20.04.1959
Sameinað þing: 41. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 575 í B-deild Alþingistíðinda. (392)
1. mál, fjárlög 1959
Frsm. 1. minni hl. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Svo sem segir í upphafi nál. okkar, sem mynduðum 1. minni hl. fjvn., náðist ekki samstaða í n. um afgreiðslu fjárlagafrv. Samkomulag varð að vísu um allar hækkanir á útgjaldabálki frv., með þeim fyrirvara þó, að sumir nm. áskildu sér rétt til að styðja brtt., er fram kynnu að verða bornar varðandi tiltekin atriði. Samkomulag varð hins vegar ekki um úrræði til þess að jafna greiðsluhallann á frv., og leggjum við, fulltrúar Sjálfstfl. og Alþfl. í n., fram sérstakar tillögur um það efni, en fulltrúar Alþb. og Framsfl. munu hvorir fyrir sig skila sérstöku nál. Samkomulag varð um það í n., að frsm. 1. minni hl. gerði grein fyrir hinum sameiginlegu till. nefndarinnar.
Afgreiðsla fjárlagafrv. í fjvn. hefur í þetta sinn dregizt meira en undanfarin ár. Liggja til þess skiljanlegar ástæður. Þegar fyrrv. fjmrh. lagði fjárlagafrv. fyrir Alþingi í haust, var ljóst vegna yfirvofandi stórhækkana á kaupgjaldi og öðrum kostnaði, að miklar fjárhæðir skorti, til þess að auðið væri að afgreiða greiðsluhallalaus fjárlög og ráðh. lýsti því yfir, að ekkert samkomulag hefði þá orðið um úrræði í þessu efni. Fjárlagafrv. var því meira og minna marklaust plagg og skorti alla undirstöðu til þess, að fjvn. gæti afgreitt frv. Leið svo fram til upphafs desembermán., að ríkisstj. Hermanns Jónassonar gafst upp við að leysa efnahagsvandamálin og baðst lausnar án þess að leggja nokkrar tillögur fyrir Alþingi. Stóð síðan í þófi, þar til núv. ríkisstj. var mynduð rétt fyrir jólin. Varð ríkisstj. þá þegar í stað að leita úrræða til þess að hindra stöðvun útflutningsframleiðslunnar. Tók að vonum nokkurn tíma að leysa þann vanda. Þá fyrst, er ljóst var orðið um fjárþörf vegna aðstoðar við útflutningsframleiðsluna og áhrif efnahagsráðstafananna að öðru leyti á hag ríkissjóðs, var hægt að finna grundvöll til þess að byggja fjárlagaafgreiðsluna á. Lögð hefur verið áherzla á að gera sér raunhæfa grein fyrir ástandi og horfum fjárhagsmálanna og hafa sérfræðingar ríkisstj. unnið að ýtarlegum álitsgerðum og áætlunum í sambandi við hag ríkissjóðs og útflutningssjóðs á þessu ári í samráði við bankana og innflutningsskrifstofuna. Þá tók það einnig alllangan tíma að gera sér grein fyrir úrræðum til sparnaðar á útgjöldum ríkissjóðs. Öll þessi atvik hafa valdið hinni miklu töf á afgreiðslu fjárlaga, en fjvn. hefur að sínu leyti hraðað störfum, svo sem aðstæður hafa leyft.
Þegar hæstv. fyrrv. fjmrh. lagði fjárlfrv. fyrir Alþ., gerði hann ráð fyrir 93 millj. kr. hækkun útgjalda ríkissjóðs frá fjárl. ársins 1958. Raunveruleg útgjaldaaukning var þó enn meiri, því að niður voru felldar úr frv. 40 millj. kr. vegna niðurgreiðslna, sem fluttar voru yfir á útflutningssjóð. Þá var og frv. miðað við kaupgjaldsvísitölu 183 stig, þótt sýnt væri, að kaupgjaldsvísitalan mundi fyrir árslok 1958 vera orðin miklu hærri.
Vegna hins bágborna fjármálaástands var augljóst, að ekki var nema um tvo kosti að ræða: annaðhvort að ana enn lengra út í fen fjármálaöngþveitisins með nýjum stórfelldum sköttum og æ hraðari snúningi dýrtíðarhjólsins í beinu framhaldi af stefnu fráfarandi ríkisstj. eða þá að freista að stöðva skriðu dýrtíðarinnar og reyna að leiða þróun efnahagsmálanna í jafnvægisátt.
Samkomulag varð um stöðvunarleiðina milli Sjálfstfl. og Alþfl. og efnahagsmálaráðstafanirnar nú eftir áramótin mörkuðust af þessari nýju stefnu. Að sjálfsögðu hlaut þá einnig viðhorf, þessara flokka til fjárlagaafgreiðslunnar að verða í samræmi við þetta.
Ég hef hvað eftir annað lagt á það áherzlu, andstætt skoðun fyrrv. hæstv. fjmrh., að fjárl. ríkisins og þróun efnahagsmála þjóðarinnar væru greinar á sama stofni, sem ekki gætu lifað sjálfstæðu lífi hvor út af fyrir sig. Fer því nú sem fyrr, að efnahagsráðstafanir þær, sem gerðar hafa verið, hafa víðtæk áhrif á hag ríkissjóðs. Ráðstafanirnar valda auknum útgjöldum, svo sem síðar mun að vikið, en þau útgjöld eru þó aðeins svipur hjá sjón í samanburði við þá stórkostlegu gjaldahækkun, sem orðið hefði, ef óbreyttri stefnu hefði verið fylgt.
Það er hins vegar ljóst af þeim brtt. fulltrúa Framsfl. í fjvn., sem fram hafa verið lagðar, að þeir eru sammála þeirri kenningu foringja síns, að hagur útflutningsframleiðslunnar komi ríkissjóði ekki við.
Það er skoðun Sjálfstfl. og Alþfl., að ekki sé lengur auðið að fara þá braut áfram að fleyta atvinnuvegunum áfram með sífelldum nýjum skattaálögum á þjóðina, sem síðar magna dýrtíðina enn meir.
Efnahagsráðstafanirnar um áramótin 1955–56 leiddu af sér um 150 millj. kr. nýja skatta. Framsfl. rauf þá stjórnarsamstarfið við Sjálfstfl. á þeim grundvelli, að grípa yrði til nýrra úrræða. Útkoman varð sú, að um næstu áramót leiddu efnahagsráðstafanir ríkisstj. Hermanns Jónassonar af sér 250 millj. kr. nýja skattálagning, og loks komu bjargráðin á s. l. ári með 790 millj. kr. nýjan bagga. Eftir þessar síðustu ráðstafanir lýsti svo Hermann Jónasson því yfir, er hann gafst upp í byrjun desembermánaðar, að nýtt verðbólguflóð væri að skella yfir og efnahagsmálaráðunautur ríkisstj. lýsti því yfir um sama leyti, að þjóðin væri að ganga fram af brúninni á efnahagssviðinu.
Þótt hér sé ekki vettvangur fyrir almennar umr. um efnahagsmálin, þá verður ekki hjá því komizt að draga fram þessar staðreyndir til þess að skýra afstöðu okkar í 1. minni hl. n. til afgreiðslu þessa fjárlfrv., því að við leggjum til að afgreiða fjárl. nú með öðrum hætti í veigamiklum atriðum, en gert hefur verið að undanförnu.
Það er óhjákvæmilegur þáttur í baráttunni gegn verðbólguflóðinu að leysa nú fjárþörf ríkissjóðs og útflutningssjóðs með öðru móti, en hækka almenna skatta og tolla. Í því sambandi hlaut því fyrst og fremst að verða við afgreiðslu fjárl. að spyrna gegn öllum nýjum útgjöldum ríkissjóðs, sem ekki væru algerlega óumflýjanleg. Ég tel, að þær útgjaldatillögur, sem nefndin flytur sameiginlega á þskj. 391, markist af þessari brýnu nauðsyn og sé þar svo hófsamlega í sakir farið sem frekast er unnt. Afleiðingin er að sjálfsögðu sú, að ekki hefur verið auðið að sinna fjölda beiðna um fjárveitingar til ýmissa nauðsynjamála, sem allir nm. hefðu gjarnan viljað veita liðsinni. Vitanlega verður það ætíð álitamál í ýmsum tilfellum, hvað taka skuli og hverju hafna, en ég tel mig geta fullyrt það, að allir nm. hafi haft fullan hug á að meta hinar ýmsu fjárbeiðnir af fullri sanngirni innan þess þrönga stakks, sem skorinn var. Veit ég enda, að flestir landsmenn munu gera sér fulla grein fyrir því, að í þetta sinn er engra góðra kosta völ á sviði fjárveitinga, ef koma á í veg fyrir það fjármálaöngþveiti, sem fram undan er.
