27.02.1959
Efri deild: 76. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 505 í B-deild Alþingistíðinda. (342)
103. mál, skattar og gjöld til sveitarsjóða
Frsm. meiri hl. (Sigurður Ó. Ólafsson):
Herra forseti. Ég þarf nú ekki mikið að segja meira um málið, en fram hefur komið. Mér finnst aðallega, eins og hæstv. ráðh. tók fram, að þarna séu dálítið skiptar skoðanir um það, á hvern hátt sveitarfélög eigi að innheimta gjöld af sínum íbúum. Ég er því fylgjandi, að sveitarsjóðir hafi rúmar hendur um innheimtu á fasteignasköttum og vitanlega er það alveg rétt, að bæjarfélag, sem missir tekjur, sem það hefur áður haft, t. d. af fasteignasköttunum, eins og ég tók dæmi um áðan, missir stórkostlega tekjur, auðvitað verður það bæjarfélag að ná þeim tekjum upp einhvers staðar á einhvern hátt annan og þá er ekki nema um útsvörin að ræða.
Þetta er þungamiðja málsins, en hitt eru umbúðir meira og minna og út í loftið, sem fram hefur komið á móti frv.
Það eru komnar fram tvær brtt. og það hefur komið ósk fram um það, að umr. væri frestað, til þess að n. fengi tækifæri til þess að athuga þessar till. og taka ákvörðun um þær. Ég vildi nú skjóta því til flm. þessara brtt., hvort þeir væru ekki til með að taka þær aftur til 3. umr., en málið gæti haldið áfram núna og yrði samþykkt við þessa umræðu. Ég vil aðeins skjóta því fram, til þess að málið tefjist ekki óþarflega. Þetta mundi flýta fyrir. En svo skal ég sem frsm. meiri hl. lofa því, að þessar till. verði athugaðar á milli 2. og 3. umr.