29.04.1959
Sameinað þing: 44. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 828 í B-deild Alþingistíðinda. (457)

1. mál, fjárlög 1959

Magnús Jónsson:

Herra forseti. Ég hef ekki hér neitt umboð til þess að fallast á það fyrir hönd fjvn., að þessar tvær till. séu teknar aftur. Hins vegar get ég lýst því hér sem minni skoðun, að úr því að það liggur fyrir frá hæstv. ráðh., að það er ákveðið að sjá fyrir þessum fjárveitingum til þessara tveggja félagasamtaka með öðrum hætti og það hlýtur að vera aðalatriði málsins, að fjárveitingin til þessara stofnana fáist, en ekki endilega, að það sé úr ríkissjóði, þá fyrir mitt leyti get ég vel fallizt á þá afgreiðslu málsins, að þessar till. verði ekki samþykktar með hliðsjón af yfirlýsingu hæstv. ráðh.