18.04.1959
Neðri deild: 111. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 876 í B-deild Alþingistíðinda. (561)
122. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Það voru aðeins örfá orð í tilefni af ummælum, sem hér féllu, þegar mál þetta var hér síðast á dagskrá. Þá var rætt hér allmikið um skattskyldu svonefndra samlaga og sameignarfélaga í sambandi við brtt., sem hér er flutt um málið á þskj. 372.
Ég vildi taka það fram, að þegar breyt. var gerð á skattal. á s. l. ári, var því beinlínis lýst yfir innan ríkisstj., sem beitti sér þá fyrir breyt. á l., að ekki væri meiningin að breyta í neinum grundvallaratriðum ákvæðum gildandi laga um skattlagningu, hvorki samlaga né annarra félaga, svo að ég álít, að það sé rétt, sem hér kom fram hjá hv. þm. V-Húnv., að með þeirri breyt., sem gerð var á skattalögunum á s. l. ári, hafi raunverulega ekki verið breytt á neinn hátt um skattskyldu hinna svonefndu samlaga og hafi skattyflrvöldin tekið að framkvæma skattalögin eftir þessa breyt. á annan veg en áður var, þá hefur raunverulega ekki verið geflð tilefni til þess af löggjafans hálfu.
Ég vil styðja brtt. á þskj. 372 til þess einvörðungu að gera þessi ákvæði skýrari, en þau eru og minn stuðningur við þessa till. byggist á því, að ég tel, að hún miði að því að gera það ljósara, að ekki sé til þess ætlazt að skattleggja bein sölusamlög framleiðenda, sem hafa það meginverkefni að annast útflutning á framleiðsluvörum félagsmanna, eins og t. d. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Skreiðarsamlagið og önnur slík samlög, sem hér hefur verið minnzt á í þessum umr., enda er til þess ætlazt, að þessi samlög skili félagsmönnum sínum öllu söluandvirðinu af hinni seldu vöru. Hins vegar er að sjálfsögðu til þess ætlazt, að önnur samlagsfélög, sem hafa með höndum venjulegan rekstur, eins og t. d. að kaupa fisk og verka fisk og starfa á svipuðum grundvelli og bæði samvinnufélög og hlutafélög, eiga vitanlega að sjálfsögðu að greiða skatta, eins og þau hafa gert áður og þessi lagabreyting getur vitanlega ekki orkað þar á neitt til breytinga.
Ég vil aðeins undirstrika það frá minni hálfu, að ég styð þessa till. á þskj. 372 út frá þessu sjónarmiði, að ég tel óréttlátt eða óeðlilegt að skattleggja slík samlög, sem einvörðungu eða nálega einvörðungu vinna að því að selja framleiðsluvörur til útlanda og skila þar til félagsmanna sinna öllu andvirði hinnar seldu vöru og tel, að með samþykkt þessarar till. sé aðeins verið að slá því föstu, að það skuli haga hér framkvæmdum í skattlagningu á svipaðan hátt eða sama hátt og var, áður en síðasta breyting var gerð á skattalögunum.