil, hvort sem hann þá málefnalega hafði rétt fyrir sér eða ekki, skyldi nú fara allt öðruvísi að? Af hverju aðvaraði hann Alþ. ekki nú? Eða þó öllu heldur: Af hverju bar hann ekki fram sínar ákveðnu tillögur til lausnar þeim vanda, sem engum mátti vera ljósara, en honum að yfirvofandi var?

Hermann Jónasson hefur svarað þessu sjálfur í ræðu, sem hann hélt á flokksþingi Framsóknar í marz s.l., þar sem hann tók svo til orða:

„Ýmsir hafa sagt: Þið framsóknarmenn áttuð að bera fram á Alþ. till., sem þið báruð fram í ríkisstj. 17. nóv. s.l. — Þetta var ekki hægt. Stjórnarsáttmálinn gerir ráð fyrir, að leysa beri efnahagsmálin í samráði við vinnustéttirnar. Verkalýðshreyfingin hafði neitað að fallast á till. ásamt tveimur af stjórnarflokkunum. Að bera till. fram á Alþingi hefði verið brigð á stjórnarsáttmálanum.“

Þetta sagði Hermann Jónasson á flokksþingi Framsóknar. Ef hér er satt frá sagt af Hermanni Jónassyni, er um slík einsdæmi að ræða, að engin verri eru til í íslenzkum stjórnmálum. Með þessari yfirlýsingu gefur fyrrv. forsrh. til kynna, að hann hafi með samningum utan Alþ. skuldbundið sig til að hverfa frá réttum lýðræðisreglum og setja aðra aðila hærra, en Alþingi Íslendinga, sem á að vera rétt mynd af vilja þjóðarinnar sjálfrar og taka í hennar nafni ákvarðanir um úrlausn þjóðmála. Í afsökun Hermanns felst því ásökun gegn sjálfum honum um fullkomið glapræði og alvarlegt embættisbrot. Hitt er annað, að vafasamt er, hvort þessi skilningur Hermanns á stjórnarsáttmálanum fái staðizt. Nú er ekki tími til að ræða það, enda er það skilningur Hermanns sjálfs, sem að þessu sinni skiptir máli.

Í stjórnarsamningnum í júlí 1956 lofaði stjórn Hermanns Jónassonar þessu: „Mun ríkisstjórnin leggja sérstaka áherzlu á að leysa efnahagsvandamálin í náinni samvinnu við stéttasamtök vinnandi fólks.“

Svo stóð í þeim eftirminnilega samningi. Þá átti að taka upp nýja stjórnarhætti og víkja til hliðar nærri helmingi þjóðarinnar, enda voru ráð fulltrúa sjálfstæðismanna á Alþ. að engu höfð og þeim ekki gefnar hinar nauðsynlegustu upplýsingar um mál, fyrr en þær fengust fyrir milligöngu forseta Íslands, eftir að stjórn Hermanns Jónassonar var oltin úr völdum. En við myndun vinstri stjórnarinnar gleymdist að vísu, að tugþúsundirnar í Sjálfstfl. eru ekki síður vinnandi fólk, en aðrir landsmenn. Hefði því vafalaust verið hollast þegar af þeirri ástæðu að virða rétt þeirra, reyna ekki að láta annarlega aðila fá úrslitavöld um málefni, sem skylda ríkisstj. og Alþ. er að fjalla um og ráða til lykta.

Það er svo eitt dæmi um rökþrot vinstristjórnarherranna nú, að þeir skuli kenna sjálfstæðismönnum um kauphækkanir og verðbólguþróun á þeirra eigin valdatíma. Þetta gerði jafnvel sjálfur Hermann Jónasson, — sá sami, sem hældist í ágústlok í fyrra yfir, að búið væri að víkja sjálfstæðismönnum til hliðar.