Í nál. á þskj. 397 er að finna svo rækilegar skýringar á hinum einstöku útgjaldatillögum á þskj. 391, sem n. stendur öll að, að ég tel ekki þörf á að tefja tímann með að útskýra í framsöguræðu hverja einstaka brtt., en mun að sjálfsögðu svara fyrirspurnum, ef menn óska nánari skýringa. Mun ég nú aðeins drepa á nokkur atriði, sem ég tel nauðsynlegt að vekja sérstaka athygli á.
N. barst um það tilkynning frá fjmrn., að skömmu áður en fyrrv. fjmrh. lét af störfum, hefði hann hækkað í launum allmarga starfsmenn í stjórnarráðinu og skattstofunni og skipað nokkra nýja starfsmenn, sem sumir höfðu áður verið lausráðnir. Hvaða nauður hefur rekið til þessara ráðstafana, skal hér ekki um dæmt, en ekki verður hjá því komizt að áætla fjárveitingar í viðkomandi stofnunum til þess að mæta þessum hækkunum. N. sjálf leggur ekki til neina aukningu á starfsmannahaldi ríkisins, en hefur auk áðurgreindrar launabreytingar talið óumflýjanlegt að fallast á þá till. atvmrn. að heimila nokkra launauppbót til fiskmatsmanna, þar eð þeir búa við mjög léleg launakjör, miðað við, hvað störf þeirra hafa aukizt.
Í sambandi við fjárveitingar til brúa, hafna og vega skal hér eftirfarandi tekið fram: Fjárveiting til nýrra akvega er áætluð sú sama og í fjárl. ársins 1958. Hefði raunar verið nauðsynlegt að hækka þessa fjárveitingu vegna áhrifa bjargráðanna og kauphækkana á s. l. ári, en þess er því miður enginn kostur vegna þeirra neyðarráðstafana, sem óumflýjanlegar eru. Vegur enda nokkuð á móti lækkun kaupgjalds nú eftir áramótin og enn fremur hækkun sú á vegaskatti af benzíni, sem gerð var á s. l. ári. Rennur sem kunnugt er hluti benzíngjalds til svokallaðra millibyggðavega og annar hluti til brúasjóðs.
Sömu rök gilda varðandi brúargerðir, en til þeirra er varið 115 þús. kr. meira, en á s. l. ári.
Samkomulag varð um það í n. að leggja til að skipta benzíngjaldi til millibyggðavega í fjárl. svo sem öðru vegafé. Er áætlað, að það fé nemi um 5.2 millj. kr. á þessu ári, og er á allan hátt óeðlilegt, að ráðherra sé fengið sjálfdæmi um að skipta þessum hluta vegafjárins, þótt hins vegar verði að reyna að varast það að búta þetta fé niður í litlar fjárveitingar á hvern stað, því að gjald þetta var einmitt hugsað til, að auðið væri að hrinda áleiðis ýmsum mikilvægum framkvæmdum í stofnæðum vegakerfisins, sem erfitt hefur reynzt að fá fé til.
Um brúasjóð er það að segja, að á s. l. ári var lokið byggingu og greiðslu kostnaðar við 4 stórbrýr, sem verið hafa í smíðum undanfarin ár. Til ráðstöfunar verða á þessu ári til framkvæmda á vegum brúasjóðs um 7.5 millj. kr. Ákvað samgmrh. á s. l. ári, að næstu 3 ár skyldi fé brúasjóðs varið til þess að byggja brýr yfir Hornafjarðarfljót, Mjósund í Eyrarsveit og Ytri-Rangá. Með bréfi, dags. 20. des. s. l., lagði svo sami ráðh. enn fremur fyrir, að þegar lokið væri byggingu þessara brúa, skyldi fyrir fé brúasjóðs byggð brú á Hofsá í Vopnafirði. Hér er vafalaust um mikla þörf að ræða, því að það er vægast sagt mjög hæpið, að ráðherra taki ákvarðanir um framkvæmdir svo langt fram í tímann. Kemur það enda mjög til athugunar, hvort ekki eigi í fjárl. að ákveða, hvaða brýr skuli byggðar fyrir fé brúasjóðs.
Á undanförnum árum hefur ekki verið unnt að halda í horfinu með framlög ríkissjóðs til hafnarframkvæmda, og hafa því skuldir ríkissjóðs við sveitarfélögin af þessum sökum farið vaxandi.
Í árslok 1957 var vangreitt ríkissjóðsframlag til hafnargerða 13.9 millj. kr., en 14.3 millj. í árslok 1958. Áætlaður ríkissjóðshluti af framkvæmdum 1959 er 32.5 millj. Að vísu eru litlar líkur til, að auðið verði af fjárhagsástæðum að ráðast í allar þær framkvæmdir, sem ráðgerðar eru í ár, fremur en verið hefur á undanförnum árum. En þrátt fyrir hina brýnu nauðsyn þess að draga úr útgjöldum ríkissjóðs, hefur n. ekki talið annað fært, en hækka framlag til hafnarmannvirkja og lendingarbóta um 1 millj. 330 þús. kr. Sú breyting er um leið gerð á fyrri úthlutunarreglum þessa fjár, að ein höfn er nú tekin út úr með mun hærri fjárveitingu, en allar aðrar hafnir. Er það Akraneshöfn, en sú höfn hefur nú algera sérstöðu, því að vangreitt ríkissjóðsframlag til hennar var um síðustu áramót 7.3 millj. kr., en skuld ríkissjóðs við þá höfn, er næst kom, var 2.3 millj.
Afkoma útgerðarinnar og sjávarplássanna umhverfis allt landið er háð hafnarskilyrðum, flestum öðrum framkvæmdum fremur. Vegna erfiðleika á öflun lánsfjár hefur þessum framkvæmdum að undanförnu verið þröngur stakkur skorinn, ef undan eru skildar örfáar hafnir, er notið hafa erlends lánsfjár. Þetta vandamál getur ekki nema að takmörkuðu leyti orðið leyst með hinum árlegu framlögum úr ríkissjóði. Það er því hin mesta nauðsyn, að ríkið hafi forgöngu um lántöku til þess að greiða fyrir mikilvægum hafnarframkvæmdum. Munu nú loks líkur til, að slíkt lán fáist.
Svo sem fram kemur í nál. 1. minni hl. n., mun samvn. samgm. að venju gera till. um skiptingu fjár til rekstrar flóabáta. Samvn. óskaði hins vegar þess, að fjvn. tæki til afgreiðslu beiðni um 500 þús. kr. byggingarstyrk vegna nýs flóabáts fyrir Eyjafjarðar- og Skagafjarðarhafnir. Háskalegt er talið að nota áfram núverandi flóabát, og hefur því eigandi þess báts, Steindór Jónsson, hafizt handa um smíði nýs báts, sem gert er ráð fyrir að verði tilbúinn fyrir næsta vetur. Lagt er til í 22. gr. fjárl. að veita ríkisábyrgð fyrir alls 80% af andvirði hins nýja báts, en þar sem hér er um allmikið skip að ræða, telur fjvn. ekki annað fært, en verða við beiðni um 500 þús. kr. ríkisstyrk til byggingar skipsins, en leggur til, að fjárveitingin skiptist á tvö ár. Útilokað er að leggja niður þá þjónustu, sem flóabátur þessi á að annast og er því engum efa bundið, að þessi lausn málsins er miklum mun hagstæðari fyrir ríkissjóð, en að þurfa sjálfur að gerast beinn aðili að kaupum og rekstri skipsins.
Skólabyggingar eru meðal hinna stærri vandamála, sem við er að glíma. Með lögunum um fjármál skóla var föstu skipulagi komið á þessi mál, en þá var kominn langur skuldahali vegna vangreiddra ríkissjóðsframlaga til skólabygginga. Ákveðið var þá, að áfallnar skuldir skyldu greiðast á 5 árum, og hefur síðan verið sérstök fjárveiting í fjárl. til þess að greiða þær skuldir, þótt sú fjárveiting hafi að vísu aldrei verið nægilega há til þess, að auðið væri að greiða skuldirnar á tilsettum tíma. Þá var enn fremur lögfest, að ríkissjóði væri skylt að greiða á 5 árum hluta sinn af stofnkostnaði við þá skóla, er byggðir yrðu eftir þann tíma. Er þó ekki skylt að greiða jafna árlega upphæð af framlagi til hvers skóla.
