12.05.1959
Sameinað þing: 49. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1845 í B-deild Alþingistíðinda. (2490)

Almennar stjórnmálaumræður

Sigurður Ó. Ólafsson:

Herra forseti. Háttvirtu áheyrendur. Framsóknarmenn fjölyrtu mjög um það fyrir kosningarnar 1956, að ef Hræðslubandalagið fengi meiri hluta á Alþingi, þá væri mögulegt að útiloka Sjálfstfl, frá öllum áhrifum á stjórn landsins. Með því væri allur vandi leystur. Efnahagsvandamálin yrðu þá leyst, ekki með uppbótum og niðurgreiðslum eins og hingað til, heldur eftir nýjum leiðum með varanlegum aðgerðum. Þetta var m.ö.o. aðaluppistaðan í áróðri Framsóknar fyrir kosningarnar, og þeir voru búnir að segja þetta svo oft, að helzt leit út fyrir, að þeir væru sjálfir farnir að trúa sínum eigin ósannindum. Og það munu hafa verið ófáir kjósendur, sem í fullri alvöru lögðu trúnað á fagurgala og blekkingatal Hræðslubandalagsins. því var trúað af mörgum, að vinstri flokkarnir væru einir færir um að leysa vanda efnahagsmálanna, sem reyndar var sagður miklu meiri en hann var, og einnig þau önnur vandamál, sem fyrir lágu. Og í þessari trú köstuðu margir atkv. sínu á Hræðslubandalagið, sem annars hefðu ekki gert það.

En nú er öllum ljóst, hverjar efndir urðu á öllum loforðum þessara manna. Vinstri stjórnin var mynduð með þátttöku kommúnista í júlí 1956. Strax hófst stjórnin handa með því að fá erlenda sérfræðinga til að gera upp þjóðarbúið. Álit þeirra og till. fengust aldrei birtar, þrátt fyrir ítrekaðar óskir og kröfur sjálfstæðismanna þar um. Gizkað var á, að álit og till. sérfræðinganna hefðu ekki farið saman við það, sem vinstri flokkarnir og sérstaklega Framsókn höfðu haldið fram um ástand efnahagsmálanna, og hafi verið um tillögur um varanleg úrræði að ræða, þá hafi þær ekki farið saman við vilja vinstri stjórnarinnar í þeim málum. Vandi efnahagsmálanna var því ekki leystur á árinu 1956 eftir nýjum leiðum. En í lok þess árs kom hin svokallaða jólagjöf til þjóðarinnar frá ríkisstj., 300 millj. kr. nýir skattar. Það voru úrræðin á því ári. Árið 1957 leið, án þess að hin nýju úrræði kæmu fram. Allt rak á reiðanum þar til á miðju ári 1958, að bjargráðin birtust, bjargráðin, sem í einu vetfangi lögðu 790 millj. kr. nýja skatta á þjóðina á ári.

Þetta voru efndir hinna miklu loforða vinstri stjórnarinnar. Þannig var farið að því að leysa vanda efnahagsmálanna, sem lofað hafði verið að gera, án þess að þjóðin fyndi til eða um neina verulega kjaraskerðingu yrði að ræða. Með bjargráðunum var gengið fellt, þó að það héti öðru nafni. Lagðir voru á stórkostlegir nýir tollar og skattar, sem komu hart niður á einstaklingum og öllum atvinnurekstri til lands og sjávar. Sjávarútvegurinn fékk 55% álag á allar erlendar rekstrarvörur sínar. Landbúnaður fékk einnig sínar gjafir. Má t.d. benda á, að dráttarvélar, sem bændur áttu þá í pöntun og höfðu greitt að fullu fyrir fram fyrir mörgum mánuðum, hækkuðu nú allt í einu um 10 –20 þús. kr. vegna þessara ráðstafana vinstri stjórnarinnar. Allir varahlutir til véla, olíur og benzín, fóðurbætir og tilbúinn áburður allt stórhækkaði í verði. Þó kom hækkunin á tilbúna áburðinum ekki fram á árinu 1958, vegna þess að bændur voru þá búnir að kaupa hann, áður en bjargráðalögin komu til framkvæmda. En á þann áburð, sem notaður er á þessu ári, kemur hækkunin fram, en sú hækkun er nú fyrir forgöngu sjálfstæðismanna á Alþingi greidd niður að miklu leyti.

En þrátt fyrir allar þessar gífurlegu skattahækkanir og gengisfellingu, sem bjargráðin höfðu í för með sér, var hér aðeins um að ræða bráðabirgðaúrræði. Vinstri stjórnin tilkynnti strax, að nýjar aðgerðir yrðu að koma með haustinu.

