29.04.1959
Sameinað þing: 44. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 828 í B-deild Alþingistíðinda. (456)
1. mál, fjárlög 1959
dómsmrh. (Friðjón Skarphéðinsson):
Herra forseti. Með því að ákveðið er, að séð verði með öðrum hætti fyrir fé til æfingarstöðvar Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, 150 þús. kr., og til Sjálfsbjargar, félags fatlaðra, 100 þús. kr., þá er óskað eftir því, að þessar tvær till. verði teknar aftur.