16.04.1959
Neðri deild: 109. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 849 í B-deild Alþingistíðinda. (544)
122. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Eins og fram kom við 2. umr. um þetta mál hér í d., er aðalefni þessa frv., sem hér liggur fyrir, að framlengja ákvæði, sem giltu s. l. ár og reyndar í fleiri ár um lækkun skatta af lágtekjum og að hækka tekjufrádrátt sjómanna á fiskiskipum og er það til staðfestingar á samkomulagi, sem hæstv. ríkisstj. gerði um það efni í vetur. En hv. þm. Snæf. og þrír aðrir hv. þdm. vilja koma inn í frv. breyt. á lagafyrirmælum um skattgreiðslur félaga.
Á síðasta þingi voru sett ný ákvæði um þetta efni, skattgreiðslur félaga. Var þá gerð veruleg lagfæring á lagafyrirmælum um félagaskattana og virðist engin ástæða til að raska þeirri nýju löggjöf nú þegar, aðeins einu ári eftir að hún var samþykkt.
Samkvæmt þessum nýju lagaákvæðum, sem sett voru í fyrra, er nú tekjuskattsgreiðsla sama prósenta af skattskyldum tekjum hjá öllum félögum, sem skatt ber að greiða og sama er um eignarskatt félaga. Það er sama skattprósenta af skattskyldri eign allra félaga. Áður urðu félögin að búa við stighækkandi skatta.
Samkv. skattalögunum eru þessi félög skattskyld og hafa verið um langan tíma: hlutafélög og önnur félög með takmarkaðri ábyrgð, gagnkvæm ábyrgðarfélög, kaupfélög og önnur samvinnufélög. Um þessi félög gildir það, að þau starfa eftir sérstökum lögum. Það eru til sérstök lög um hlutafélög, sem kveða á um fyrirkomulag slíkra félaga og önnur sérstök lög um samvinnufélög. Þá eru einnig eftir skattalögunum skattskyld sameignarfélög og samlög, sem hafa það að meginmarkmiði að annast vinnslu eða sölu á framleiðsluvörum félagsmanna og einnig önnur sameignarfélög með ótakmarkaðri persónulegri ábyrgð félagsmanna, enda hafi þau tilkynnt firma sitt og tilkynnt til firmaskrár, að þau óski að vera skattlögð sem félög, en að öðrum kosti sé tekjum og eignum skipt milli sameigenda í samræmi við hlutdeild þeirra í félaginu og þær skattlagðar með öðrum tekjum þeirra og eignum. En um þessi sameignarfélög og svonefndu samlög er það að segja, að þau starfa ekki á neinum lagagrundvelli. Það eru engin lög til hér í landi um slíkan félagsskap, þó að nokkuð hafi verið til af slíkum félögum um skeið. Það er nokkuð til af slíkum sameignarfélögum, sem eru með ótakmarkaðri persónulegri ábyrgð sameigenda, en undantekningarlaust munu þau vera fámenn, og eins og ég gat um áðan, þá segir í lögunum, að það skuli skattleggja þessi félög, ef þau hafa óskað eftir því að vera skattlögð sem félög, annars skuli tekjum þeirra og eignum skipt á milli eigenda.
Rekstur þessara félaga, sem eru þannig með ótakmarkaðri persónulegri ábyrgð eigendanna, er svo náskyldur einkarekstri, þar sem ábyrgð eigenda er í báðum tilfellum ótakmörkuð, að það réttlætir það, að skipta megi tekjum og eignum slíkra sameignarfélaga og skattleggja þær með öðrum tekjum sameigendanna.
En brtt. þeirra hv. þm. Snæf. og félaga hans á þskj. 372 er um það, að öll félög, sem nefnast sameignarfélög eða samlög, geti komizt hjá skattgreiðslum og látið skipta tekjum sínum og eignum milli sameigenda til skattlagningar hjá þeim. Þeir vilja fella niður úr núgildandi lögum það ákvæði, að heimildin til skiptingar sé takmörkuð við þau félög ein, sem eru með ótakmarkaðri persónulegri ábyrgð eigenda, en það er einmitt þetta ákvæði, að ábyrgð félagsmanna sé ótakmörkuð, eins og þegar um einkarekstur er að ræða, sem réttlætir skiptinguna.
