16.04.1959
Neðri deild: 109. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 862 í B-deild Alþingistíðinda. (548)
122. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Sigurður Ágústsson:
Herra forseti. Ég get fallizt á þau sjónarmið, sem hafa komið fram hér í umr., að það sé eðlilegt, að löggjöf sé sett á Alþingi í sambandi við þessi félagasamtök. Þessi samtök, bæði Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og skreiðarsamlagið, hafa sín lög til að starfa eftir og sínar reglugerðir. Hins vegar get ég fallizt á, að það færi vel á því, að flutt væri hér á Alþingi löggjöf um það, hvernig þessi samtök skuli haga starfsemi sinni.
Hv. þm. V-Húnv. sagði, að á s. l. ári hafi verið samþykkt hér veruleg lagfæring á skatti félaganna. Það getur ekki talizt lagfæring fyrir þessi samlög, sem ég hef verið að ræða hér um og hafa ekki borgað neinn skatt til ríkisins, hvorki tekjuskatt né eignarskatt í 16 ár, að annað þeirra er nú krafið um greiðslu á 1.3 millj. kr. í tekjuskatt og eignarskatt. Það er lagfæring, sem þarna hefur átt sér stað — eða hitt þó heldur. En eins og ég tók fram í fyrri ræðu minni, þá tel ég ákaflega varhugavert af hv. Alþ. að semja löggjöf, sem beinlínis kveður á um misjöfn skilyrði þessara félagasamtaka, sem starfa á sams konar grundvelli að útflutningi íslenzkra afurða.
Ég veit, að hv. þm. V-Húnv. er vel ljóst, hvað breytingin á skattalöggjöfinni frá í fyrra getur haft í för með sér. Hún getur orsakað það, að þeir 55–60 meðlimir, sem nú starfa innan Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, geti í framtíðinni séð hag sinn í því að segja sig úr viðskiptum við sölumiðstöðina og gerast meðlimir innan samtaka Sambands ísl. samvinnufélaga. Ég segi það ekki, að hv. þm. V-Húnv. hafl haft þetta í huga, en þetta er bein afleiðing af slíku misrétti eins og nú ríkir í skattalöggjöfinni.
Hv. 3. þm. Reykv. gerði fyrirspurn um það, hvort Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna væri eignarlaus. Ég tók það fram í minni ræðu, að Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna á ekkert fé. Hún er algerlega eignarlaus og það fjármagn, sem hún starfar með, er séreignasjóðir 55–60 meðlima, sem hún starfar fyrir. Sjálf á Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna ekkert fjármagn og ég geri ráð fyrir, að það sé það sjónarmið, sem orsakar það, að hv. yfirskattanefnd Reykjavíkurbæjar ákvað nýverið að fella niður tekjuskatt og eignarskatt, sem lagður var á þessi samtök á s. l. ári.
Hv. 3. þm. Reykv. nefndi hér dæmi um, hvað vefararnir í Rockdale á sínum tíma hafa gert til þess að koma sinni framleiðslu í gott horf eða njóta sannvirðis fyrir vinnu sína. En ég vil segja það, að eins og hv. 3. þm. Reykv. talaði um það nauðsynlega starf, sem vefararnir í Rockdale á sínum tíma gerðu í Englandi, þá er ekki síður nauðsynlegt starf, sem meðlimir Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna framkvæmdu á sínum tíma, þegar þeir mynduðu þessi samtök fyrir 16–17 árum, sem hafa unnið — að ég tel — þjóðfélaginu í heild stórkostlegt gagn. Meðlimir innan þessara samtaka hafa efnt til ýmissar hlutafjármyndunar, myndað Jökla h/f, Miðstöðina h/f og Tryggingarmiðstöðina h/f. Öll þessi félög starfa einnig til hagsbóta fyrir meðlimi sölumiðstöðvarinnar, hvert á sínu sviði og eru að mínu áliti mjög þörf fyrirtæki. Þetta eru allt hlutafélög, sem borga auðvitað bæði útsvar, tekjuskatt og eignarskatt af sínum tekjum og meðlimir sölumiðstöðvarinnar eru þátttakendur í þessum hlutafélögum, eftir því sem hver og einn hefur talið sig hafa ástæðu til að leggja þar fjármagn fram.
Ég get ekki fallizt á sjónarmið hv. 10. landsk. þm. (PP) um, að því frv., sem hér er til umr. í dag, sé stefnt í hættu, þó að þessi brtt. okkar fjórmenninganna sé tengd við það. Það er öðru nær. Þessi brtt. hlýtur annaðhvort að verða samþ., sem ég tel nokkurn veginn öruggt, eða þá felld. Ég get því engan veginn fallizt á það sjónarmið, að það geri hvorki til né frá fyrir frv., hvort þessi brtt. okkar fjórmenninganna sé tengd við það eða ekki.
Ég endurtek þá skoðun mína og það traust á hv. alþm., að þessi brtt. okkar fjórmenninganna verði hér samþ. í hv. deild.