12.05.1959
Sameinað þing: 49. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1884 í B-deild Alþingistíðinda. (2498)

Almennar stjórnmálaumræður

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Það voru tvö atriði í rææu hæstv. menntmrh., sem mér þykir ástæða til þess að víkja að.

Hæstv. ráðh. sagði, að Alþb. hefði lagt það til nú fyrir skömmu, að mynduð yrði samstjórn Alþb., Sjálfstfl og Alþfl. Þetta er með öllu rangt hjá hæs v. ráðh. Slíkar tillögur hefur Alþb. aldrei flutt. Sú eina till., sem Alþb. flutti í þessum efnum, var, að sett yrði á fót hlutlaus utanþingsstjórn, sem sæti að völdum fram yfir kosningar, á meðan verið væri að koma kjördæmamálin fram.

Þá sagði hæstv. ráðh., að það hefði komið glögglega fram í viðræðum um áramótin við fulltrúa Alþb., að það hafi ekki verið óvinsamlegt því að gefa eftir bótalaust af kaupi verkamanna, sem samsvaraði nokkrum vísitölustigum, og þá oft verið talað um 6 stig. Þetta er líka með öllu rangt. Ekkert slíkt hefur komið fram frá fulltrúum Alþb., aldrei nokkurn tíma. Það var allan tímann mjög glögglega undirstrikað af fulltrúum Alþb., að það kæmi ekki til mála að gefa eftir af umsömdu kaupi eða umsaminni vísitölu, nema bætur kæmu þar á móti.

Hv. þm. N-Ísf. og hv. 4. þm. Reykv., Eggert Þorsteinsson, minntust í sambandi við vísitölueftirgjöfina á að, sem gert var haustið 1956, þegar verkalýshreyfingin féll frá 6 vísitölustigum, og þeir vildu jafna því saman við það, sem nú hafi verið gert með lögbindingu um það, að útstrikuð skyldu 10 vísitölustig. Hér er vitanlega algerlega ólíku saman að jafna. Þegar verkalýðshreyfingin samþykkti að falla frá 6 vísitölustigu haustið 1956, var það með þeim skilyrðum, að tiltekin önnur hækkun, sem á átti að skella í sama mánuði, yrði ekki látin koma fram, og sú verðhækkun nam þessum 6 vísitölustigum, svo að þar var verið að skipta á sléttu. En það sem nú var verið að gera, var að strika út bótalaust 10 vísitölustig og framkvæma beina kauplækkun.

Hv. 1. þm. S-M., Eysteinn Jónsson, minntist hér á togarakaupin. Hann sagði, að svo hefði dregizt undirbúningur að togarakaupunum af minni hálfu í fyrrv. ríkisstj., að ekki hafi unnizt tími til þess að kaupa skipin. Við ýmsu gat maður nú búizt úr þessari átt, en furðulegt er það, að þessi Hv. þm. skuli leyfa sér að segja þetta, vitandi það, að skýrsla hefur verið gefin um það hér á Alþingi fyrir löngu, að það var strax vorið 1957, sem öllum undirbúningi í málinu var lokið og útboð var sent í sambandi við smíði skipanna til 16 skipasmíðastöðva, og öll tilboð voru komin inn haustið 1957. Síðan var samninganefnd send út og ræddi við skipasmíðastöðvar, og það lá allt tilbúið annað en það, að ekki hafði verið útvegað lánsfé til kaupanna. Og hver átti að útvega lánið? Samkvæmt heimild Alþingis, fjármálaráðherra landsins, sjálfur Eysteinn Jónsson. En við Alþýðubandalagsmenn gerðum meira í þessum efnum, því að við beittum okkur fyrir því að sanna það fyrir ríkisstj., að hægt væri að fá lán með góðum kjörum til kaupanna, en eins og ég skýrði áður frá í þessum umræðum, voru það pólitískir fordómar, sem réðu því, að ekki mátti taka lánin nema hjá einhverjum vestrænum vinum, sem svo vildu ekki veita neitt lán.

Í kosningunum í sumar verða störf vinstri stjórnarinnar að sjálfsögðu dæmd af hv. kjósendum.

Ég gat einnig um það í fyrri ræðu minni í kvöld, að á síðasta kjörtímabili hefur önnur stjórn verið mynduð í þessu landi. Annað stjórnarsamstarf hefur hér hafizt. Það er stjórn Sjálfstfl., mynduð af Alþfl. Þó að það stjórnarsamstarf hafi ekki staðið lengi, hefur þegar sagt til sín, hvert það stefnir. Í þessari stjórn hefur Sjálfstfl. þegar lækkað umsamið kaup með lögum. Hann hefur reynt að eyðileggja orlofslög verkamanna. Hann hefur skorið niður verklegar framkvæmdir, en fellt allar till. um sparnað í rekstri ríkisins. Hann hefur boðað nýja stefnu í lánveitingum til sjávarútvegsins, þannig að aftur á að sækja í sama horfið með rýrnun fiskiskipaflotans. Þegar tekið er nú erlent lán, sem nemur 150 millj. kr., þá skal ekkert af því ganga til lánastofnana sjávarútvegsins, og það er blákalt tilkynnt, að sjávarútvegurinn þurfi ekki á meira lánsfé að halda, a.m.k. ekki fyrr en árið 1962.

