30.01.1959
Efri deild: 60. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í B-deild Alþingistíðinda. (257)
87. mál, niðurfærsla verðlags og launa o. fl.
Eggert Þorsteinsson:
Eins og ég hef tekið fram í umr. um málið, það sem af er umr., þá er hér um samkomulagsmál að ræða og samkomulag þýðir ekki, að maður sé í einu og öllu að fullu ánægður. Hvað mig persónulega áhrærir, þá hefði ég þrátt fyrir ýmsar leiðréttingar kosið frekari breyt. á frv. Um það hefur ekki náðst samkomulag og er talið, að frekari breyt. raski höfuðtilgangi frv.
Ég tel megintilgang frv. svo mikilvægan, að ég vil þess vegna ekki eiga frekari hlut að breyt. og greiði því atkv. gegn þeim brtt., sem fyrir liggja og segi nei.