16.03.1959
Efri deild: 86. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 835 í B-deild Alþingistíðinda. (496)
128. mál, happdrætti fyrir Ísland
Utanr.- og fjmrh. (Guðmundur Í. Guðmundsson):
Herra forseti. Einkaleyfi Háskóla Íslands til happdrættisrekstrar er senn útrunnið. En með því að enn bíða mörg verkefni óleyst hjá háskólanum, hefur hann farið fram á það, að einkaleyfið verði framlengt til 15 ára. Með frv. þessu er lagt til, að heimilað verði að framlengja þetta einkaleyfi, eins og farið er fram á.
Frv. gerir ráð fyrir því, að tekjum af happdrættinu skuli varið á sama hátt og verið hefur að undanförnu, með þó nokkrum viðbótum, sem inn eru teknar samkv. till. menntmrn. Er bætt inn í frv. heimild til þess að nota ágóða af happdrættinu til greiðslu kostnaðar af viðhaldi háskólabyggingarinnar, fegrun háskólalóðar, til að koma á fót og efla rannsóknarstöðvar við hinar ýmsu deildir háskólans og enn fremur til kaupa á rannsóknar- og kennslutækjum, sem háskólinn telur sér nauðsynlegt að eignast. Er gert ráð fyrir því í háskólareglugerðinni, sem út var gefin 17. júní s. l., að komið verði á fót rannsóknarstöðvum, eftir því sem fé er fyrir hendi.
Ég vænti, að þetta frv. mæti hér þeim sama skilningi í þessari hv. d. sem það hefur áður mætt, þegar þurft hefur að framlengja rétt Háskóla Íslands til happdrættisrekstrar. Leyfi ég mér að leggja til, að málinu verði vísað til 2. umr. og n., hvort það er fjhn. eða allshn., sennilega er það þó öllu frekar allshn. Annars geri ég engan ágreining um það, en leyfi mér að leggja til, að því verði vísað til 2. umr. og allshn.