Sjálfstæðismenn hafa ætið talið, að það væri í senn mesta mein verkalýðshreyfingarinnar og þjóðfélaginu stórhættulegt að færa á vettvang verkalýðshreyfingarinnar stjórnmálaátökin. Verkalýðshreyfingin á að vera fulltrúi allra sinna meðlima og jafnfær um að gæta hagsmuna þeirra, hverjir sem eru við völd á Alþ. og í ríkisstj., því að auðvitað verða allar ríkisstj. að hafa stöðugt samráð og samvinnu við ýmsa aðila, þ. á m. verkalýðshreyfinguna, eins og flestir alþm. ráðgast eftir föngum við stuðningsmenn sína og aðra, áður en þeir taka mikilvægar ákvarðanir. Slíkt samráð er sjálfsagt og þarf ekki sérstakra samninga við, enda var ætlunin 1956 öll önnur. Þá átti að draga valdið úr höndum hinna lögmætu aðila til annarra, sem ekkert umboð þjóðarinnar hafa í þeim efnum. Ef svo átti að fara að, hlaut óhjákvæmilega þar af að leiða, að ríkisvaldið hæfi íhlutun um, hvernig kosningum í þessum samtökum væri háttað, svo að tryggt væri, að talsmenn þessara samtaka hefðu a.m.k. raunverulegt umboð þeirra, sem þeir segðu sig tala fyrir. Þá var einnig nauðsyn, að tryggð væri skapleg meðferð mála hjá þessum samtökum, svo að þeim gæfist í raun og veru færi á að kynna sér, hvað til úrlausnar væri, og íhuga málin, svo að gagni kæmi. Meðferð bjargráðanna í maí fyrir tæpu ári sýndi þörfina á því, að það væru raunverulegir umboðsmenn stéttanna, sem segðu sitt álit, en ekki umboðslaus klíka, sem enga eða fáa hefur á bak við sig. Þá lét ríkisstj. sér nægja svokölluð meðmæli fulltrúa 1/5 hluta verkalýðsins, en hafði að engu till. og mótmæli hinna, er töluðu fyrir 4/5 hluta.

Ekki tók betra við á Alþýðusambandsþinginu í vetur. Ríkisstj. þóttist ekki geta gert neinar till. um lausn vandamálanna, fyrr en þetta þing hefði saman komið, og Hermann Jónasson hefur hvað eftir annað fært að fyrri samstarfsmönnum sínum, vegna þess að samkomudagur þingsins hafi dregizt úr hófi. Þegar sjálft þingið kom saman, lagði ríkisstj. till. sínar alls ekki fyrir það. Síðar hefur þó sannazt, að þá hafði bæði Framsfl. og kommúnistar lagt fram á ríkisstjórnarfundi till. sínar, Framsfl. strax 17. nóv., og var þá þegar ljóst, í hverju ágreiningurinn var fólginn. Ekkert hefði verið sjálfsagðara, úr því að búið var að lofa Alþýðusambandinu, að við það skyldi höfð samvinna, og úr því að eftir þingi þess hafði verið beðið, en að leggja málin, eins og þau voru, fyrir sjálft Alþýðusambandsþing, sem kom ekki saman fyrr en 25. nóv., gera því grein fyrir vandanum og ágreiningsefnunum og láta það kveða upp úr um sínar óskir eða fyrirskipanir, ef ríkisstj. vildi skilja samþykktir þess svo. En á þennan veg var alls ekki farið að.

Forsrh. fór að vísu á fund Alþýðusambandsþings, en ekki til þess að segja frá því, hvernig málum í raun og veru var komið, og leggja fram till. sinar, heldur til að biðja um frest: Tilgangurinn var sá einn að komast fram hjá Alþýðusambandsþinginu, án þess að það fengi vitneskju um eðli vandans eða ágreininginn um lausn hans, heldur gæfi það öðrum umboð til að fara með málin af sinni hálfu. Þetta neitaði Alþýðusambandsþingið að gera. Afleiðing þess varð svo sú, að Hermann Jónasson gafst upp. Sjálft Alþýðusambandsþingið afgreiddi síðar á einni kvöldstund eða næturvöku till. í efnahagsmálum, án þess að nokkurt færi væri gefið á að ræða þau mál í heild eða fulltrúarnir fengju nokkur þau gögn, sem viðhlítandi væru, enda voru samþykktir þess slíkar, að þá, sem að þeim stóðu, greinir nú mjög á um, hvað í þeim hafi fólgizt, og gera sér raunar allir grein fyrir, að einungis var um óraunhæfar áróðurssamþykktir að ræða, gerðar í flokkspólitískum tilgangi af þeim, sem þarna slógu sér saman um myndun meiri hl.

Því fer þess vegna fjarri, að nokkur raunveruleg samvinna hafi verið höfð við verkalýðinn og samtök hans um lausn efnahagsmálanna af stjórn Hermanns Jónassonar. Loforðið um vaxandi áhrif stéttasamtaka vinnandi fólks á stjórn málefna ríkisins reyndist alger blekking. Framkoman gagnvart Alþýðusambandinu við setningu bjargráðanna og ekki siður á sjálfu Alþýðusambandsþinginu sannar, að þessi miklu samtök átti að nota sem skálkaskjól fyrir raunveruleg yfirráð annarra, en alls ekki færa þau sjálf til aukins vegs eða virðingar. Hér hefur því það tvennt að höndum borið, að Alþ. er óvirt og frá því tekin sú málsmeðferð, sem því ber, og aðilunum, sem í staðinn áttu að koma, sýnd svívirðing, með því að ljóst er, að efndir loforðsins um samvinnu við þá eru látalæti ein.