Ef brtt. fjórmenninganna yrði samþykkt, gætu öll félög, sem nefndu sig sameignarfélög eða samlög, komizt hjá skattgreiðslu, hvaða verkefni sem þau hefðu með höndum, hvort sem þau væru með takmarkaðri eða ótakmarkaðri ábyrgð og hvort sem þátttakendur í þeim væru margir eða fáir. Það mundi engu máli skipta, hvort þetta væru lokuð félög fárra einstaklinga eða hvort það væru félög, sem væru opin almenningi til þátttöku. Þau gætu gert sig skattlaus eða orðið skattlaus, ef till. þeirra fjórmenninganna verður samþ.
Slík samtök eins og hér um ræðir hafa myndazt og geta myndazt, þó að þau séu ekki byggð á grundvelli neinna landslaga. En hvers vegna skyldu slík félög, sem ekki eru bundin af neinum ákveðnum lagareglum, eiga að njóta skattfrelsis, meðan félög, sem starfa á grundvelli landslaga, svo sem hlutafélög og samvinnufélög, eiga að borga skatta? Engin rök eru sjáanleg, sem mæla með því. Ákvæði um undanþágu handa þeim skapar misrétti, ef hún er veitt.
Það má auk þess benda á það, að þetta yrði mjög erfitt í framkvæmd. Ef þátttakendur eru margir og jafnvel búsettir í mörgum skattaumdæmum, hefur skiptingin mikla fyrirhöfn í för með sér og tefur störf skattanefnda og skattstjóra.
Ákvæði laganna frá síðasta þingi um félagaskatta til ríkisins eru þannig, að það er vel hægt fyrir félög að sætta sig við þau og gildir það jafnt um þau samtök, sem nefnd eru í brtt., og önnur félög.
Hv. þm. Snæf. talaði hér áðan í ræðu sinni um sölusamlög sérstaklega, þ. e. félagssamtök, sem taka afurðir framleiðenda til sölu, og hann talar um það, að í fyrra hafi verið lögleidd tvísköttun í þessu sambandi. Þetta er misskilningur hjá hv. þm. Þessi félög eða samlög borga ekki skatt af því fé, sem þau skila til þeirra aðila, sem hafa falið þeim vörur í umboðssölu. Það gera þeir sjálfir vitanlega, svo að þetta er á misskilningi byggt, að þarna sé um tvísköttun að ræða og hann vitnaði einmitt í lagastaf þessu til stuðnings. Ef framkvæmdin er þannig, eins og hann talaði um, að þessi samlög borgi fyrst áætlunarverð til framleiðenda og skili þeim uppbótum síðar, þá eru uppbæturnar alveg eins og áætlunar verðið áður taldar, með tekjum hjá hinum einstöku framleiðendum og samlögin fá að draga þetta frá. Þau þurfa ekki að borga skatt af því, sem þau skila í uppbótum til framleiðendanna, svo að þarna er tal um tvískötttun á misskilningi byggt.
Hann vitnar í það, að samvinnufélög hafi og það samkv. landslögum — heimild til að draga frá það, sem þau greiða félagsmönnum í stofnsjóði í hlutfalli við viðskipti þeirra, og hann talar um einhverja stofnsjóði hjá svona samlögum. En ég vil vekja athygli á því, að það eru engin lagaákvæði um neina stofnsjóði hjá öðrum en samvinnufélögum eða um meðferð á slíkum sjóðum. Það er það, sem vantar.
