07.04.1959
Neðri deild: 102. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 830 í B-deild Alþingistíðinda. (466)
137. mál, stofnun gjaldeyrissjóðs og alþjóðabanka
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Svo sem hv. þm. mun kunnugt, gerðust Íslendingar aðilar að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Alþjóðabankanum, þegar þessum stofnunum var komið á fót 1945. Þátttaka eða hlutdeild Íslendinga í stofnfé stofnananna var þá ákveðin eins lítil og leyfilegt var, þ. e. 1 millj. dollara í hvorri stofnuninni um sig. Um framlagið til Alþjóðabankans er þó það að segja, að stofnféð var og er ábyrgðarfé, sem ekki hefur þurft að greiða fram til þessa.
Síðan þessum stofnunum var komið á fót, hefur starfsemi þeirra vaxið mjög. Að því er Alþjóðagjaldeyrissjóðinn varðar, hafa alþjóðaviðskipti aukizt mjög stórlega frá stríðslokum, þegar upphaflegu framlögin voru ákveðin og sömuleiðis hafa útlán Alþjóðabankans jafnt og þétt aukizt síðan. Hefur því verið á döfinni undanfarin ár að auka stofnfé þessara stofnana beggja. Á aðalfundi þeirra, sem haldinn var í Nýju-Delhi á Indlandi á s. l. hausti, var samþykkt till. um, að stofnanirnar athuguðu, hvort ekki fengist samkomulag um að auka framlög þátttökuríkjanna til þeirra. Síðan hefur samþykkt aðalfundarins verið borin undir aðildarríkin öll og verið samþykkt. Aukningin, sem hefur verið samþykkt, er um 50% hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og um 100% hjá Alþjóðabankanum. Ber því Íslandi að auka hlutdeild sína í stofnfé Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um ½millj. dollara og samkv. reglum, sem um það hafa verið settar, þarf að greiða ¼ aukningarinnar eða 125 þús. dollara til sjóðsins sjálfs í gjaldeyri, en 3/4 hluta eða jafnvirði 375 þús. dollara á eða má greiða í ísl. kr. í reikning sjóðsins í seðlabankanum. Um aukninguna á hlutdeild Íslands í stofnfé Alþjóðabankans er það hins vegar að segja, að sömu reglur gilda um aukninguna og stofnfjártillagið sjálft, að þar er um ábyrgðarfé að ræða eða hlutafjárloforð, sem ekki þarf að greiðast.
Í þessu frv. er lagt til, að ríkisstj, sé heimilt að taka innanríkislán, er jafngildi allt að 3.5 millj. dollara, þ. e. þeim upphæðum, sem gert er ráð fyrir að stofnhlutur Íslands í þessum tveimur alþjóðafjármálastofnunum aukist um samkv. þeim samþykktum, sem þegar hafa verið gerðar með atkvæði Íslands í þessum stofnunum.
Ég vil leyfa mér að leggja til, að að lokinni umr, verði frv. vísað til 2. umr. og hv. fjhn.