09.02.1959
Efri deild: 66. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 488 í B-deild Alþingistíðinda. (325)

103. mál, skattar og gjöld til sveitarsjóða

Dómsmrh. (Friðjón Skarphéðinsson):

Herra forseti. Þetta litla frv. fjallar um heimild fyrir sveitarstjórnir til að innheimta með allt að 100% álagi skatta og önnur gjöld, sem miðuð eru við gildandi fasteignamat og renna eiga í sveitarsjóð, að vatnsskatti undanskildum.

Áður en hið nýja fasteignamat var staðfest hinn 1. maí 1957, voru í gildi heimildir fyrir sveitarstjórnir til að innheimta með allt að 400% álagi skatta og gjöld til sveitarsjóða, sem miðuðust við fasteignamat og ýmsar sveitarstjórnir notuðu þessar heimildir að fullu. Fasteignamat hækkaði hins vegar mismunandi mikið. Víða hækkaði það aðeins um 104–200%, en hér í Rvík aftur á móti um 400%, eins og kunnugt er. Það var því nauðsynlegt að heimila sveitarfélögum að innheimta fasteignagjöldin eftir sömu reglum og giltu um gamla fasteignamatið og var svo gert til 31. des. 1958, og ráðgert, að þá væri búið að breyta reglugerðar- og lagaákvæðum í það horf, að sveitarfélögin héldu sama rétti til álagningar þessara skatta og þau höfðu áður haft. Sú hefur hins vegar orðið raunin á, að lögum og reglugerðum hefur ekki verið breytt í það horf, að gjöld þau, sem frv. fjallar um, geti orðið eins há og áður, á meðan 400% álagningarheimildin var í gildi. Verða því ýmis sveitarfélög að horfast í augu við það að þurfa að hækka útsvörin sem mismuninum nemur, nema því aðeins að þau fái heimild til að innheimta þessi gjöld með álagi, eins og gert er ráð fyrir í frv. og margar sveitarstjórnir hafa um þetta kvartað og óskað eindregið eftir því, að heimildarlög yrðu sett á þann veg, sem hér er ráðgert. Þau kjósa heldur að innheimta jafnháa fasteignaskatta, lóðargjöld o. fl. og þau hafa gert hingað til heldur en að hækka útsvörin sem mismuninum nemur. Bæjarstjórn Húsavíkur t. d. segir, að hér sé um að ræða 120 þús. kr. mismun. Á Akureyri mun þetta vera um 600–700 þús. kr. mismunur og á Siglufirði sennilega um 250 þús. kr. Mér er tjáð, að innan þeirra sveitarstjórna, sem óskað hafa sérstaklega eftir að fá þessa lagaheimild til innheimtu á þessum sköttum með 100% álagi, sé enginn ágreiningur um að fara þess á leit.

Hér er því ekki um það að ræða, að gjöldin, sem frv. fjallar um, eigi að hækka, heldur hitt, að þau geti orðið jafnhá eða svipuð og þau hafa verið hingað til.

Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til heilbr.- og félmn.