Það er lítil valdaklíka, sem vildi stjórna bæði á bak við Alþ. og stéttasamtök, sem ber ábyrgð á, að svo misfór með mál þjóðarinnar sem raun ber vitni. Gleggsta sönnun þess er sú, að bráðabirgðalausn efnahagsmálanna fékkst á tiltölulega skömmum tíma, eftir að leitað hafði verið til Alþ. sjálfs og það með venjulegri málsmeðferð í samráði milli flokka og annarra aðila íhugað málin, svo sem ætlazt er til. Með því tókst að forða frá þeim vanda, sem Hermann Jónasson 4. des. taldi stjórn sinni óviðráðanlegan, og lægja ölduna, sem hann sagði þá skollna yfir.

Það er svo mál fyrir sig, hvernig á því stendur, að jafnreyndur stjórnmálamaður og Hermann Jónasson skuli hafa leiðzt út í þá óhæfu, að hann í senn óvirðir Alþingi Íslendinga og svíkur stéttasamtök vinnandi fólks í landinu. Ein af skýringunum er sennilega sú, að núverandi valdamenn Framsóknar eru þreyttir menn. Þeim brennur ekki hinn sami eldmóður í brjósti og Tryggva Þórhallssyni, Jónasi Jónssyni og félögum þeirra, er þeir náðu hér völdum 1927. Framsóknarmenn hafa síðan lengst af verið í stjórn og þeir Hermann Jónasson og Eysteinn Jónsson lengur, en nokkrir aðrir. Allan þennan tíma hafa þeir þótzt vera að berjast fyrir viðreisn sveitanna og gegn fólksflótta þaðan.

Árangurinn blasir við, sá, að nú er meiri hluti landsfólksins saman kominn í Reykjavík og hinu væntanlega Reykjaneskjördæmi. Geta framsóknarmenn vissulega ekki kennt hinni fyrirhuguðu kjördæmabreytingu um þá örlagaríku fólksflutninga. Fylgi þeirra eigin flokks hefur ekki farið betur. Í landskjörinu 1930 fékk Framsfl. hér um bil 31.5% kjósenda, 1931 nær 36% kjósenda. Við síðustu kosningar fékk flokkurinn ekki nema liðlega 15% kjósendanna. Að vísu átti hann þá raunverulega mun meira fylgi, en í stað opinnar, ærlegrar baráttu fyrir ákveðinni stefnu í þjóðmálunum brá Framsfl. þá á það ráð að svipta sjálfan sig raunverulega hér um bil fjórðungi fylgis síns í því skyni að geta vélað sér út fleiri þingfulltrúa, en flokkurinn hefði fengið, ef allt hefði verið með felldu. Í þessu athæfi felst í senn, fordæming á kosningakerfinu, sem þvílíkt athæfi gerir mögulegt, og þeim flokki, sem vélabrögðunum beitir. E.t.v. færa þeir sjálfum sér til afsökunar, að það sé ekki uppörvandi í stjórnmálabaráttu að horfa á fylgi flokks sins hrynja, svo sem framsóknarforingjarnir hafa þurft að gera síðustu áratugi. En ekki bætir úr skák að beita slíkum aðferðum að rýra fylgi flokksins enn meir í því skyni að tryggja völd sjálfra sín.

Valdabrask er komið í stað stjórnmálabaráttu. Með skefjalausri misnotkun þess auðvalds, sem myndazt hefur í skjóli almannasamtaka og stjórnmálavalda, sem fengin eru í skjóli úreltrar kjördæmaskipunar, hafa þessir menn reynt að búa sér þann valdahring, sem yrði ekki rofinn. Þeir hafa sjálfir fundið, að Alþ. hefur sett ofan við það að vera hvergi nærri rétt mynd þjóðarviljans. Þess vegna átti að leita styrks hjá annarlegum samtökum og þau taka sér það verkefni, sem löggjafarþingi frjálsrar þjóðar einu er ætlandi. Eins og komið var, má segja, að frá þeirra sjónarmiði hafi verið rökrétt að gera þessa tilraun.

Það var að sjálfsögðu ekki mannvonzka, sem réð myndun ríkisstj. Hermanns Jónassonar 1956. Valdamenn Framsóknar voru orðnir fangar sinna eigin starfshátta og þeirrar skipulagningar, er þeir hugðu að nægja mundi til að tryggja þeim völdin. Með þeim anda, sem ríkti síðustu samstarfsár framsóknarmanna og Sjálfstæðisflokks, var sýnt, að það samstarf gat ekki haldizt, eitthvað nýtt varð að taka við. Framsfl. var þá meira eða minna sannfærður um, að með Sjálfstfl. væri ekki vinnandi, og hafði leynt og stundum ljóst samstarf við hörðustu stjórnarandstæðinga, eins og í verkfallinu mikla 1955, til að gera starf þáverandi ríkisstj. ómögulegt.