Í fjárl. ársins 1958 voru fjárveitingar til byggingar barnaskóla 9 millj. 760 þús. kr. Í fjárlfrv. nú er þessi fjárveiting hækkuð í 11.3 millj. Þrátt fyrir þessa hækkun er svo ástatt, að fjárveitingin nægir aðeins til þess að greiða hið lögboðna framlag ríkissjóðs til þeirra skóla, sem nú eru í smíðum og því ekki gert ráð fyrir neinum nýjum skólum. Þörfin fyrir nýja skóla er hins vegar víða svo brýn, að ógerlegt er að fresta framkvæmdum. N. hefur því talið óhjákvæmilegt að leggja til, að tekin verði upp fjárveiting til 7 nýrra barnaskóla og 2 skólastjóraíbúða og fer því þó fjarri, að þörfinni sé fullnægt. Nemur þá hækkun á fjárveitingu til barnaskólabygginga 2.7 millj. kr.
Um gagnfræðaskólana gegnir svipuðu máli. Fjárveiting til þeirra í fjárlfrv, nægir aðeins til að greiða hluta ríkissjóðs af stofnkostnaði skóla í smíðum, en þörf nýrra skóla mjög brýn. Er lagt til að veita nokkra fjárhæð til byggingar 2 nýrra gagnfræðaskóla og til endurbyggingar á einum skóla. Nemur þá hækkun fjárveitingar til byggingar gagnfræðaskóla 1.3 millj. kr.
Þá er og lagt til að taka upp fjárveitingu til 2 iðnskóla, á Selfossi og í Hafnarfirði, 50 þús. kr. til hvors.
Fjvn. hafa borizt allmörg erindi, þar sem beðið er um sérstaka fjárveitingu til eflingar skógrækt við ýmsa héraðsskóla, þar eð sú skógrækt nýtur ekki styrks frá skógrækt ríkisins, eins og skóggræðsla á vegum skógræktarfélaganna. Sjálfsagt er að örva þessa skógræktarstarfsemi við skólana, en n. telur nauðsynlegt, að sú starfsemi verði felld inn í ramma skógræktar ríkisins. Telur n. ekki fært að veita sérstakar fjárveitingar í þessu skyni, fyrr en niðurstaða er fengin um frambúðarskipan þessa þáttar skógræktarmálanna.
Þá er og rétt að geta þess, að n. hafa borizt óskir frá flestum starfandi tónlistarskólum um aukinn styrk. Augljóst er, að starfsemi hinna ýmsu tónlistarskóla er mjög mismunandi, bæði að magni og gæðum, en fjvn. hefur enga aðstöðu til þess að kynna sér í einstökum atriðum starfsemi þessara skóla. N. hefur því ekki talið sér fært að gera nú neinar breytingar á fjárveitingum til tónlistarskóla. Henni er vel ljóst, að hér er um merkilega menningarstarfsemi að ræða, sem með ári hverju verður umfangsmeiri, en telur ógerlegt að veita þessum skólum styrki — meira og minna af handahófi — svo sem gert hefur verið. Er nauðsynlegt, að menntmrn. safni ýtarlegum gögnum um alla þessa skóla og starfsemi þeirra og reynt verði að finna einhvern grundvöll til þess að byggja á í sambandi við styrkveitingar til skólanna.
Þá vil ég minnast á eitt atriði, þótt ekki varði það miklu fyrir afkomu ríkissjóðs. N. mælir með því að veita 15 þús. kr. styrk vegna útgáfu minningarrits um 30 ára starf Laugarvatnsskóla. Ýmsir slíkir styrkir hafa verið veittir á undanförnum árum og virðist það fara í vöxt, að ýmsar ríkisstofnanir gefi út afmælis- og minningarrit og leiti síðan eftir á ríkisstyrks til útgáfunnar. Þótt mörg þessara rita hafi ýmiss konar fróðleik að geyma, þá getur það ekki gengið, að einstakar ríkisstofnanir á eigin spýtur hefjist handa um útgáfustarfsemi í trausti þess að fá síðar fé úr ríkissjóði til að standa undir halla af útgáfunni. Um þetta verður ríkisstj. að setja ákveðnar reglur, er farið verði framvegis eftir.
Um 10 ára skeið hefur Björn Pálsson starfrækt sjúkraflug og mun óhætt að fullyrða, að þessi starfsemi hefur bjargað fjölda mannslífa. Fyrir strjálbýlið er þessi þjónusta ómetanleg og skapar mikið öryggi. Sjúkraflug þetta hefur Björn Pálsson rekið á eigin ábyrgð og eigi notið annars ríkisstyrks en 50 þús. kr. árlega af því fé, sem varið er til slysavarna á vegum Slysavarnafélags Íslands. Nú hefur Björn Pálsson tjáð n., að rekstrarkostnaður sjúkraflugsins sé orðinn svo mikill, að eigi sé auðið að starfrækja það án verulegs fjárstyrks. Jafnframt hefur hann gert tillögur til n. um frambúðarskipan þessarar þjónustu. Fjvn. telur brýna nauðsyn að tryggja framhaldandi sjúkraflug og telur það ekki betur komið í annarra höndum en Björns Pálssonar vegna reynslu hans og frábærrar atorku á þessu sviði. Leggur n. því til, að Birni Pálssyni verði veittar vegna sjúkraflugsins 100 þús. kr. til viðbótar þeim 50 þús. kr., er hann mun fá frá Slysavarnafélagi Íslands, en jafnframt telur n. nauðsynlegt, að ríkisstj. taki upp samninga við Björn um tilhögun sjúkraflugsins í framtíðinni.
Að undanteknum nokkrum stórum útgjaldaliðum, sem sérstaklega er ástatt með og ég mun nú víkja að, nema hækkunartillögurnar á þskj. 391 aðeins um 6.5 millj. kr., og eru af þeirri upphæð um 3 millj. kr. hækkun til hafnargerða og skólabygginga. Sýnir þetta glöggt, hversu hófsamlega hefur verið farið í hækkun útgjalda þrátt fyrir þann mikla fjölda fjárbeiðna, sem n. bárust.
Vík ég þá að nokkrum liðum, sem hafa sérstöðu.
Stofnsett hefur verið sérstök sjúkradeild í dvalarheimili aldraðra sjómanna. Leiðir af þessu óhjákvæmilega hækkun útgjalda vegna lögboðinna sjúkrastyrkja og hækka af þessum sökum framlög til annarra sjúklinga, en berklasjúklinga um tæpar 900 þús. kr. Þessi útgjaldaliður í 17. gr. fjárl. hækkar þó raunverulega ekki nema um tæpar 700 þús. kr., þar eð útgjöldin eru áætluð þar lítið eitt of há.
Þá hafa framlög til almannatrygginganna verið of lágt áætluð í frv. og hefur reynzt óhjákvæmilegt að hækka þá fjárveitingu um 4.5 millj. kr., og er þá sá útgjaldaliður 11 millj. kr. hærri, en í fjárl. ársins 1958.
Samkvæmt endurskoðaðri rekstraráætlun er gert ráð fyrir því, að rekstrarkostnaður gufubors ríkisins og Reykjavíkurbæjar verði á þessu ári um 10 millj. kr., en í fjárlfrv. er aðeins lagt til að veita 3.7 millj. kr. til rekstrar gufuborsins. Samkv. samningi er ríkissjóði skylt að greiða helming rekstrarkostnaðar á móti Reykjavíkurbæ. Ekkert vit er í að láta þetta dýra tæki standa ónotað, enda allar horfur á, að mikill árangur verði af borunum þessum. Verður því að hækka fjárveitingu ríkissjóðs um 1.3 millj. kr. Þá hefur stjórn gufuborsins farið fram á 600 þús. kr. fjárveitingu frá ríkissjóði og Reykjavíkurbæ, hvorum um sig, til kaupa á borvindu til djúpborunar. Hér er tvímælalaust um brýnt nauðsynjamál að ræða, en eðlilegt virðist vera að leysa slíka fjárfestingu með lántöku, þar eð borkostnaðurinn verður talinn með stofnkostnaði, þegar hinar einstöku borholur verða beizlaðar og er samkomulag við fjmrh., að reynt verði að leysa málið á þann veg.