Hv. þm. Snæf. heldur því fram, að ef þeirra till. verði ekki samþ., verði þessi svokölluðu samlög, sem hann ber fyrir brjósti, miklu verr sett en t. d. samvinnufélögin. Þetta er ekki rétt. Samvinnufélögin verða að borga skatta af tekjum sínum og eignum eftir ákvæðum skattalaganna. Þau eru skattskyld félög. Ef það er þannig, að þessi samlög séu með öllu eignalaus, þá auðvitað borga þau ekki eignarskatt frekar en aðrir, sem engar skattskyldar eignir hafa. Fjórmenningarnir eru einmitt með tillögu sinni að reyna að efna til misréttis í þessu efni. Þeir eru að fara fram á það, að félög, sem nefna sig sameignarfélög eða samlög, hvaða verkefni sem þau hafa og hvernig sem þeim félagsskap er háttað, hafi möguleika til að vera skattlaus, meðan bæði hlutafélög og samvinnufélög verða að borga 25% til ríkisins af sínum skattskyldu tekjum og ákveðið prómille-gjald af sínum skattskyldu eignum. Það eru þeir, sem eru að efna til misréttis eða reyna að koma inn misrétti með því að bera fram þessa brtt. og mæla fyrir henni.
Ef til vill líta flm. brtt. svo á og ýmsir fleiri, að lögin um hlutafélög eða samvinnufélög séu ekki heppilegur grundvöllur til að byggja á félagsskap um atvinnurekstur af ýmsu tagi. Og það kann að vera, að einmitt þess vegna hafi risið upp þessi svokölluðu samlög, eins og þau nú eru upp byggð, sem er með ýmsu móti, að ég hygg, að þeir, sem að þeim standa, hafa ekki talið sig hafa góðan grundvöll til að byggja á, hvorki í hlutafélagalögunum né samvinnulögunum. Ég er ekki kunnugur þessum félagsskap, en mér er sagt, að þau séu byggð upp með ýmsu móti.
Hv. þm. Snæf. var að segja, að í einu ákveðnu slíku félagi, ég held Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, hefði hver þátttakandi eitt atkvæði. En ég hef heyrt það, og ég hugsa, að það sé rétt, að í ýmsum samtökum af þessu tagi sé þetta þannig, þegar um útvegsmenn er að ræða, að þá láti þeir tölu þorska og lifrarpotta ráða því, hvaða atkvæði hver þátttakandi hefur í félagsskapnum. Þetta mun vera sem sagt með ýmsu móti, eins og eðlilegt er, þar sem þessi samtök eru ekki byggð á neinum lagagrundvelli.
En ég vil segja það, að ef þessir menn, sem að þessum brtt. standa og aðrir, sem líta líkt á hlutina, telja, að þeir geti ekki haft sinn rekstur í hlutafélagaformi eða samvinnufélagaformi, þá ættu þeir að taka sig til og reyna að semja frv. til laga um nýtt félagaform, hvort sem þeir kölluðu það samlög eða sameignarfélög eða hvað þeir vildu kalla það. Þetta ættu þeir heldur að taka sér fyrir hendur, en vera að berjast við það hér að koma inn í nýlega setta löggjöf ákvæði um sérréttindi handa einhverjum félögum, sem menn vita í mörgum tilfellum harla lítið um, hvernig upp eru byggð og geta verið með ýmsu móti. Þetta ættu þeir að gera. Ef slíkur félagsskapur á framtíð fyrir sér, þyrfti hann einmitt að hlíta einhverjum lagareglum, alveg eins og hlutafélög og samvinnufélög. Í slíka löggjöf ætti vitanlega að taka svipuð ákvæði og eru í lögunum um hlutafélög og samvinnufélög. Þar þurfa að vera ákvæði m. a. um þátttöku í félögunum, hvort þetta séu opin félög almenningi eða hvort það sé hægt að hafa þau lokuð, hvernig skuli vera með atkvæðisrétt í félögunum, um sjóðamyndanir, um ábyrgð félagsmanna og annað slíkt. Þetta þyrfti að vera í slíkri löggjöf, hliðstætt því, sem er í lögum nú um hlutafélög og samvinnufélög.
Ég sé ekki ástæðu til að hafa um þetta fleiri orð að sinni, en samkv. því, sem fram hefur komið í því, sem ég hef sagt, þá legg ég ákveðið á móti því, að þessi breytingartillaga verði samþykkt, — legg til, að hún verði felld.