Öllum er nú kunnugt um, hvernig fór. Bjargráðin höfðu, sem fyrir fram var reyndar vitað, stóraukna verðbólgu í för með sér. Nóvembervísitalan varð 202 stig, hækkun í einu um 17 stig. Vitað var, að þessi þróun héldi áfram, því að fyrir lágu upplýsingar um, að vísitalan mundi verða 270 stig í nóvember 1959 eða enn hærri. Um ástandið í heild sagði efnahagsmálaráðunautur vinstri stjórnarinnar í október:

„En hitt verður þá jafnframt að hafa í huga, að það, sem nú skiptir mestu, er stöðvun verðbólguþróunarinnar. Takist sú stöðvun nú, eru möguleikar á því að ráðast að öðrum þáttum efnahagsvandamálanna síðar meir. Takist hún ekki, verður ekki við aðra erfiðleika ráðið, hvorki nú sé síðar.“

En vinstri stjórnin reyndist ekki þeim vanda vaxin að fara að þessum ráðum. Hún var sjálfri sér sundurþykk, ósammála og ráðalaus og hrökklaðist frá völdum í byrjun desember. Þannig endaði vinstra ævintýrið með algerri uppgjöf vinstri flokkanna við að leysa þau vandamál, sem við var að etja.

Hermann Jónasson sagði í ræðu sinni á Alþ., þegar hann baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt, að skollin væri á dýrtíðaralda og það væri ekki á valdi stjórnarinnar að leysa vanda efnahagsmálanna. Okkur sjálfstæðismönnum kom þetta ekki á óvart. Við höfðum ávallt vitað og sagt, að vandi efnahagsmálanna yrði ekki leystur með neinum töframeðulum. Þau töframeðul eru ekki til. Á því sviði gildir aðeins hið sígilda lögmál að eyða ekki meiru, en aflað er.

En fátt er svo með öllu illt, að ekki boði nokkuð gott. Verður þetta sagt um vinstri stjórnina og starfsferil hennar? Þrátt fyrir allt hygg ég, að svo geti verið. Þeir, sem trúnað hafa lagt á fullyrðingar vinstri flokkanna um, að þeir einir væru færir um að stjórna landinu og fyrsta boðorðið væri að útiloka Sjálfstfl. frá öllum áhrifum, flokk, sem hefur rúmlega 42% atkvæða allra landsmanna á bak við sig, ættu að vera reynslunni ríkari. Það getur verið dýrt að láta blekkjast af óvönduðum áróðri. En stundum getur það orðið nauðsynleg reynsla. Þá reynslu hefur íslenzka þjóðin nú fengið af vinstri stjórninni, og ég hygg, að hún láti sér þá reynslu að kenningu verða.

Framsóknarmenn gera nú tilraun til að leiða huga þjóðarinnar frá sinni eigin uppgjöf í efnahagsmálunum. Þeir kæra sig ekki mikið um að tala um vinstri stjórnina, fall hennar og viðskilnað. Nú hafa þeir fengið annað að tala um, þar sem er kjördæmamálið. Um það mál eru nú hafðar í frammi slíkar blekkingar, að slíkt er áður óþekkt.

Frv. það um kjördæmabreytingu, sem nú hefur náð samþykki á Alþ., felur tvennt í sér: í fyrsta lagi að leiðrétta að nokkru það misræmi, sem nú er orðið á kosningarrétti manna eftir því, hvar þeir eru búsettir á landinu, og er það gert með því að fjölga þingmönnum þar, sem fjölmenni er mest, og í öðru lagi að sameina núverandi kjördæmi, að frátalinni Reykjavík, í stærri heildir og mynda með því kjördæmi með 5–6 þm., sem kosnir skulu hlutfallskosningu.

Framsóknarmenn berjast nú með miklu offorsi á móti stækkun kjördæmanna. Að öðru leyti ber ekki mikið á milli. Þeir vilja hafa 60 þm., þar af 12 kjörna í Reykjavík. Þeir vilja fjölga þm., þar sem fólksfjölgunin hefur orðið mest, og gera því till. um að taka upp ný einmenningskjördæmi í Kjósarsýslu, Keflavík, Kópavogi, Akranesi og gera Akureyri að tvímenningskjördæmi með hlutfallskosningu. Þeir vilja hafa hlutfallskosningar í öllum tvímenningskjördæmum. Og þeir vilja hafa 10 uppbótarþingmenn. En þeir vilja ekki, að kjördæmin séu stækkuð, og umhverfast gersamlega, þegar þeir fara að tala um þá hlið málsins.

Hv. 1. þm. Árn., Ágúst Þorvaldsson, talaði hér í þessum umr. í gærkvöld. Hann ræddi nær eingöngu um kjördæmamálið og á sama hátt og allir framsóknarmenn gera nú. Aðalkjarni máls hans var þessi: Hin fornu kjördæmi verða lögð niður. Grundvellinum er kippt undan héruðunum. Samband kjósenda og þingmanna rofnar. Raddir byggðarlaganna heyrast ekki framar á Alþingi. Hægt hefði verið að lagfæra misræmi á kosningarrétti fólksins án þess að ræna strjálbýlið rétti sínum. — Þetta þýðir umbúðalaust, að fólkið sé svipt kosningarrétti og kjördæmin lögð niður, enginn þm. strjálbýlisins framar til.