Sjálfstfl. óttast sína eigin stefnu, þó að hv. þm. N-Ísf. segi, að Sjálfstfl. vilji nú segja þjóðinni satt. Það er vegna þess, að Sjálfstfl. þorir ekki að segja þjóðinni satt, sem hann felur sig nú á bak við Alþfl. Stefna Sjálfstfl. má þó vera öllum landsmönnum ljós. Hann stefnir á stórkostlega gengislækkun og kjaraskerðingu. Foringjar Sjálfstfl. vita þetta vel. Þeir vita, að engin verðbólgualda hefur verið stöðvuð af núv. ríkisstj. Ólafur Thors var svo hreinskilinn að játa þetta í landsfundarræðu sinni fyrir nokkru. Þá sagði hann: Allar aðalverðlækkanirnar eru vegna niðurgreiðslna, sem nema rúmum 100 millj, kr. Allar þessar verðlækkanir verður fólkið sjálft að borga síðar með hækkuðum sköttum eða minnkandi framkvæmdum, sagði Ólafur Thors. Sem sagt, þessar rúmlega 100 millj. kr. skulu hv. kjósendur verða að borga síðar, og þetta „síðar“ þýðir: eftir kosningar. Það á að vera öllu þægilegra að bíða með það að leggja á hina óvinsælu skatta fram yfir kosningar.

En hvað gerist svo, þegar álögurnar koma í haust? Jú, þá er ætlunin að binda kaupið með einhverjum hætti.

Sjálfstfl. verður dæmdur fyrir meira, en feluleik sinn í sambandi við núv. ríkisstj. Hann verður líka dreginn til dóms fyrir skemmdarstarfsemi sína í stjórnarandstöðunni og fyrir þjóðhættulega stefnu sína í stærstu málum þjóðarinnar. Sjálfstfl. hefur rekið stórhættulega hentistefnu, sem kjósendur hans hljóta að refsa honum fyrir. Í stjórnarandstöðunni boðaði hann sparnað í ríkisrekstrinum. Þegar hann myndaði stjórn, drap hann allar till. um slíkt. Í stjórnarandstöðunni boðaði hann kauphækkun og gekkst fyrir verkföllum. Nú, þegar hann hefur tekið við stjórn, lækkar hann kaup með lögum. Í stjórnarandstöðu flutti hann frv. um skattfrelsi sjómanna. En nú, þegar flokkurinn ræður afgreiðslu mála á Alþingi, má slíkt frv. liggja óafgreitt í þingnefnd. Áður heimtaði Sjálfstfl. meira fé til húsnæðismála. Nú drepur hann till. á Alþ, um það að verja fé til húsnæðismála. Áður dæsti hann yfir hrikalegum lántökum vinstri stjórnarinnar. En nú bætir hann við nýjum lántökum. Áður boðaði hann afnám uppbótargreiðslna og niðurborgana. En nú hækkar hann bara hvort tveggja. Þannig rassskellir Sjálfstfl. sjálfan sig. Og ofan á þetta allt hælist svo flokkurinn af því, að hann sé hreinn hernámsflokkur, sem hafi ekki látið sér koma til hugar að láta herinn fara úr landinu.

Fyrir þessa og þvílíka stefnu verða kjósendur að refsa Sjálfstfl. í komandi kosningum. Framsfl. hefur valið sér ömurlegt hlutskipti í stjórnmálum landsins, eins og nú standa sakir. Hann rauf vinstri stjórnina og kallaði íhaldsstjórnina yfir landið með kauplækkunarþvermóðsku sinni. Það er kaldhæðni örlaganna, að Framsfl. skuli láta þá menn ráða ferð sinni, sem trúa því, að mánaðarkaup verkamanna, sem nemi 4.000 kr. fyrir 8 stunda vinnu, sé of hátt, sé undirrót efnahagsvandamála þjóðarinnar. Kauplækkunarkrafa flokksins hefur nú leitt hann í einangrun og sprengt hans eigið Hræðslubandalag. Svo ætlar flokkurinn að gera það að sínu eina kosningamáli að streitast gegn óhjákvæmilegri leiðréttingu á kjördæmaskipun landsins. Framsfl. hefur boðað sem stefnu sína í því máli fráleitt miðaldafyrirkomulag. Hann vill skipta öllu landinu upp í einmenningskjördæmi og fella niður öll jöfnunarsæti. Hvert mannsbarn sér, að slíkt mundi leiða af sér hið frekasta óréttlæti.