Í fjárlfrv. er, sem áður segir, reiknað með 183 stiga kaupgjaldsvísitölu. Í janúarmánuði var starfsmönnum ríkisins greitt kaup eftir kaupgjaldsvísitölu 203 stig. Veldur þetta ríkissjóði 3.2 millj. kr. útgjöldum. 6 og 9% grunnkaupshækkun opinberra starfsmanna, sem samþ. var nokkru fyrir áramót, veldur 24 millj. kr. hækkun og grunnkaupshækkun verkamanna 12 millj. kr. hækkun útgjalda á þessu ári. Hér kemur svo aftur til frádráttar lækkun launa vegna lækkaðrar vísitölu úr 183 stigum í 175 stig. Nemur sú lækkun samtals 22 millj. kr. Nettó-útgjaldahækkun vegna launabreytinga verður því samtals 17.2 millj. kr. Ógerlegt er að deila þessari hækkun niður á hvern einstakan lið frv., og er því lagt til að taka fjárveitingu til að mæta þessum útgjöldum í 19. gr. frv.
Þar sem í nál. okkar í 1. minni hl. n. er ekki gerð nein sérstök grein fyrir brtt. n. við heimildagrein frv., ætla ég að víkja nokkrum orðum að sumum þeirra till. til frekari skýringa.
Lagt er til að auka aðstoð við blinda á þann hátt að heimila að fella niður aðflutningsgjöld af sendiferðabifreið fyrir Blindravinafélag Íslands og veita enn fremur 20 blindum mönnum í stað 10 áður þau hlunnindi, að þeir fái síma án þess að þurfa að greiða stofngjöld eða afnotagjöld. — Þá er og í brtt. við 17. gr. lagt til að veita Blindrafélaginu nokkurn byggingarstyrk. Hér er um styrktarstarfsemi að ræða, sem allir munu áreiðanlega sammála um.
Stjórn sementsverksmiðju ríkisins hefur að undanförnu unnið að því að tryggja verksmiðjunni nauðsynlegt rekstrarfé. Eru horfur á, að það rekstrarfé fáist, en þó því aðeins, að ríkissjóður ábyrgist greiðslu rekstrarlánsins. Sementsverksmiðjan er eign ríkisins, og virðist ekki álitamál, að ríkissjóður veiti þessa ábyrgð til þess að tryggja rekstur verksmiðjunnar.
Það hefur komið í ljós, að lánsheimildir þær, sem í lögum eru varðandi skip þau, sem smíðuð hafa verið í Austur-Þýzkalandi á vegum ríkisstj., eru ekki nægilega háar, því að skipin hafa hækkað í verði og enn fremur mun reynast óumflýjanlegt að hækka hundraðstölu láns út á hvert skip. Ríkisstj. hefur því óskað eftir að fá viðbótarlántökuheimild, er nemi allt að 14.5 millj. kr. Telur n. ekki um annað að ræða, en veita þá heimild.
Á s. l. sumri urðu bændur í ýmsum sveitum á Norður- og Norðausturlandi fyrir allþungum búsifjum vegna langvarandi óþurrka. Var bændum þessum veitt aðstoð með lánum til kjarnfóðurskaupa fyrir milligöngu bjargráðasjóðs, en ríkissjóður lagði fram féð. Var ekki auðið að afla fyrir fram heimildar Alþ. til þessara ráðstafana, en lagt er til, að þessi ráðstöfun verði staðfest af Alþ. nú með heimild í 22. g., fjárl.
Á Norður- og Norðausturlandi er víða heitt vatn í jörðu. Hitaveitur eru þegar komnar á Ólafsfirði og Sauðárkróki til mikilla þæginda fyrir íbúa þessara stað, og mikill áhugi er á að koma upp hitaveitu fyrir Akureyri og Húsavík. Hitaleit hefur einnig sums staðar á þessu svæði mikla þýðingu í sambandi við hugsanlega hagnýtingu jarðefna. Flutningur jarðbora er mjög kostnaðarsamur, enda næg verkefni annars staðar fyrir þá jarðbora, sem tiltækir eru. Það er því talið mjög æskilegt, að keyptur verði jarðbor, er staðsettur verði nyrðra. Er talið, að kaupverð slíks bors sé um 3 millj. kr. og árlegur rekstrarkostnaður nemi svipaðri upphæð. Jarðhitinn í landi voru jafngildir kola- og olíunámum annarra þjóða og er því naumast áhorfsmál, að leggja beri alla áherzlu á að hagnýta sem bezt þessa dýrmætu orku. Er því lagt til, að ríkisstj. verði heimilað að kaupa umræddan jarðbor.
Síldarverksmiðjur ríkisins hafa undirbúið að reisa soðvinnslustöð við síldarverksmiðju sína á Raufarhöfn. Slíkri stöð var komið upp við verksmiðjurnar á Siglufirði fyrir síldarvertíð í fyrra. Reyndist sú stöð vel og skilaði góðum arði, enda þótt verksmiðjunum bærist lítil síld til vinnslu. Áætlað er, að hin fyrirhugaða stöð á Raufarhöfn geti unnið soð úr 5.500 málum síldar á sólarhring, og mundi stofnkostnaður stöðvarinnar verða um 3 millj. kr. Stjórn síldarverksmiðjanna telur sig geta fengið lán til þessara framkvæmda, en þó því aðeins, að ríkisábyrgð fáist. Þar eð hér sýnist vera um þjóðhagslega skynsamlega framkvæmd að ræða og stofnkostnaður að mestu leyti innlendur og verksmiðjurnar auk þess eign ríkisins, telur n. sjálfsagt að velta umbeðna ábyrgð.
Í fjárlögum ársins 1958 var Krossanesverksmiðjunni, sem er eign Akureyrarkaupstaðar, veitt ríkisábyrgð á allt að 1 millj. kr. láni til þess að koma upp heilmjölsvinnslutækjum í verksmiðjunni. Var áætlað, að framkvæmdir þessar kostuðu um 2 millj. kr. Ábyrgðarheimild þessi hefur þegar verið notuð. Verksmiðjustjórnin hefur loforð fyrir lánum til að ljúka verkinu, en á sumum þessara lána a. m. k. mun vera krafizt ríkisábyrgðar. Það er að vísu óeðlilegt að veita ríkisábyrgð fyrir öllum stofnkostnaði, og er rétt, að ríkisstj. gangi ekki lengra í þessu tilfelli, en brýn nauðsyn krefur, en hins vegar telur n. nauðsynlegt að tryggja það, að framkvæmd verksins stöðvist ekki.
Auk þessara heimilda, sem öll n. mælir með að veittar verði, er ein viðaukatillaga við 22. gr. frv., sem n. hefur ekki orðið sammála um, en við í 1. minni hl. n. teljum sjálfsagt að mæla með og flytjum því með öðrum sértillögum okkar. Er hér um að ræða heimild fyrir ríkisstj. til þess að gefa útvegsmönnum eftir þær skuldakröfur, sem ríkissjóður hefur eignazt á þá vegna innlausnar á lánum, sem hann er í ábyrgð fyrir vegna þurrafúa í fiskiskipum.
Fyrir nokkrum árum fór að verða vart nokkurra skemmda í ýmsum fiskiskipum af völdum svokallaðs þurrafúa. Hafa ýmsir útvegsmenn orðið fyrir þungum búsifjum af þessum sökum. Óumflýjanlegt var talið að hlaupa undir bagga með þessum mönnum og hafa í fjárlögum síðustu ára verið veittar ríkisábyrgðarheimildir fyrir lánum til viðgerðar á skipum þessum. Frá upphafi hefur verið reiknað með því, að ríkissjóður taki að sér greiðslur þessara lána, enda afkoma útvegsins ekki slík, að útvegsmenn gætu tekið á sig slíkt tjón, því að verðuppbætur til útvegsins voru ekki miðaðar við, að auðið væri að mæta slíkum áföllum. Var þetta í rauninni staðfest af fjmrn., þegar ríkisábyrgðin var veitt, enda þótt lánin væru til svo skamms tíma, að þess væri engin von, að viðkomandi útvegsmaður gæti greitt þau á svo skömmum tíma. Síðan hefur verið sett löggjöf um sérstaka tryggingu á fiskiskipum til þess að mæta þessum áföllum hér eftir. Í samningum við útvegsmenn um síðustu áramót féllst ríkisstj. á, að útflutningssjóður greiddi iðgjöld af þurrafúatryggingum fiskiskipa, svo sem gert hefur verið með önnur tryggingagjöld.
Ef þeir útvegsmenn, sem fengið hafa með ríkisábyrgð lán til þess að greiða með áfallinn kostnað vegna þurrafúaskemmda, yrðu krafðir um þau lán, þá væri hlutur þeirra gerður lakari en hinna, sem hér eftir verða fyrir hliðstæðum áföllum. Af þeim sökum féllst ríkisstj. á þá ósk Landssambands ísl. útvegsmanna, að ríkissjóður taki að sér greiðslu á þeim þurrafúalánum, sem útvegsmenn þegar hafa tekið vegna þurrafúaskemmda. Við í 1. minni hl. n. teljum sjálfsagt, að staðið verði við það fyrirheit.
