17.04.1959
Neðri deild: 110. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 466 í B-deild Alþingistíðinda. (312)

115. mál, ríkisreikningar

Frsm. ( Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Eins og venja er til, var frv. um samþykkt á ríkisreikningnum vísað til fjhn. til athugunar. Og n. hefur borið frv. saman við ríkisreikninginn og komizt að raun um, að upphæðir þær, sem þar eru tilfærðar, eru í samræmi við það, sem á reikningnum stendur.

Nokkrar athugasemdir frá yfirskoðunarmönnum reikninganna fylgja honum eins og venjulega. Þessar athugasemdir eru í tvennu lagi að þessu sinni, Það eru fyrst athugasemdir frá öllum þremur yfirskoðunarmönnunum sameiginlega, en síðan nokkrar viðbótarathugasemdir frá einum yfirskoðunarmanninum, Jóni Pálmasyni. Ráðh. hefur svarað athugasemdunum og síðan hafa yfirskoðunarmenn samkv. venju gert till. til Alþ. út af athugasemdunum.

Ég mun ekki fara að ræða um þessar athugasemdir yfirleitt eða svör við þeim, en vil aðeins geta um tvær athugasemdir, sem yfirskoðunarmenn vísa til aðgerða Alþ.

Fyrst eru þá 25. og 26. aths., sem allir yfirskoðunarmenn sameiginlega hafa gert. Sú aths. snertir Tryggingastofnun ríkisins. Bent er á það, að í árslok 1956 hafi stofnunin átt útistandandi rösklega 45 millj. kr., og yfirskoðunarmenn óska eftir sundurliðaðri skýrslu um þessar upphæðir, hvað hin einstöku sveitar- og bæjarfélög skulda og frá hvaða árum skuldirnar eru. Auk þess eru óinnheimtir vextir 2.4 millj. rúmlega, og spurt er um hvað líði innheimtu skuldanna.

26. aths. er þannig, með leyfi hæstv. forseta: „Reikningum Tryggingastofnunar ríkisins fylgir engin endurskoðunarskýrsla, sem er þó nauðsynlegt, þar sem hér er um að ræða margbrotna starfsemi og stórfelld viðskipti“ — og svo er spurt: Hvað líður endurskoðun reikninga hjá stofnuninni? — Út af þessari aths. er birt svar frá fjmrn., sem hafði sent félmrn. aths. til umsagnar og félmrn. aftur sent grg. frá forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins út af aths. Er þar birt nokkuð nákvæm sundurliðun um skuldirnar samkv. efnahagsreikningi. Þar er t. d. skýrsla um það, hvernig standa reikningar umboðs- og innheimtumanna í árslok 1956, enn fremur yfirlit um skuldir og inneignir sjúkrasamlaga. Þessar skýrslur eru á bls. 247–252 í ríkisreikningnum, sem alþm. hafa fengið. Út af þessu segja svo yfirskoðunarmenn í till. sínum, með leyfi forseta: „Upplýst er með svarinu, hvernig varið er með útistandandi skuldir stofnunarinnar og hjá hverjum þær eru. Margt bendir til, að ekki verði unnt til langframa að innheimta allt það fé, er stofnuninni er ætlað. Það virðist því óhjákvæmilegt, að þessi mál verði rækilega tekin til athugunar og ráðin bót á þeim, og málinu er vísað til Alþ.“

Ég geri ekki ráð fyrir því, að neinn hv. þdm. ætlist til þess af fjhn., að hún geri tillögur um þetta mál, þó að því sé vísað til Alþ., því að það er yfirgripsmeira en svo, að það sé hægt að ætlast til þess, að n. geti gert um það ákveðnar tillögur. Vitanlega er það ískyggilegt, ef það er þannig, eins og yfirskoðunarmenn telja, að ekki verði unnt til langframa að innheimta allt það fé, er stofnuninni er ætlað, og gæti verið þörf á því, að ríkisstj. eða Alþ. léti fram fara einhverja athugun á því, hvernig hér yrði bót á ráðin.

Þá ætla ég að víkja að 14. aths., viðbótaraths. Jóns Pálmasonar, en henni er einnig vísað til aðgerða Alþ. Sú aths. er um kostnað við kennslumál. Segir þar, að kostnaður við kennslumál hafi á árinu 1956 orðið 101.9 millj. eða um það bil 18½ millj. umfram fjárlög og síðan nefndir nokkrir liðir á þeirri grein fjárlaganna, sem hafa farið allmjög fram úr áætlun. Samkvæmt svari rn. hefur það sent menntmrn. aths. til umsagnar og menntmrn. svarað með því að senda bréf frá ýmsum aðilum, sem hafa með þessi mál að gera og bréf þeirra eru birt hér á bls. 259–263. Eru þar skýrslur ýmsar um kostnaðinn við kennslumálin og ýmsa þætti þeirra. En um þetta segir síðan yfirskoðunarmaðurinn: „Svo sem um getur í aths., hækkaði kostnaðurinn við kennslumál á árinu 1956 um 29 millj. rúmlega frá því, sem var árið 1955. Í svörum við aths. eru margvíslegar afsakanir og grg. um orsakir og margt af því eðlilegt, eins og til var stofnað. En að slík hækkun eigi sér stað á einni fjárlagagrein á einu ári, er svo alvarlegt mál, að nauðsyn ber til að koma í veg fyrir, að slíkt endurtaki sig, og helzt að lækka þennan kostnað verulega. Er því vandamáli vísað til Alþ.“

Um þetta vil ég svo segja eins og um hina aths. Vitanlega hefur fjhn. ekki tök á því að gera rökstuddar till. um þetta frekar en um hitt atriðið. En ég vildi aðeins benda hér á þessar tvær aths., sem vísað er til aðgerða Alþ., ef þingið vildi eða hæstv. ríkisstj. taka þetta til athugunar milli þinga, hvað gera mætti til þess að ráða bót á því, sem hér er talið athugavert og þyrfti að taka til sérstakrar athugunar.

Eins og ég sagði, ætla ég ekki að gera fleiri aths. að umtalsefni, enda hafa menn þetta prentað hér í ríkisreikningnum ásamt svörum og till. endurskoðunarmanna. Fjhn. hefur skilað áliti sínu á þskj. 380 og mælir með, að frv. verði samþykkt. Einn nm., hv. 3. þm. Reykv. (EOl), var fjarverandi, er málið var afgr. í n., en tveir nm., hv. 5. þm. Reykv. (JóhH) og hv. 9. landsk. þm. ((ÓB), hafa skrifað undir álitið með fyrirvara.