21.04.1959
Sameinað þing: 42. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 722 í B-deild Alþingistíðinda. (423)

1. mál, fjárlög 1959

Karl Guðjónsson:

Herra forseti. Till. þessi er um það að lækka framlag til atvinnu- og framleiðsluaukningar, sem í frv. er gert ráð fyrir að sé 13.5 millj. kr., en í þessari brtt. er gert ráð fyrir, að um sé að ræða 10 millj. kr. framlag. Enn fremur gerir þessi till. ráð fyrir því, að fénu verði nú úthlutað af fimm manna þingkjörinni nefnd, en það hefur ekki tíðkazt til þessa, heldur hefur fénu verið úthlutað af ríkisstj. sjálfri. Ég fyrir mitt leyti vil lýsa yfir mikilli óánægju með það háttalag, sem á hefur verið haft á undanförnum árum, að því leyti, sem nokkur byggðarlög landsins hafa verið höfð sérstakt bannsvæði og ekki getað fengið neina úthlutun af þessu fé. Og það er ekki gert ráð fyrir því í þessari till., þótt annar háttur sé ákveðinn um úthlutunina, að landið verði látið njóta algers jafnréttis, svo að till. snýst ekki eingöngu um upphæðina, heldur einnig um það, með hverjum hætti skuli fara hér að. Á meðan till. ekki ákveður það, að allir landsmenn skuli standa jafnt að vígi gagnvart þessari úthlutun, mun ég ekki taka þátt í samþykkt þeirrar till., sem hér liggur fyrir, og segi því nei.