Þá er komið að því að gera grein fyrir þeim till. okkar í 1. minni hl. n., sem eiga að geta tryggt það, að auðið reynist að afgreiða greiðsluhallalaus fjárlög án þess að leggja á almenna skatta eða tolla. Það væri engum vandkvæðum bundið að afgreiða fjárlögin greiðsluhallalaus, ef ekki þyrfti jafnframt að sjá fyrir þörfum útflutningssjóðs. En fjárhagsmál þessara sjóða verða ekki aðskilin. Ýmsir halda því að vísu fram, að útgjöld útflutningssjóðs séu allt annars eðlis. Er það rétt, að útflutningsuppbætur eru ekki neinir venjulegir ríkisstyrkir, en fjár til þessara sjóða er aflað með sams konar ráðum, sköttum á almenning í landinu. Og mjög er vafasamt, að niðurgreiðslur á vöruverði, sem nú í ár munu nema um 250 millj. kr., eigi fremur að teljast útgjöld útflutningssjóðs en ríkissjóðs, þótt fyrrv. fjmrh. hafi látið flytja þær yfir á útflutningssjóðinn til þess að sýna minni hækkun útgjalda ríkissjóðs.
Áætlað er, að útgjöld útflutningssjóðs á þessu ári aukist um 199 millj. kr. vegna aukinna útflutningsuppbóta og niðurgreiðslu á vöruverði. Hin aukna aðstoð við útflutningsatvinnuvegina um s. l. áramót leiðir af sér 82.3 millj. kr. ný útgjöld. Þær bætur voru miðaðar við kaupgjaldsvísitölu 175 stig. Þrátt fyrir 10 stiga lækkun kaupgjaldsvísitölunnar með lögum um lækkun kaupgjalds og verðlags og afleiddar verðlækkanir til þess að koma kaupgjaldsvísitölunni niður hefur reynzt óumflýjanlegt að auka niðurgreiðslur vöruverðsins mjög mikið til þess að koma kaupgjaldsvísitölunni niður í 175 stig. Til viðbótar þeim niðurgreiðslum, sem áður giltu og áætlað var að kostuðu útflutningssjóð 135 millj. kr. á þessu ári, hafa niðurgreiðslur síðan um áramót verið auknar um 109.1 millj. kr. Þar við bætast 7.6 millj. kr. útgjöld, sem stafa af aukinni neyzlu niðurgreiðsluvara. Á sú upphæð raunverulega að bætast við hinar fyrri niðurgreiðslur, því að þær voru ekki miðaðar við raunverulega neyzlu niðurgreiddra vara.
Til þess að mæta þessum nýju útgjöldum útflutningssjóðs án nýrra almennra skatta- og tollahækkana er ráðgert að rýmka um innflutning bifreiða og gjaldeyrisleyfa, ef umsækjendur hafa á eðlilegan hátt eignazt gjaldeyri og hækka jafnframt leyfisgjald af bifreiðum þessum. Virðist þetta eðlileg ráðstöfun, því að ella yrði gjaldeyri þessum varið til annarra kaupa, sem vafasamt er að gæfu ríkissjóði nokkrar tolltekjur. Um tilhögun þessa gjalds í einstökum atriðum mun ég ekki ræða nánar, því að það varðar í rauninni ekki beint afgreiðslu fjárlaga, heldur mun ríkisstj. gera fjárhagsnefndum þingsins grein fyrir þeirri fjáröflunarleið í sambandi við frv. um útflutningssjóð. Áætlað er, að gjald þetta veiti útflutningssjóði 25 millj. kr. auknar tekjur.
Þá er og gert ráð fyrir því, að 20 millj. kr. framlag það frá útflutningssjóði til ríkissjóðs, sem ákveðið er í lögum um útflutningssjóð, falli niður. Vantar þá 154 millj. kr., og er lagt til í till. okkar í 1. minni hl. n., að ríkissjóður leggi útflutningssjóði þá fjárhæð.
Bil það milli tekna og gjalda, sem brúa þarf hjá útflutningssjóði og ríkissjóði, miðað við tekjuáætlun fjárlagafrv., nemur því um 230 millj. kr. Þegar ætlunin er að brúa slíkt bil án þess að hækka almenna skatta og tolla, má sérhverjum manni ljóst vera, að það verður ekki gert nema með því móti að gera ýmsar róttækar ráðstafanir til þess að draga úr útgjöldum ríkissjóðs. Okkur í 1. minni hl. n. er það mætavel ljóst, að slíkar ráðstafanir eru aldrei vinsælar hjá þeim, sem fyrir barðinu á þeim verða, ekki sízt þegar lítið aðhald hefur verið áður um fjáreyðslu ríkissjóðs. En það er samt sannfæring okkar, að þjóðinni sé svo ljós sú hætta, sem yfir henni vofir, ef ekki er hægt að taka upp nýja stefnu í efnahags- og fjármálum þjóðarinnar, að ábyrgðarlausum lýðskrumurum takist ekki að villa henni sýn um nauðsyn þeirra neyðarráðstafana, sem nú verður að gera eftir uppgjöf vinstri stjórnarinnar, enda er sannleikur málsins sá, að ráðstafanir þessar eru alls ekki tilfinnanlegar sem bráðabirgðaráðstafanir.
Við í 1. minni hl. n. leggjum til að lækka ýmsa útgjaldaliði fjárlagafrv. um rúmar 49 millj. kr. Mun ég nú í stuttu máli gera grein fyrir þessum till.
Lagt er til að lækka um 5% ýmsa fjárfestingarliði frv. Nær þessi lækkun til liða, sem samtals nema tæpum 166 millj. kr., og sparar ríkissjóði 8.3 millj. kr. Undanþegnar þessari lækkun eru fjárveitingar til hafnargerða, brúargerða, nýbyggingar vega og endurbyggingar vega. Lækkunin nær til skólabyggingafjár, en þær fjárveitingar hafa hins vegar verið hækkaðar meira, en þessari skerðingu nemur. Skerðingin nær ekki til fjárlagaliða, sem sérstakar lækkunartill. eru gerðar um.
Í nál. okkar eru þessir fjárlagaliðir taldir upp og mun ég ekki eyða tíma í að ræða hvern einstakan þeirra, nema sérstakt tilefni gefist til. Varðandi jarðræktarframlögin, sem eru lögbundin, vil ég þó taka það fram, að lækkunin byggist á upplýsingum um það, að jarðræktarframkvæmdir á s. l. ári hafi eigi verið meiri, en árið áður, en jarðræktarstyrkurinn er í fjárlagafrv. nú áætlaður 2 millj. kr. hærri en í fjárlögum ársins 1958.
Stærsti liðurinn, sem skerðingin nær til, er viðhald þjóðvega. Rétt er að vekja athygli á því, að þrátt fyrir þessa skerðingu er fjárveiting til viðhalds þjóðvega 9 millj. kr. hærri en í fjárlögum s. l. árs. Vitanlega væri full þörf fyrir óskerta fjárveitingu og miklu meira en það. En miðað við það aðhald, sem nú er óumflýjanlegt, og einnig það, að þrátt fyrir skerðinguna er viðhaldið nú í fyrsta sinn um langt skeið áætlað sómasamlegt, þykir mega takmarka fjárveitinguna við 9 millj. kr. hækkun. Viðhald þjóðveganna s. l. ár kostaði ríkissjóð 41 millj. kr., og í vetur mun kostnaður við snjómokstur hafa verið allmiklu minni, en undanfarna vetur.
Lagt er til að lækka alþingiskostnað um 500 þús. kr. Er sú till. við það miðuð, að þinghald verði í ár a. m. k. hálfum mánuði styttra, en í fyrra. Er þá gert ráð fyrir því, að þingið verði nú um það bil þremur vikum styttra, en í fyrra og þing hefjist síðar í haust, en vant er. Ef svo reynist, ætti sú stytting að gefa umræddan sparnað, enda þótt stutt sumarþing verði. Mun enda alþingiskostnaður ríflega áætlaður í frv. 9 millj. kr., sem er 2 millj. kr. hærra, en í fjárlögum s. l. árs.
