21.04.1959
Sameinað þing: 42. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 719 í B-deild Alþingistíðinda. (418)
1. mál, fjárlög 1959
frsm. 1. minni hl. (Magnús Jónsson):
Þannig er ástatt varðandi þessa 22. till. og enn fremur 25. till., að það þarf að gera sérstakar skipulagsbreytingar og jafnvel lagabreytingar varðandi þessi atriði og það hefur ekki enn þá verið gerð fullkomlega grein fyrir því og ekki lagt fram um það frv., sem um þetta þarf að taka ákvarðanir um og með hliðsjón af því eru þessar till. báðar teknar aftur til 3. umræðu.