09.02.1959
Efri deild: 66. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 494 í B-deild Alþingistíðinda. (331)

103. mál, skattar og gjöld til sveitarsjóða

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég er sammála 6. þm. Reykv. um það, að fasteignagjöld yfirleitt eru réttur og góður gjaldstofn fyrir bæjarfélög. Þau hvíla yfirleitt á efnamönnum og koma þess vegna réttlátlega niður. En þegar ég heyrði þessa skoðun hans, þá datt mér í hug: Öðruvísi mér áður brá. Er fasteignamatið 1942 var gert, risu húseigendur í Rvík og Sjálfstfl. í Reykjavík upp og heimtuðu, að Reykjavík yrði lækkuð, miðað við aðra landshluta og fjmrh. hét Jakob Möller og hann hafði valdið í hendi sinni, hann lækkaði Reykjavíkurmatið, sem var í fullu samræmi við landsbyggðina, um 10%, af því að mattadórarnir þar vildu ekki borga fasteignaskatt eins og réttlátt var samanborið við aðra.

Þá var í lögum, að fasteignamat skyldi gert 10. hvert ár. Þegar fasteignir fóru að hækka, sáu sjálfstæðismenn, að gjöldin af húsunum mundu líka hækka og þá var ráðherra, sem hét Pétur Magnússon, sem flutti frv. að lögum um, að það skyldi ekki fara fram fasteignamat 10. hvert ár, því skyldi fresta til 1965, til að fyrirbyggja, að húsagjöldin hækkuðu og bærinn gæti fengið eðlilegar tekjur af fasteignaskattinum, — hann hét Pétur Magnússon, sem fékk þessi lög samþykkt.

Svo líða nokkur ár, og allt hélt áfram að hækka og menn sáu, að fasteignamatið var orðið hrein vitleysa. Sveitir, sem voru komnar í eyði, voru á matinu frá 1942. Önnur þéttbyggð svæði voru á landinu, þar sem allt hafði þotið upp og m. a. jarðirnar þar og húsin þar höfðu margfaldazt í verði, á sama tíma og þau urðu einskis virði annars staðar og menn sáu, að það þyrfti að laga þetta. Og þá var farið að tala um að laga það. Og til að gera það sem ódýrast, þá átti að gera það án þess, að jarðirnar væru skoðaðar og án þess að það gæti komizt almennilegt endanlegt vit í fasteignamatið og þá var talað um að hækka allt hlutfallslega jafnt og aðrir að hækka misjafnt eftir söluverði í hinum ýmsu sýslum. Þá reis sjálfstæðið á Alþingi Íslendinga upp og setti þá bremsu inn í lögin, að það mætti þó aldrei hækka meira í Reykjavík, en það yrði fimmfalt og þar með var fyrirbyggt, að hægt væri að koma samræmi í matið. — Enn þá voru það mennirnir, sem áttu húsin og áttu von að fá lóðarskattinn hækkaðan, sem stóðu í vegi fyrir því, að matið gæti orðið sæmilega réttlátt um landið og hækkað alls staðar hlutfallslega við söluverð.

Þess vegna gleðst ég ákaflega yfir því, þegar ég heyri borgarstjóra í Reykjavík, 6. þm. Reykv., vera búinn að breyta hér um skoðun, og vona, að slík breyting nái lengra, en bara til hans.