En af hverju stafar þessi ofsi framsóknarmanna í þessu máli, — ofsi, sem leiðir menn út í svo öfgafullan og fjarstæðukenndan málflutning sem hér á sér stað, og við hvaða rök hefur þessi málflutningur að styðjast? Vegna þess að ég vitna hér sérstaklega í ræðu hv. 1. þm. Árn., Ágústs Þorvaldssonar, sem hann hélt hér í gær, leyfi ég mér að minnast á Suðurlandskjördæmið, eins og það á að verða samkvæmt fyrirhugaðri breytingu, því að þar erum við báðir kunnugastir. Kjördæmið mun ná yfir hinar þrjár sýslur Suðurlandsundirlendisins ásamt Vestmannaeyjakaupstað. Hvernig er nú félagsskap og atvinnu manna háttað á þessu svæði? Benda má á Búnaðarsamband Suðurlands. Það nær nákvæmlega yfir þetta sama svæði að Vestmannaeyjum meðtöldum. Þessi félagsskapur sunnlenzkra bænda kýs 5 fulltrúa á búnaðarþing með hlutfallskosningu. Ég hef ekki heyrt þess getið, að framsóknarmenn hafi haft neina tilburði í frammi um að kljúfa þetta sambandssvæði og gera það t.d. að fimm einmenningskjördæmum. E.t.v. hafa þeir það samt bak við eyrað. En ég get ekki stillt mig um að minna á ummæli fyrrv. landbrh., Hermanns Jónassonar, sem hann viðhafði við opnun hinnar stóru og myndarlegu landbúnaðarsýningar, sem haldin var á vegum Búnaðarsambandsins á s.l. hausti. Hann sagði eitthvað á þá leið, að slíkt stórvirki, sem þessi sýning væri, væri ekki hægt að halda, nema að henni stæðu öflug félagssamtök, eins og hér ætti sér stað. Aðeins vegna þess, að þetta stóra samband væri ein heild, væri þessi sýning framkvæmanleg. Getur hv. 1. þm. Árn. tekið undir þessi ummæli formanns Framsfl.?

Við skulum þá einnig víkja að atvinnuháttum á þessu svæði. Mjólkurbú Flóamanna er eign bænda í þeim þremur sýslum, sem mynda eiga Suðurlandskjördæmi. Sláturfélag Suðurlands hefur starfsemi sína á öllu þessu svæði. Eru líkindi til þess, að þessi samvinna bændanna á Suðurlandi spillist, þó að sýslurnar verði gerðar að einu kjördæmi? Mundu ekki allir 6 þm. kjördæmisins styðja að því á Alþ., að vegakerfið t.d. á öllu svæðinu væri aukið og brýr byggðar? Skyldi verða nokkuð erfiðara að styðja áframhaldandi hafnargerð í Þorlákshöfn eftir breytinguna eða byggingu sjúkrahúss Suðurlands? Nei, vissulega ekki. Þvert á móti mundi öll aðstaða þessa kjördæmis styrkjast við að sameinast í eina heild. Kjósendur ættu kost á að tala við 6 þm. sína í stað eins eða tveggja nú og aðstaða þm. mundi styrkjast við það að verða fleiri í stærra kjördæmi.

Þó að ég hafi hér aðallega minnzt á Suðurlandskjördæmi, þá á vitanlega hið sama við um hin önnur kjördæmi landsins. Og ég vil nú spyrja: Er það sama og að leggja kjördæmin niður að sameina þau og stækka? Er með því verið að svipta fólkið úti um land kosningarrétti? Er með þessu verið að tortíma efnahagslegum og andlegum verðmætum héraða landsins? Það þarf vissulega kokhreysti til að halda slíku fram, og ekki á færi annarra en forhertustu framsóknarmanna að gera slíkt, — manna, sem finna, að þeir berjast vonlausri baráttu á móti réttlætismáli, sem yfirgnæfandi meiri hl. þjóðarinnar krefst að nái fram að ganga.

Nei, það ætti öllum að vera ljóst, að fyrirhuguð breyting á kjördæmaskipuninni: að sameina núverandi kjördæmi í stærri heildir með 5–6 þm. — verður til bóta, hvort heldur miðað er við hina einstöku kjósendur eða kjördæmið í heild. 5–6 þm. hafa ólíkt sterkari aðstöðu á Alþ. að koma fram hagsmunamálum kjördæmisins en 1 eða 2 áður. Þeir verða nú t.d. oft úr þremur flokkum og hafa því möguleika á að tala máli kjördæmisins hver í sínum flokki. Um þetta ættu ekki að vera skiptar skoðanir. En framsóknarmenn eru á öðru máli. Þeir vinna nú eftir annarlegum sjónarmiðum í þessu máli sem mörgum öðrum.

Og að lokum þetta: Við breytingu á kjördæmaskipuninni gat sú hætta vofað yfir, að þéttbýlið heimtaði sinn rétt á kostnað strjálbýlisins. Þessari hugsanlegu hættu hefur verið afstýrt. Kjördæmamálið er leyst á þann hátt, að strjálbýlið heldur sinni þingmannatölu að fullu, sínum fulla rétti, sem það áður hafði, og sem fulltrúi sveitakjördæmis fagna ég þeim úrslitum. — Góða nótt.