29.04.1959
Sameinað þing: 44. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 829 í B-deild Alþingistíðinda. (462)

1. mál, fjárlög 1959

Magnús Jónsson:

Í framsöguræðu minni í gær gat ég þess, að það væri að sjálfsögðu gengið út frá því, að þessi framlög yrðu innt af hendi af ríkissjóði að eðlilegum hætti, en benti hins vegar á, að það væri óþekkt, að ákveðið væri í fjárlögum, hvernig greiðslur skyldu inntar af hendi og af þeim sökum segi ég nei.