Í stað þess, að þeir þá gengu til samstarfs við sjálfstæðismenn með hangandi hendi og raunar sífelldum árásum, þá reyndu valdamenn Framsóknar í því samstarfi, er hófst með stjórnarmyndun Hermanns Jónassonar 1956, að leggja fram allt hið bezta, er þeir gátu. Þeir hafa sjálfir hælt sér af, að flokkur þeirra hafi einn verið heill og óskiptur í því samstarfi og blað flokksins stutt það einum rómi. Er það vissulega annað, en áður var. En þjóðin hefur nú séð, hvað það er, sem Framsókn hefur bezt að bjóða. Raunasaga áranna frá 1956 til uppgjafarinnar 4. des.1958 er um það órækt vitni. Rofin heit, brot á réttum stjórnarháttum, úrræðaleysi og uppgjöf að lokum eru vörðurnar, sem minna á, hvar sá vegur lá.

Nú eftir á tala framsóknarmenn mikið um það, að þörf hefði verið á, að þjóðstjórn tæki við af Hermanni Jónassyni. Óneitanlega þaut öðruvísi í skjá Hermanns, þegar hann á Hólmavík síðast í ágúst hældi sér af því sem fyrsta og mesta afreki stjórnar sinnar, að hún hefði vikið til hliðar nær helmingi íslenzku þjóðarinnar. Ekki minntust framsóknarmenn heldur á það einu orði í samtölum okkar Ólafs Thors við þá Hermann Jónasson og Eystein Jónsson í desember um hugsanlega stjórnarmyndun, að þjóðstjórn væri úrræði þeirra. Sú hugmynd kom ekki upp fyrr en sýnt var, að Framsókn hafði einangrað sjálfa sig og sett sig úr leik. Þá var ekki lengur verið að tala um mennina, sem átti að víkja til hliðar. Þá átti það að vera orðin höfuðskylda þeirra að hlaupa nú undir bagga Framsóknar.

Það er rétt, að enginn af þm. þjóðarinnar má skorast undan þeim skyldum, sem þjóðarnauðsyn hverju sinni leggur honum á herðar. En nú er ekki um það að efast, að þjóðarnauðsyn er fyrst og fremst sú, að kjósendur fái sjálfir að kveða upp sinn dóm, segja til um, hvernig þeir telja að til hafi tekizt og hvaða stefnu skuli fylgja í framtíðinni. Þær ráðstafanir, sem gerðar voru í vetur í efnahagsmálum, voru einungis til þess að lægja ölduna, sem risin var vegna aðgerðaleysis stjórnar Hermanns Jónassonar. Það tókst í bili, og með því vannst svigrúm til þess, að þjóðin sjálf fái að kveða á um meðferð eigin mála.

Jafnframt er óhjákvæmilegt að koma fram kjördæmabreytingu, sem allir gerðu sér ljóst eftir kosningarnar 1956 að var óumflýjanleg, Framsfl. ekki síður en aðrir a.m.k. í orði, þar sem hann þá lofaði samstarfsflokkum sínum að reyna að ná samkomulagi við þá um nýja skipan þessara mála á kjörtímabilinu. Það loforð var ekki efnt frekar en önnur. Um það mál hefur nú tekizt samkomulag milli yfirgnæfandi meiri hluta alþm. Þjóðin segir sinn vilja við kosningarnar, sem nú fara í hönd. Um úrslitin þá efast enginn, þó að sumir láti öðruvísi. Jafnvel Hermann Jónasson varð að játa í gær, að Framsókn hefði enga von um að fá sjálf meiri hl. við kosningarnar, sem nú fara í hönd. Vilji þjóðarinnar í þessu máli er ótvíræður og mun koma fram við kosningarnar í sumar, þegar tekin verður afstaða til þessa máls í samræmi við þær reglur, sem stjórnarskrá lýðveldisins Íslands setur um meðferð slíkra mála. Tyllitillögur Framsóknar nú og falsrök hennar munu engu breyta þar um, enda má öllum vera það ljóst, að Alþ. verður þá fyrst hafið til sinnar fornu virðingar og þeirra valda, sem því að réttu ber, þegar það er rétt mynd þjóðarviljans. Þá er fundin sú rétta undirstaða, sem gerir mögulega rétta stjórnarhætti og útrýmir valdabraskinu. Þá er fundin sú undirstaða, sem á verður reist framtíðarheili íslenzku þjóðarinnar. — Góða nótt.