30.01.1959
Efri deild: 61. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 457 í B-deild Alþingistíðinda. (260)
87. mál, niðurfærsla verðlags og launa o. fl.
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Ég ætla ekki að blanda mér inn í þær umr., sem fram hafa farið í þessari hv. d., en kveð mér hljóðs til þess eins að skýra hv. dm. frá nokkrum upplýsingum, sem máli skipta í sambandi við staðhæfingar, sem hafa verið endurteknar hér í þessari hv. d., en voru margsagðar í hv. Nd. við umr. þar, um þá kjaraskerðingu, sem muni leiða af þessu frv. Eins og áður hefur komið fram í umr. af hálfu formælenda frv., eru allar þær upplýsingar, sem komið hafa fram í ræðum af hálfu fulltrúa Alþb. um svo og svo mikla kjaraskerðingu vegna þessa frv., byggðar á þeirri blekkingu, byggðar á þeirri röngu forsendu, að hægt hefði verið að halda verðlaginu eins og það var 1. des. s. l. óbreyttu þrátt fyrir þá 9.2% hækkun á kaupi, sem varð þann dag. Það, sem einmitt hefði siglt í kjölfar þeirrar kauphækkunar og annarra, sem á undan voru gengnar, ef ekki hefðu verið gerðar sérstakar ráðstafanir, sem sumpart hafa verið gerðar, er mjög veruleg verðhækkun, sem hefði étið upp þessa kauphækkun að mestu og þegar til lengdar lét að öllu leyti. Það, sem undirstrikað er, er kauphækkunin og allt talin kjaraskerðing frá henni, en gleymt eða þagað um þær verðhækkanir, sem óhjákvæmilega hefðu siglt og mundu sigla í kjölfar þessara kauphækkana, ef ekki væru aðrar ráðstafanir gerðar. Það, sem ég vildi nú skýra frá, eru nokkur dæmi um þær verðhækkanir, sem hefðu orðið, ef haldið yrði áfram að miða kaupgjald við vísitöluna 202, eins og hún hefur verið síðan 1. des., m. ö. o. nefna nokkur dæmi um verðlag, sem hefði siglt eða mundi sigla í kjölfar kaupsins eða kaupgreiðsluvísitölunnar 202, og skal ég nefna hér fyrst helztu innlendu landbúnaðarvörurnar.
Verð á kindakjöti hefði við næstu haustverðlagningu orðið kr. 32.57, en er nú kr. 23.40. Verð á kindakjöti mundi m. ö. o. verða kr. 9.17 hærra, en það er nú. Verð á nýmjólk í flöskum mundi verða kr. 4.70, en er kr. 3.40 nú, mjólkurlítrinn mundi hækka um kr. 1.30, ef kaupgjaldið ætti að vera áfram samkv. vísitölu 202. Mjólkurbússmjör gegn miðum yrði kr. 63.85, en er nú kr. 46.60 eða mundi hækka um kr. 17.25. Kartöflur mundu fara upp í kr. 2.36, en eru nú kr. 1.45, mundu hækka um 91 eyri kg.
Þessi gífurlega hækkun á landbúnaðarvörunum frá því, sem nú er, hefði orðið afleiðing þess, ef kaupgjaldið væri látið standa óbreytt, og þá má geta nærri, hvort það er sanngjörn eða rétt reikningsaðferð að kalla allt það kjaraskerðingu, sem kaup lækkar um frá því, sem hefur verið síðan 1. des.
Ég skal nefna örfá önnur dæmi af öðrum sviðum. Franskbrauð hefði hækkað um 18 aura, rúgbrauð hefði hækkað um 15 aura, mansjettskyrta hefði hækkað um kr. 5.85, kuldaúlpa um kr. 18.44, og vinnufatnaður hefði hækkað svo sem hér segir: buxur um kr. 4.03, jakki um kr. 4.77, samfestingur um kr. 6.26.
Ég læt þessi dæmi nægja til þess að skýra eða undirstrika það, sem ég tel tvímælalaust vera rangt í þeim staðhæfingum, sem fram komu fyrst í hv. Nd. og hafa verið endurteknar hér í hv. Ed. um þá kjaraskerðingu, sem af frv. muni hljótast.