Þá er lagt til að lækka fjárveitingu til stjórnarráðsins um sömu fjárhæð, 500 þús. kr. Hvort tveggja er, að fækkun ráðherra og þar af leiðandi minni ýmis kostnaður, svo sem bílakostnaður, ætti að valda töluverðum sparnaði og enn fremur hitt, að í fjárlagafrv. er liðurinn „Annar kostnaður ráðuneytanna“ hækkaður um 900 þús. kr. frá fjárlögum s. l. árs og má ótvírætt ætla, að draga megi úr þeim kostnaði. Ég er í engum efa um, að með skynsamlegri vinnubrögðum er auðið að lækka kostnaðinn við stjórnarráðið um 500 þús. kr., þegar þess er gætt, að stjórnarráðið kostar nú samtals 17.3 millj. kr. Er það enda mat núverandi fjmrh., að þessi lækkun fjárveitinga til stjórnarráðsins fái staðizt og þegar um það er að ræða að reyna að draga úr tilkostnaði við ríkisreksturinn, fer vel á því, að bæði Alþ. og stjórnarráð gefi gott fordæmi.
Þá er lagt til að lækka fjárveitingu til tollgæzlu utan Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar um ½ millj. Okkur er vel ljós nauðsyn þess að halda uppi traustri tollgæzlu. En á því sviði sem öðrum verður að reyna að halda kostnaðinum innan skynsamlegra takmarka og á ýmsum greinum er hér um algerlega óþarfa fjáreyðslu að ræða. Í frv. er gert ráð fyrir 9 millj. kr. kostnaði við tollgæzluna,og má áreiðanlega að skaðlausu spara ½ millj.
Lagt er til að lækka fjárveitingu til Skipaútgerðar ríkisins um 6 millj. kr. Í fjárlagafrv. er gert ráð fyrir 16 millj. kr. fjárveitingu til að greiða halla útgerðarinnar eins og s. l. ár. Rekstrarhallinn á s. l. ári varð hins vegar ekki nema 12 millj. kr. Miðað við það, að skipaútgerðin naut ekki taxtahækkunar nema hluta úr því ári, ætti ekki að þurfa að gera ráð fyrir lakari útkomu á þessu ári. Þá er þess enn fremur að gæta, að skip útgerðarinnar voru tekin úr tryggingu um s. l. áramót, en tryggingariðgjöld vegna skipanna urðu rúmar 3 millj. kr. s. l. ár. Reynslan er sú, að meðaltjón á skipunum er ekki nema 1 millj. kr. á ári. Þessi lækkun fjárveitingar ætti því að fá staðizt, þótt miðað sé við, að útgerðin veiti sömu þjónustu og verið hefur. Rétt er og í þessu sambandi að benda á ítrekaðar ábendingar sparnaðarnefnda ríkisins um að selja Esju, sem er orðin mjög dýr í rekstri. Nauðsynlegt er og að taka til rækilegrar athugunar, hvort ekki er í framtíðinni hægt að haga strandsiglingum á þann veg, að kostnaðar minna sé fyrir ríkið. Þyrfti að taka upp samninga við önnur skipafélög í því sambandi.
Lagt er til að lækka fjárveitingu til bygginga í Skálholti um 500 þús. kr. Það er af mörgum ástæðum nauðsynlegt að taka sem fyrst ákvörðun um það, hvaða hlutverki þessi sögufrægi staður eigi að gegna í framtíðinni. En meðan ekki er vitað, til hverra þarfa nota eigi byggingar í Skálholti, ætti ekki að koma að sök, þótt aðeins sé varið 500 þús. kr. til framkvæmda þar á þessu ári.
Um nokkurt árabil hefur ríkissjóður lagt árlega fram 2 millj. kr. til kaupa á stórum jarðræktarvélum samkvæmt ákvæðum laga um jarðræktar- og húsagerðarsamþykktir í sveitum. Þessari lagaskyldu var fullnægt á s. l. ári, og eru enn ónotaðar 1.2 millj. kr. af þeirri fjárveitingu. Sú fjárhæð er því til ráðstöfunar á þessu ári. Ætti því að skaðlausu að mega fella niður þessa fjárveitingu.
Þeirri venju hefur verið fylgt að veita ekki fé til byggingar skóla, sem ekki hafa notað til fulls fengnar fjárveitingar. Á þeirri forsendu, að Iðnskólinn í Reykjavík á enn óhafið 628 þús. kr. af fjárveitingu áranna 1957 og 1958, er lagt til að fella niður fjárveitingu til skólans á þessu ári. Eftir upplýsingum, sem mér hafa borizt, eftir að gengið var frá tillögum okkar, virðist þetta mál þarfnast nánari athugunar, og verður því þessi till. tekin aftur til 3. umr.
Lagt er til, að kostnaður vegna framkvæmdar orlofslaga lækki um 500 þús. kr. Er þá gert ráð fyrir því, að hætt verði notkun orlofsmerkja, enda orlofsfé í æ fleiri tilfellum nú greitt í peningum. Virðist ástæðulaust að setja mönnum ákveðnar reglur um það, hvernig þeir ráðstafi orlofsfé sínu. Þar sem nokkuð er nú liðið á árið, er ekki auðið að fella fjárveitinguna alveg niður.
Lagt er til, að 10 millj. kr. fjárveiting til nýrra raforkuframkvæmda falli niður á þessu ári. Með þessari ráðstöfun er ekki ætlunin að draga á neinn hátt úr framkvæmdum rafvæðingaráætlunar strjálbýlisins, sem gerð var í tíð ríkisstjórnar Ólafs Thors. Mjög tilfinnanlegur samdráttur varð á s. l. ári í lagningu þeirra dreifiveitna um sveitirnar, sem 10 ára áætlunin gerði ráð fyrir á því ári. Til ársins 1957 var þeirri áætlun fylgt og vel það, en á því ári var frestað lagningu nokkurra héraðsveitna til næsta árs og í fyrra keyrði um þverbak, því að þá var frestað lagningu helmings þeirra dreifiveitna, sem leggja átti á því ári. Nauðsynlegt er því að koma í veg fyrir áframhaldandi samdrátt þessara mikilvægu framkvæmda og var ekki ákveðið að taka þessa fjárveitingu út úr fjárlfrv., fyrr en sýnt þótti, að auðið væri að tryggja nægilegt lánsfé til framkvæmdanna.
Við 1. umr. fjárlfrv. í haust benti ég á hina geigvænlegu aukningu vanskila á ábyrgðarlánum ríkissjóðs. Er í frv. lagt til að hækka fjárveitingu þessara vanskila um þriðjung frá fyrra ári, eða um 10 millj. kr. Í þessu efni er ekki hægt að láta reka svo á reiðanum sem gert hefur verið að undanförnu. Eftir till. minni samþykkti Alþ. fyrir nokkru þál. um undirbúning löggjafar um ríkisábyrgðir. Verður að leggja kapp á að koma þeim málum í betra horf. Það er auðvitað engum efa bundið, að í flestum tilfellum gera menn það ekki að gamni sínu að láta ábyrgðir falla á ríkissjóð og hér er í mörgum tilfellum um svipaðan vanda að ræða og reynt hefur verið að mæta með fjárveitingu til atvinnuaukningar. Er því mjög athugandi, hvort ekki ætti að láta atvinnuaukningarsjóðinn, sem tvímælalaus nauðsyn er að setja sem fyrst löggjöf um, fá mun meira fé til ráðstöfunar og láta hann þá jafnframt fá í hendur, eftirlit með ríkisábyrgðarlánum. Það er mat núverandi fjmrh., að lækka megi þessa fjárveitingu um 10 millj. kr., þannig að veittar væru 20 millj. kr. til að standa straum af vanskilalánum eins og á s. l. ári. Yfirvofandi voru alvarleg áföll vegna ríkisábyrgðanna, þegar fjárlfrv. var undirbúið og hefur upphæðin vafalaust verið hækkuð m. a. með hliðsjón af því. En bjargað hefur nú verið frá þeim áföllum á þessu ári a. m. k. að verulegu leyti.
Lagt er til, að framlag til bygginga á ríkisjörðum lækki á þessu ári um 500 þús. kr. Hér er sennilega um all tilfinnanlega lækkun að ræða, en þykir ekki verða hjá henni komizt.
Í fjárlfrv. er lagt til að hækka fjárveitingu til flugvallagerða um 2 millj. kr. Vissulega er hér um brýna þörf að ræða. En ekki er þó talið verða hjá því komizt að láta sömu reglu gilda um flugvelli og vegi, að veitt sé sama fjárveiting til þessara framkvæmda og s. l. ár. Nú hefur í fyrsta sinn framkvæmdafénu verið skipt milli einstakra flugvalla. Var um þá skiptingu leitað tillagna flugráðs. Áfram er lagt til að gildi sú heimild að verja umframtekjum af flugvöllum til flugvallagerða.
