17.04.1959
Neðri deild: 110. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 487 í B-deild Alþingistíðinda. (320)
115. mál, ríkisreikningar
Eysteinn Jónsson:
Það er eins og ég sagði áðan. Ég býst við því, að hv. þm. A-Húnv. (JPálm) geti verið áhyggjulaus um efnahagsmálin og fjármálin, og ann ég honum þess vel, eftir allar þær gífurlegu áhyggjur, sem hann hefur haft um þessi efni s. l. áratugi. Hann er sannarlega vel að því kominn að lifa áhyggjulausu lífi einhverja stund a. m. k. í þessu sambandi.
En ég vildi aðeins taka það fram enn þá einu sinni, að það, sem ég sagði um hlutdrægnina, var þetta: Að hv. þm. hefur í hvert skipti nú um langan tíma, sem landsreikningurinn hefur komið til meðferðar á Alþingi, sem endurskoðandi landsreikninganna flutt fram ásakanir í minn garð, sem hann hefur ekki getað staðið við. En aftur á móti, þegar aðrir menn fóru með störf fjmrh., þá þagði hv. þm. á Alþingi um þessi efni. Þetta kalla ég hlutdrægni og hlutdrægni í starfi, þegar hér á í hlut endurskoðandi landsreikninganna. Á hinn bóginn hefur hann ekki getað fengið félaga sína til þess að gera aths. við landsreikningana í ósamræmi við það, sem tíðkaðist áður. En hann hefur þá notað þessa aðferð í staðinn. Tekið sig til í sambandi við þennan reikning og gert sérstakar aths. við hann, sem eru hlutdrægar, þegar það er athugað, að þær koma frá honum, sem þagði við fimmfalt hærri umframgreiðslum tiltölulega, þegar hans eigin menn áttu í hlut.