Í kjördæmamálinu er tvennt, sem verður ekki komizt hjá að leiðrétta. Hið fyrra er, að fjölga verður nokkuð þingmönnum þéttbýlisins vegna gífurlegra fólksflutninga, sem orðið hafa. Þetta atriði hefur Framsókn orðið að viðurkenna, og því hefur hún sjálf flutt till. í þessa átt. En svo er hitt atriðið, sem líka verður að leiðrétta, en það er hinn stórkostlegi misréttur, sem nú á sér stað á milli þingflokka. Nú hefur Framsfl. t.d. 17 þm. út á 13 þús. atkv., en Alþb. hefur 8 þm. út á 16 þús. atkv. Svona misrétti verður ekki þolað, enda brýtur það í bága við allt lýðræði. En þetta neitar Framsókn að leiðrétta.

Misstór einmenningskjördæmi hljóta alltaf að leiða af sér þetta misrétti. Af því er hlutfallskosning í stærri kjördæmum óumflýjanleg.

Góðir hlustendur. Þessum umræðum er nú að verða lokið. Kosningabaráttan er raunverulega hafin. Enginn vafi er á því, að kosningarnar í sumar og haust geta orðið örlagaríkar fyrir þjóðina. Í þeim kosningum verður úr því skorið, hverjir eiga að móta stefnuna í atvinnu- og efnahagsmálum þjóðarinnar á næsta kjörtímabili og hverjir eiga að bera ábyrgð á stærstu og viðkvæmustu lífshagsmunamálum þjóðarinnar í viðskiptunum við aðrar þjóðir.

Alþb. leggur stefnu sína og störf fyrir þjóðina. Það berst áfram eitt allra íslenzkra flokka af fullum heilindum fyrir því að losa landið sem fyrst undan hinu erlenda hernámi. Alþb. skorar á alla landsmenn að íhuga vel þá hættu, sem þjóðinni stafar af hernáminu, að gera sér fulla grein fyrir þeirri hættu, sem öryggi, efnahag og sjálfstæði landsins er búin af áframhaldandi dvöl herliðsins í landinu. Allt tal um jafnvægi í byggð landsins er fjarstæða, á meðan hermang Keflavíkurflugvallar er hér í fullum gangi. Aukin framleiðslustefna er ekki samrýmanleg hernáminu, og efnahagslegt sjálfstæði verður ekki um að ræða, fyrr en herinn er farinn og herstöðin hætt að vera til.

Stefna Alþb. í efnahagsmálum byggist á aukinni framleiðslu, fleiri og betri framleiðslutækjum, fleiri mönnum að framleiðslustörfum, en gegn öllum kenningum um það, að umsamdar lágmarkstekjur verkamanna séu of háar og valdi vanda í efnahagslífi þjóðarinnar.

Alþb, vill samstarf vinnustéttanna og bendir á, að vandi atvinnu- og efnahagsmálanna verður aldrei farsællega leystur nema í samráði og samstarfi við vinnustéttirnar. Alþb. er eini raunverulegi verkalýðsflokkurinn í landinu. Alþfl. er enginn verkalýðsflokkur. Hann er aðeins af náð íhaldsins í stjórn nokkurra verkalýðsfélaga.

Alþb. eitt stendur vörð um hagsmuni hins vinnandi fólks. Alþb. leggur hiklaust undir dóm kjósenda stefnu sína og störf í vinstri stjórninni og í hagsmunabaráttunni. Það leggur undir dóm kjósenda störf sín í landhelgismálinu. Enginn kjósandi getur svo gengið að kjörborðinu í sumar, að hann geri sér ekki ljósa grein fyrir alvöru þess máls. Þó að landhelgin sé stækkuð, eru Bretar og aðrar Atlantshafsbandalagsþjóðir ekki búnar að gefa upp alla von um, að fá megi Íslendinga inn á eitthvert undanhald að kosningum loknum. Á næsta ári verður ný alþjóðaráðstefna um landhelgismálin. Hverjir ráða þá fyrir um stefnu og framkomu Íslands? Úrslit kosninganna skera úr um það. Saga landhelgismálsins er til varnar Íslendingum í þessum efnum. Eða hver trúir því, að búið væri að stækka landhelgina, ef Alþb. hefði ekki notið við?

Næstu kosningar ráða úrslitum um stefnuna í hagsmunamálum þjóðarinnar og í sjálfstæðismálum hennar. Alþb. skorar því á alla alþýðu að vera minnuga þess, sem gerzt hefur, og duga vel í komandi kosningum. Það var sigur Alþb., sem kom í veg fyrir gengislækkun á síðasta kjörtímabili, og það var sigur þess, sem hratt landhelgismálinu fram. Nýr kosningasigur Alþb. er nauðsynlegur til þess að tryggja hagsmuni alþýðunnar og kröftuga baráttu gegn hernum og undansláttarlausa stefnu í landhelgismálinu. — Góða nótt.