Lagt er til að lækka ýmsar fjárveitingar til bygginga á vegum ríkisins, svo sem sjómannaskólans og Menntaskólans á Akureyri og lagt er til að fella alveg niður í ár fjárveitingar til byggingar nýs menntaskólahúss í Reykjavík og nýs stjórnarráðshúss, þar eð ekki er byrjað á þeim byggingum.
Lagt er til að lækka fjárveitingu til byggingar lögreglustöðvar á Keflavíkurflugvelli um 100 þús. kr. og fjárveitingu til dísilrafstöðva í kauptúnum um 200 þús. kr. Þeim stöðvum fækkar nú stöðugt, eftir því sem fleiri kauptún fá orku frá samveitum. Verði þörf óskertrar fjárveitingar á þessu ári, mun fyrir því séð af því lánsfé, sem til ráðstöfunar verður.
Lagt er til að lækka fjárveitingu vegna atvinnuaukningar um 3.5 millj. kr. og verður þá fjárveitingin í ár 10 millj. kr. Full þörf hefði að vísu verið á óskertri fjárveitingu, en auðið þótti þó að lækka fjárveitinguna með hliðsjón af auknum lánveitingum atvinnuleysistryggingasjóðs til þessara þarfa. Hlýtur það enda að vera fyrsta skylda hans að verja fé sínu til þess að reyna hvarvetna að koma í veg fyrir atvinnuleysi.
Ráðstöfun atvinnuaukningarfjár hefur oft þótt næsta handahófskennd. Sjálfstæðismenn hafa á undanförnum þingum flutt frv. um að koma föstu skipulagi á þessa starfsemi ríkisins. Því miður hefur ekki náðst samstaða um að samþykkja þá löggjöf, en við munum leggja áherzlu á, að það verði gert. Í því frv. er lagt til, að Alþingi kjósi fimm menn með hlutfallskosningu til þess að ráðstafa atvinnuaukningarfénu. Hefur orðið samkomulag um að leggja til, að sú skipan verði nú upp tekin varðandi ráðstöfun atvinnuaukningarfjárins á þessu ári.
Lagt er til að lækka fjárveitingu til afurðamatsins um 500 þús. kr. og fella niður fjárveitingu til Skipaskoðunar ríkisins, tæpar 500 þús. kr., til að mæta rekstrarhalla hennar, eins og hann er áætlaður að óbreyttu fyrirkomulagi. Telur ríkisstj. auðið að mæta þessum lækkunum með tilsvarandi gjaldahækkun, sem á engan hátt verði tilfinnanleg, enda er óeðlilegt, að skipaskoðunin geti t. d. ekki verið rekin hallalaus eins og bifreiðaeftirlitið. Mun ríkisstj. gera ráðstafanir til þess að gera nauðsynlegar skipulagsbreytingar, ef Alþingi fellst á till. þessar.
Sennilega munu ýmsir segja sem svo, að leggja hefði mátt meiri áherzlu á að lækka rekstrarútgjöld ríkissjóðs, en draga úr fjárveitingum til ýmissa fjárfestingarframkvæmda, svo mikið sem hér er lagt til. Við í 1. minni hl. n. hefðum gjarnan einnig viljað höggva meir í ýmsa rekstrarliði. En í því sambandi verður að hafa í huga, að mjög stór hluti af útgjöldum ríkissjóðs er lögboðinn og breytingar á ríkisstofnunum verða ekki gerðar fyrirvaralaust. Við teljum t. d. sjálfsagt að fækka sendiráðum Íslands erlendis. En það getur naumast komið til framkvæmda fyrr en um næstu áramót og mundi því ekki spara útgjöld á þessu ári, svo að neinu nemi. Bæði þetta og ýmis önnur atriði er nauðsynlegt að undirbúa í sambandi við samningu næstu fjárlaga. Varðandi fjárfestinguna er og þess að gæta, að ýmsir hinna veigamestu fjárfestingarliða eru óskertir eða jafnvel hækkaðir, og á hinn bóginn er nauðsynlegt að hafa í huga, að of mikil fjárfesting er talin ein af meinsemdum efnahagskerfisins og m. a. taki ríkissjóður of mikið fé frá almenningi til opinberrar fjárfestingar. Er hér sem á öðrum sviðum vandratað meðalhófið.
Í ræðu minni við 1. umr. fjárlaga í haust fann ég að því, að ekki skyldi hafa þótt ómaksins vert að gera sér grein fyrir því í sambandi við ríkisbúskapinn, hver mætti vera árleg hækkun fjárlaga, til þess að ekki þyrfti árlega að hækka skatta, ef gengið væri út frá því, að jafnvægi væri náð, þannig að kaup og verðlag væri óbreytt að mestu frá ári til árs. Hér er um mjög veigamikið atriði að ræða, sem láðst hefur að athuga vegna verðbólguþróunarinnar. Nú hefur þessi athugun verið gerð á útgjaldahlið fjárlaga síðustu fimm árin, og fæst þá sú eftirtektarverða niðurstaða, að meðalhækkun ríkisútgjalda umfram hækkanir vegna dýrtíðar nemur tæpum 10% á ári. Því miður hef ég ekki enn fengið í hendur niðurstöður varðandi meðalhækkun tekna ríkissjóðs umfram áhrif verðbólgunnar, en mér er nær að halda, að tekjuhækkun, miðað við óbreytta tekjustofna, geti ekki verið svona mikil. Hér er um mjög mikilvægt grundvallaratriði að ræða, sem raunverulega er óumflýjanlegt að hafa hliðsjón af við undirbúning fjárlaga hverju sinni.
Eins og ég áðan gat um, nema sparnaðartill. okkar í 1. minni hl. n. rúmum 49.2 millj. kr. Kemur þá til athugunar, hver önnur úrræði séu til að brúa hið breiða bil tekna og gjalda.
Það var háttur hæstv. fyrrv. fjmrh. að áætla jafnan tekjur ríkissjóðs það varlega, að góðar horfur væru á ríflegum greiðsluafgangi. Út af fyrir sig eru þetta góðir búskaparhættir. En á því búskaparlagi eru þó ýmsir annmarkar. Augljóst er, að mjög rúm tekjuáætlun dregur úr aðhaldi fyrir fjmrh. og má sjá þess merki á mörgum sviðum á undanförnum árum. Hitt er þó e. t. v. verra, þegar þessari löngun til að hafa jafnan miklar umframtekjur verður að mæta með álögum á almenning, svo sem verið hefur 3 undanfarin ár og þessar álögur verða svo aftur til að magna þann vanda, sem við er að glíma. Á s. l. ári var nær 50 millj. kr. greiðsluafgangur hjá ríkissjóði. Lagt er til, að 25 millj. kr. af þessum greiðsluafgangi verði varið til þess að mæta útgjaldaþörf ríkissjóðs á þessu ári. Fyrrv. fjmrh. lét svo ummælt á þingi fyrr í vetur, að slík ráðstöfun greiðsluafgangsins væri óhæfileg, því að þannig væri þessum sjóði hans kastað í dýrtíðarhítina. Þessi greiðsluafgangur er fenginn á þann hátt, að lagðar voru á þjóðina með bjargráðunum 50 millj. kr. hærri álögur, en þörf var á. Með þeim ráðstöfunum var dýrtíðin mögnuð, þannig að ný verðbólgualda var að skella yfir, þegar þessi virðulegi fyrrv. ráðh. varð að gefast upp við stjórn fjármálanna. Er hægt að hugsa sér skynsamlegri ráðstöfun, en að verja hluta þessara ofteknu skatta til þess að koma nú í veg fyrir nýjar álögur og reyna þannig að sporna gegn því, að dýrtíðarflóð það, sem Framsfl. magnaði, en gafst síðan upp fyrir, verði til þess að drekkja þjóðinni? Þeir, sem flóðinu hafa valdið, ættu a. m. k. að láta sem minnst á sér bera í því sambandi.
Enn hefur ekkert verið greitt af tollum eða öðrum opinberum gjöldum vegna byggingar hins nýja orkuvers við Sog. Stjórn Sogsvirkjunarinnar og hæstv. fyrrv. fjmrh. höfðu tekið upp samninga við Seðlabankann um útboð sérstaks innanríkisláns Sogsvirkjunarinnar til þess að afla allt að 30 millj. kr. til að greiða upp í þessi gjöld, en þau munu verða töluvert hærri. Frv. um þetta efni lagði síðan fyrrv. fjmrh. fyrir Alþingi og má gera ráð fyrir, að það verði samþykkt og seðlabankinn tryggi sölu bréfa, er nemi áðurnefndri upphæð. Með þessum tekjum er ekki reiknað í áætlun þeirri, sem gerð hefur verið um tekjur ríkissjóðs á þessu ári, og er því lagt til, að þessi tekjuauki verði áætlaður undir sérstökum lið í 2. gr. frv.
