09.04.1959
Neðri deild: 103. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 515 í B-deild Alþingistíðinda. (367)
125. mál, almannatryggingar
Fram. (Benedikt Gröndal):
Herra forseti. Frv. er þess efnis, að slysabætur vegna dauða lögskráðra sjómanna, sem greiddar eru í eitt skipti fyrir öll, skuli hækka um 100% frá því, sem nú er.
Um alllangt skeið hefur mönnum verið ljóst, að dánarbætur hér á landi væru í engu samræmi við verðlag í landinu og þyrftu óhjákvæmilega að hækka, enda hafa þær verið lengi óbreyttar. Hefur lengi verið venja, að sérstök lög giltu um dánarbætur sjómanna, og eru fyrir því augljósar og eðlilegar ástæður. Þess vegna kemur fyrst fyrir á þessu þingi frv. til laga um breyt. eða hækkun á dánarbótum til þessarar stéttar.
Í ársbyrjun var gert samkomulag milli Landssambands ísl. útvegsmanna og sjómannasamtakanna um að vinna að því að fá fram þessa hækkun, svo að ég vænti þess, að mál þetta sé með öllu óumdeilt. Vegna þeirra sorglegu viðburða, sem gerzt hafa á þessu ári, er sjálfsagt að láta þessar breyt. gilda frá s. l. áramótum.
Heilbr.- og félmn. hefur fjallað um þetta mál og er sammála um að mæla með samþykkt þess. Tveir nm. voru þó fjarverandi afgreiðslu málsins.