20.04.1959
Sameinað þing: 40. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 575 í B-deild Alþingistíðinda. (387)
1. mál, fjárlög 1959
Forseti (JPálm):
Svo sem þingsköp mæla fyrir, þá er ætlazt til þess, að almennar umræður, hinar svonefndu eldhúsumræður, verði við framhald 1. umr. fjárlaga. En eins og gengið hefur undanfarin ár, þá er orðið samkomulag um það milli þingflokkanna að fresta þessari umræðu annaðhvort til 3. umr. eða fram undir þinglok og mun ég hafa samráð við formenn þingflokkanna um það, hvort frekar verður. En núna vil ég fara fram á afbrigði frá þingsköpum um þessa frestun á eldhúsumræðunni.