Tekjur ríkissjóðs árið 1958 urðu alls 895.5 millj. kr. samkv. bráðabirgðauppgjöri, sem nú liggur fyrir. Í fjárlagafrv. eru tekjurnar áætlaðar 897.9 millj. kr. Með efnahagsmálalöggjöfinni á s. l. ári bættust ríkissjóði miklar tekjur. Sú gjaldahækkun kom hins vegar ekki til framkvæmda, fyrr en 5 mánuðir voru liðnir af árinu. Gerð hefur nú verið mjög ýtarleg áætlun um væntanlegar tekjur ríkissjóðs á þessu ári, byggð á rækilegri athugun á öllum aðstæðum. Samkv. þeirri áætlun er reiknað með því, að tekjur ríkissjóðs á árinu verði 981.5 millj. kr. Hefur þá verið fellt niður 20 millj. kr. framlag útflutningsjóðs til ríkissjóðs, en á móti kemur tekjuauki vegna nýlegra verðhækkana áfengis og tóbaks, sem er áætlaður 25 millj. kr. Nú hefur það að vísu verið venjan undanfarin ár að áætla tekjur ríkissjóðs í fjárlögum það lágt, að fjmrh. gæti haft allrúmar hendur um umframgreiðslur. Þann hátt er ekki hægt að hafa nú, þegar verið er að forðast nýjar skattaálögur. Er því lagt til, að tekjurnar verði áætlaðar 966.5 millj. kr., og er það 68.6 millj. kr. hækkun frá frv.
Vafalaust mun því verða haldið fram af ýmsum, að það nái ekki nokkurri átt að áætla aðeins 15 millj. kr. til að mæta umframgreiðslum. Þetta er vissulega lítil fjárhæð, miðað við umframgreiðsluna undanfarin ár. En ætlunin er líka sú, að mikið hóf verði haft á þessum greiðslum og þær því aðeins inntar af hendi, að óumflýjanlegt sé.
Um innflutningsáætlun þá, sem tekjuáætlunin er byggð á, er það að segja, að hún er miðuð við 1 milljarð og 94 millj. kr. útflutning. Útflutningur 1958 varð 1 milljarður og 69 millj. kr., en að auki varð birgðaaukning, sem nam 70 millj. kr. Miðað við það, að síldveiði verði svipuð og í fyrra og vetrarvertíð bregðist ekki, telur efnahagsmálaráðunautur ríkisstj., að gera megi ráð fyrir, að útflutningur í ár geti numið allt að 1 milljarð og 140 millj. kr. Ljóst er nú, að vetrarvertíð ætlar jafnvel að verða betri í ár, en í fyrra og virðist þessi áætlun því ekki óvarleg. Innflutningsáætlunin er hins vegar höfð það varleg, að miðað er við gjaldeyristekjur lítið eitt hærri, en meðaltekjur tveggja síðustu ára, en árið 1957 var allmiklu lakara en árið 1958, sem var okkar bezta tekjuár. Er miðað við, að reynt verði að greiða á árinu þann 100 millj. kr. gjaldeyrisyfirdrátt við útlönd, sem var um síðustu áramót. Er því hér um mjög raunhæfa áætlun að ræða.
Samkv. öllum þessum till. okkar í 1. minni hl. n. skortir því nú aðeins tæpar 10 millj. kr., til þess að auðið sé að brúa hið breiða bil gjalda og tekna, án þess að hækka þurfi hina almennu skatta og tolla á þjóðinni. Munu við 3. umr. frv. gerðar tillögur um, hversu sá vandi verði leystur, þannig að auðið verði að afgreiða fjárlög greiðsluhallalaus.
Eins og ég áður gat um, er með þessari afgreiðslu fjárlaga og efnahagsráðstöfununum um s. l. áramót reynt að byggja lífsnauðsynlegan varnargarð gegn því verðbólguflóði, sem fyrrv. hæstv. forsrh. sagði að væri að steypast yfir þjóðina, þegar hann gafst upp í baráttunni fyrir síðustu áramót. Takist þessar stöðvunarráðstafanir, þá er grundvöllur fenginn undir frekari aðgerðir, sem nauðsynlegar eru til þess að koma á jafnvægi í fjármálum og efnahagsmálum þjóðarinnar. Við verðum að gera okkur ljósa grein fyrir því, að enn erum við þó á gjárbarminum og verðum því að gæta okkar vel.
Ef undan er skilið, hversu vel var séð fyrir ríkissjóði með bjargráðunum svokölluðu í fyrra, hefur efnahagsmálaráðunautur ríkisstj. tjáð fjvn., að ljóst hafi verið þá þegar, að rekstur útflutningssjóðs gæti því aðeins staðizt, að gjaldeyristekjur væru mjög háar og notkun erlends lánsfjár mikil og þar af leiðandi hægt að halda uppi miklum innflutningi á hátollavörum. Árið 1958 er langhagstæðasta tekjuár okkar. Engu að síður var þá auk mjög mikils erlends lánsfjár eytt öllum gjaldeyristekjunum og erlendar lausaskuldir við s. l. áramót 100 millj. kr. Því er ekki að leyna, að enn er djarft spilað, þótt að vísu sé nú reiknað með að grynna á lausaskuldunum. Leggja verður áherzlu á að koma skipan efnahagsmálanna í það horf, að hægt sé í framtíðinni að eiga einhvern gjaldeyrisvarasjóð, því að fjarstætt er að treysta því, að alltaf verði góðæri. Áður en fyrrv. ríkisstj. fór frá völdum, hafði hún lagt drög fyrir því að fá nýtt gjaldeyrislán í Bandaríkjunum og eru allar áætlanir um afkomu ríkissjóðs og útflutningssjóðs á þessu ári við það miðaðar, að þetta lán fengist. Er því í öllum þeim áætlunum, sem nú eru lagðar til grundvallar fjárlagaafgreiðslunni, reiknað með, að svo verði og byggt á upplýsingum ríkisstj. um það efni. Er ætlunin að verja lánsfé þessu til raforkuframkvæmda, hafnarframkvæmda og til að leysa fjárhagsörðugleika stofnlánasjóða landbúnaðar og sjávarútvegs. Því er hins vegar ekki að leyna, að erlend skuldasöfnun á undanförnum árum hefur verið svo mikil, að varlega verður að fara í frekari erlendar lántökur. Afborganir og vextir af erlendum lánum verða nær 130 millj. kr. á þessu ári og erlendar skuldir þjóðarinnar hlutfallslega hærri, en í flestum öðrum löndum og er nú hlutfallið að verða svipað og fyrir 1940, þótt aðstaða landsins til að standa undir skuldunum sé raunar miklu betri nú.
Það má ekki heldur loka augunum fyrir því, að dýrtíðarvandamálið er ekki leyst, þótt vísitölu sé haldið niðri með stórfelldum fjárframlögum, heldur er hér aðeins um óhjákvæmilega neyðarráðstöfun að ræða til þess að forða frá því, sem verra er.
Allar þær staðreyndir, sem ég hef hér dregið fram, er nauðsynlegt að þjóðin íhugi rækilega. Það er kominn tími til að segja þjóðinni umbúðalaust sannleikann, því að vandamál efnahagslífsins verða ekki leyst, nema þjóðin öll geri sér grein fyrir eðli vandamálanna og sætti sig við þær ráðstafanir, sem óumflýjanlegar eru. Það getur tekið langan tíma að koma á jafnvægi í fjárhagsmálunum, ef nauðsynlegar ráðstafanir eiga ekki að valda tilfinnanlegri kjaraskerðingu, en þetta jafnvægi verður að nást, til þess að fjármálaþróunin í landinu geti verið með eðlilegum hætti. Það er engin ástæða til svartsýni, því að framleiðslumöguleikar þjóðarinnar eru miklir og vaxandi. Ef kostað er kapps um að hagnýta sem bezt auðlindir landsins og hafsins umhverfis það, á þjóðin örugglega að geta búið við góða afkomu, ef hún lætur ekki villa sér sýn um eðli þeirra vandamála, sem hún á nú við að glíma og nægileg samstaða fæst um skynsamlega lausn þessara vandamála. Einn þáttur þess vanda er afgreiðsla þess fjárlagafrv., sem hér liggur nú fyrir til 2. umr.
Ég hef nú, herra forseti, gert grein fyrir þeim röksemdum, sem tillögur okkar í 1. minni hl. n. byggjast á og leyfi ég mér að vænta þess, að hv. alþingismenn geti á þær fallizt.